Morgunblaðið - 25.01.1980, Síða 15
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 25. JANÚAR 1980
15
Norsk íþróttasambönd
vilja að hæjt verði við
þátttöku í 01 í Moskvu
Ósló. Washington. London. Tókýó.
24. janúar. AP.
NORSKU frjálsíþrótta- og sund-
samböndin hvöttu norsku Olympíu-
nefndina í dag til aö samþykkja að
norskir íþróttamenn færu ekki til
leikanna i Moskvu í sumar og að
hvatt yrði til alþjóðiegrar sam-
stöðu í þeim efnum vegna afskipta
Sovétríkjanna af innanríkismálum
i Afganistan og vegna ofsókna á
hendur sovézkum þegnum. Fleiri
sérsambönd eru sögð sama sinnis.
Hans B. Skaset, formaður frjáls-
íþróttasambandsins, óskaði eftir
fundi i nefndinni n.k. mánudag.
Sagði hann að sambandið mundi
leggja til að engir íþróttamenn
yrðu sendir til leikanna ef ekki
yrði breyting á stefnu sovézkra
yfirvalda i mannréttindamálum.
Veður
Akureyri 1 alskýjað
Amsterdam 7 skýjað
Aþena 16 bjart
Barcelona 16 skýjað
Berlín Z skýjað
BrUssel 5 skýjað
Chicago 0 skýjað
Denpasar, Bali 30 hálfskýjað
Dublin 5 heiðríkt
Feneyjar 6 þokumóöa
Frankfurt 6 rigning
Genf 9 skýjaö
Helsinki -5 snjókoma
Hong Kong 20 bjart
Jerúsalem 9 heiðríkt
Jóhannesarborg 17 skýjað
Las Palmas 20 alskýjaö
Lissabon 16 rigning
London 9 bjart
Los Angeles 23 bjart
Madrid 10 bjart
Mallorca 17 heiöríkt
Malaga 17 hálfskýjaö
Miami 26 skýjaö
Montreal 6 snjðkoma
Moskva -8 skýjað
Nýja Delhi 23 bjart
New York 6 heiðríkt
Ósló 0 skýjað
París 7 skýjað
Reykjavík -1 léttskýjað
Rio de Janeiro 36 skýjaö
Rómaborg 13 skýjað
San Francisco 19 bjart
Stokkhólmur -2 skýjað
Sydney 24 bjart
Tel Aviv 15 rigning
Tókýó 10 bjart
Vancouver 0 skýjað
Vínarborg 5 skýjaö
Brasilía:
26 drukknuðu
Belo Horizonte, Brazilíu. 23. jan. AP.
AÐ MINNSTA kosti 26 manns hafa
drukknað í flóðum sem urðu í kjölfar
mikilla rigninga í miðhluta Brazilíu
síðustu daga. Sao Franciscoáin, ein
helzta á landsins, flæddi yfir bakka
sína í rigningunum og hreif með sér
þorp og bæi við bakka sína. Ástandið
á flóðasvæðunum er mjög slæmt en
björgunarsveitir vinna þar kapp-
samlega og heldur virðast flóðin nú í
rénun.
Ein af kröfunum væri að Nóbels-
verðlaunahafinn Andrei Sakharov
yrði algjörlega frjáls maður.
„Ástandið er nú orðið það alvar-
legt, að við verðum að beita Ól-
ympiuleikunum sem pólitisku
vopni,“ sagði Skaset.
Samþykkt var með 386 atkvæðum
gegn 12 í fulltrúadeild Bandaríkja-
þings ályktun, þar sem lýst yrði
stuðningi við tilögur Carters um
flutning Ólympíuleikjanna frá
Moskvu og að bandarískir íþrótta-
menn tækju ekki þátt í þeim ella.
Öldungadeildin tekur samsvarandi
ályktun til afgreiðslu í næstu viku.
