Morgunblaðið - 16.06.1985, Blaðsíða 36
36
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 16. JÚNÍ 1985
ÞINGBRÉF
eftir STEFÁN FRIÐBJARNARSON
Alþingi íslendinga:
Afgerandi
áhrif á al-
menningshag
— Hnútur til þingsins gamlar og nýjar
Þingmennska er frábrugðin ann-
arri atvinnu að því leyti að þeir, sem
henni sinna, verða að sækja um
endurráðningu á fjögurra ára fresti
og stundum tíðar. Stjórnmálamenn,
sem vilja halda vinnu sinni, verða að
leggja störf sín reglubundið í al-
menningsdóm. Þeir verða að hljóta
umtalsvert almennt fylgi bæði í
prófkjörum og kosningum. Þeir, sem
markinu ná, uppskera síðan aðstöðu
til að hafa áhrif á framvindu mála í
löggjöf og pólitískri stjórnsýslu; fá
jafvel stjórnvöl þjóðarskútunnar upp
í hendur. Sú aðstaða er mörgum
keppikefli. Sumum af hugsjóna-
ástæðum. Öðrum eru völdin sæt.
Flestum er vonandi það eitt í huga
að gera þjóð sinni gagn.
Alþingi er þjóðkjörið. Það er því á
vissan hátt þverskurður og spegill
þeirrar þjóðar, sem það setur saman.
Við höfum hinsvegar sjaldan sem
þjóð (ef nokkur sinni!) litið yfir þetta
sameiginlega verk okkar, skipan Al-
þingis og „séð að þaö var harla
gott“. Sjálfsgagnrýni er þó ekki
okkar sterka hlið.
Hundrað ára hnútukast
Það er ekkert nýtt undir sólinni.
Allra sízt hnútukast til þingsins.
Árið 1883, fyrir meir en hundrað
árum, er þinglausnum svo lýst í
ÍSAFOLD, sem var virt blað:
„Og þeir átu og drukku og vóru
glaðir. Átu og drukku á landsins
kostnað, og hvíldu sig eftir vel
unnið dagsverk."
„Höfðu draslað stjórnarskrár-
málinu gegn um neðri deildina
með hvíldum og semingi, en
svæfðu hana í nefnd í efri deild.
Höfðu banað öðru mesta nauð-
synjamáli þingsins, peningastofn-
unarmálinu, eftir endalaust rif-
rildi, þar sem fæstir vissu hvað
þeir fóru með.
Höfðu kæft undir sér nýtilegan
vísi til að hrinda af sér oki iðju-
lausra og óspilunarsamra þurfa-
manna...
Höfðu gert sitt til að sjúklingar
landsins dæju hjúkrunarlausir og
afskiptalausir, eins og skepnur úti
w
f wáj fcjj# Æm * m h
Þingsetning — þinglausnir
Forseti fslands, frú Vigdís Finnbogadóttir, setur 107. löggefandi Alþingi íslendinga, sem nú er komið að
þinglausnum. fslandssagan er ekki sízt skráð á Alþingi, sem á flestum sviðum „gefur tóninn“ út í þjóðfélagið.
Hvort sá kapítuli þjóðarsögunnar, sem settur var saman á 107. löggjafarþinginu, er öðrun merkari dæmir
framtíðin um.
í haga, með því að synja um lítil-
fjörlegt fjárframlag til að koma
upp viðunanlegum spítala ...
Þetta eru lítil sýnishorn af af-
reksverkum hins 5. löggefandi Al-
þingis Islendinga, þingsins 1883.“
Svo mörg vóru þau orð, sem við
sækjum til virts fjölmiðils fyrir
102 árum. Þó rúm öld skilji þessa
gagnrýni frá líðandi stund kemur
hún engu að síður kunnuglega
fyrir augu, allavega tónninn og
framsetningin, þó efnisatriði séu
e.t.v. eitthvað breytt.
Það er ekki 5. heldur 107. löggef-
andi Alþingi fslendinga, sem nú
heilsar þinglausnum — og hlið-
stæðum kveðjum og hér hafa verið
sóttar öld aftur í tímann. Ekkert
er nýtt undir sólinni. Sagan
endurtekur sig.
Eftir margra ára hlé
NÝ HLJÓMPLATA
Fæst f verslun-
um um allt land
Á Austurlandi mun
' 1 Ungt fólk meö hlut-
4 verk annast dreifingu
Útgáfa og dreifing:
Þorvaldur Halldórsson
Sími 91-39470
TJMm UTANHÚSSKLÆÐNING • 2 TEG.
10ÁRA ÁBYRGÐ Á:
TÍMm VATNSÞ0LNUM KR0SSVIÐ,
MMJ ELDÞOLNUM, SEMENTSLÍMDUM PLÖTUM
ALUMINUM SAMTENCINCARLISTAR
ÁSAMT ÖLLU TILHEYRANDI
^\\L.M. Jóhannsson & Co
Súnar 687930 - 687931 • P. O. Box 1285 • 121 Reykjavík
k Telex: 2043 Joco • Nafrmr. 5977 - 4549
WTæL^