Viðskiptanefnd öldungadeildarinn-
ar samþykkti þó samhljóða áskorun
á bandarísku Ólympiúnefndina, á þá
leið að nefndin óskaði eftir því að
leikarnir yrðu færðir til eða þeim
aflýst. Samsvarandi ályktun var
samþykkt í utanríkisnefnd fulltrúa-
deildarinnar með einu mótatkvæði.
Muhammad Ali fyrrum heims-
meistari í hnefaleik, en hann varð
Ólympíumeistari 1960, lýsti stuðn-
ingi við Carter forseta, og sagði að
lönd hins frjálsa heims ættu að
sameinast um að senda ekki iþrótta-
fólk til Moskvu, og sporna þannig
við útþenslu Sovétríkjanna. „Það er
öllu mikilvægara að friður haldist í
heiminum en að Ólympíuleikarnir
haldi áfram,“ sagði Ali.
Menachem Begin forsætisráð-
herra ísraels hefur lýst stuðningi
við stefnu Carters forseta varðandi
Ólympíuleikana, og hvatt, til þess að
íþróttamenn verði ekki sendir til
Moskvu nema Sovétríkin dragi heri
sína frá Afganistan. Þá var skýrt
frá því í Ankara að tyrknesk
yfirvöld hefðu til athugunar áskor-
un Carters, sem forsetinn sendi
Fahri Koruturk forseta, en diplóm-
atar spáðu að beðið yrði eftir því
hver viðbrögð annarra ríkja yrðu
áður en ákvörðun yrði tekin.
TVEIMUR farþegaflugvélum
hlekktist á í lendingu á evrópsk-
um flugvöllum í gærkvöldi og
dag, en mannskaði varð i hvor-
ugu tilvika. Annað slysið varð í
Munchen nú síðdegis, en hið
fyrra við Varsjá síðla miðviku-
dagskvölds.
í Munchen var DC8 vél með 203
innanborðs að lenda, þegar spi akk
á einum hjólbarða vélarinnar.
Skall vélin á lendingarljós og
þeyttist síðan áfram um 200
metra, áður en tókst að stöðva
hana. Talsmaður flugvallarins
sagði, að allir hefðu komizt heilir
á húfi út um neyðarútganga.
Farangri var síðan náð úr vélinni
og var henni ekið að flugstöðvar-
Varaforseti kínversku Ólympíu-
nefndarinnar sagði að Kínverjar
fylgdust vel með viðbrögðum við
tillögum Carters, og að farið yrði að
fordæmi annarra ríkja ef fylgi yrði
við að hætta þátttöku í leikunum
vegna atburðanna í Afganistan.
Forseti indversku Ólympíunefnd-
arinnar lýsti sig hins vegar and-
vígan tillögum Carters og sagði að
íþróttum og stjórnmálum ætti ekki
að blanda saman. I sama streng tók
varaforseti júgóslavnesku Ólympíu-
nefndarinnar. Loks sagði einn af
fréttaskýrendum Novosti frétta-
þjónustunnar (APN) sovézku að
Carter beitti sér fyrir skerðingu
mannréttinda með því að leggja til
að leikarnir yrðu færðjr frá Moskvu,
eða að þjóðir heims sendu ekki
keppendur til Moskvu.
Klofnar komm-
únistaflokkur-
inn í Noregi?
Osló, frá fréttaritara Mbl.
Jan-Erik Lauré.
INNRÁS Sovétríkjanna i Afgan-
istan gæti orðið til þess, að norski
kommúnistaflokkurinn klofnaði.
Mikill ágreiningur varð í mið-
stjórn flokksins um afstöðuna til
aðgerða Sovétmanna, en meirihluti
stjórnarmanna var fylgjandi inn-
rásinni. Nokkrir miðstjórnar-
manna, sem lentu í minnihluta,
hafa hótað því að segja sig úr
flokknum vegna þessa máls. Búizt
er við hörðum deilum um málið á
landsfundi flokksins síðar í vetur
og er talið að formaður hans,
Martin Gunnar Knudsen, verði þar
harðlega gagnrýndur fyrir þjónkun
við Sovétríkin.
byggingunni. Einu óþægindi þessa
voru þau að flugvellinum var
lokað nokkra hríð. Vélin var í eigu
Air Jamaica og var í leiguflugi frá
Kingston til Munchen.
í Varsjá hlekktist Tubolev 134
vél á, einnig í lendingu, en talið er
að einn maður aðeins hafi slasast
og það ekki alvarlega. Vélin var í
áætlunarflugi frá Brussel og hefur
ekki verið skýrt gjörla frá því
hvernig slysið bar að höndum.
Einhverra orsaka vegna rakst
vélin á flugstöðvarbygginguna og
skarst af henni annar vængurinn.
Geta menn sér til um að annað
tveggja hafi gerzt, að vélinni hafi
verið beint rangt á brautina elleg-
ar hemlar hafi bilað. Ekki hefur
verið sagt hversu margir voru með
þessari vél.
2 flugslys — og
allir sluppu lífs
Munchen. Varsjá 24. jan. AP.
Þetta gerðist
1979 — Allir flugvellir í íran
lokaðir til að hindra komu
Khomeinis klerks, Jóhannes Páll
páfi II leggur upp í för sína til
Suður-Ameríku.
1971 — Idi Amin hershöfðingi
steypir Obote í Úganda.
1965 - Páll páfi VI tilnefnir 27
nýja kardinála.
1952 — Vincent Massey
skipaður landsstjóri Kanada.
1949 — Fyrstu kosningar í nýju
ríki, ísrael.
1934 — Bankaræninginn John
Dillinger handtekinn í Tuscon.
1932 — Rússar og Pólverjar
skrifa undir vináttusamning.
1802 — Napoleon Bonaparte
verður forseti ítalska lýðveldis-
ins.
1787 — Misheppnuð tilraun gerð
til að taka bandaríska vopnabúr-
ið í Springfield í Massachusetts.
1544 — Sir Thomas Wyatt
krefst herútboðs í Englandi til
að láta andstöðu í ljós við
fyrirhugaða giftingu Maríu I.
1494 — Alfonso II tekur við
Napólikrúnunni af Ferdinand I.
Afmæli — Robert Burns, skozkt
skáld, 1759—1796 — William
Somerset Maugham, brezkur rit-
höfundur, 1874-1965.
Andlát — Robert Burton, rit-
höfundur, 1640.
Innlent — Kolbeinn grön veginn
1254 — Reikningar Skúla land-
fógeta kvittaðir 1837 — f. Páll
Kolka 1895.
Orð dagsins — Verstu lygarnar
eru oft með þögninni sagðar.
Robert Louis Stevenson, skozkur
rithöfundur, 1850—1894.
Símamynd — AP.
Hópur fólks mótmælir handtöku Sakharovs fyrir utan
sovézka sendiráðið í París. Bera mótmælendur myndir af
Sakharov og skriðdrekum, en Ólympíuhringirnir, tákn
jafnréttis og bræðralags, friðar og frelsis, einkenna
hjólaútbúnað þeirra. Á myndinni má sjá (2. t.h.) Eduard
Kuzneitsov, kunnan andófsmann.
Stærsta
ÚTSALA
Á ÍSLANDI
Fatnaóur
á alla
fjölskylduna.
Skór,
leikföng,
postulíns-
og kristals-
vörur,
hljómplötur
veiöistangir,
hjól o.fl.
23 fyrirtæki
selja nýjar
og vandaðar
að 70%
teíKtanc
gÍhkSsI.
Tot^.
fáVKinn.
WeViss^
Opiö í dag kl. 1 —10
Oöiö laugardag kl. 9—12
Opiö mánudag kl. 1—6
Nú er tækifæri aö
gera mjög góö kaup
STRÆTISVAONALEID NR. 10
SYNINGARHÖLLIN
Bíldshöföa 20.
p sími 81199,