Morgunblaðið - 26.09.1979, Blaðsíða 30
30
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 26. SEPTEMBER 1979
Margir kallaóir
— einn útvalinn
nokkur orð um Evrópu-
keppni meistaraliða
• Forest-leikmaðurinn Trevor Francis hampar bikarnum eftirsótta,
eftir sigurinn gegn Malmö FF í vor. Tekst Forest að halda í gripinn?
Dönsku keppendurnir
í badminton unnu sér
inn fjórar milljónir kr.
EVRÓPUKEPPNI félagsliða er í
fullum gangi um þessar mundir
og fyrri leikjum 1. umferðar er
að mestu lokið. Eftirhreytur eins
og leikur lA og Barcelona eru
enn til, en síðari leikir umferðar-
innar eru á dagskrá eftir viku.
Það væri ekki úr vegi að kynna
að litlu leyti þau lið sem keppa i
þessari merkilegu keppni.
• England. Nottingham Forest
keppir sem bikarhafi, en fyrir
hönd ensku deildarmeistara,
leikur Liverpool, sem Forest hirti
titilinn svo óvænt af í hitteðfyrra.
Liverpool hafði unnið þessa
keppni tvívegis í röð, áður en
Forest vann í vor. Bæði liðin þykja
því koma sterklega til greina sem
sigurvegarar að þessu sinni.
• Austurriki. Austria Vienna
vann austurrísku deildarkeppnina
með miklum yfirburðum, hafði 15
stig umfram næsta lið. Vínarliðið
þykir þó ekki ýkja sterkt, t.d.
tapaði liðið fyrri leik sínum gegn
Vejle frá Danmörku.
• Belgia. SK Beveren var eitt
þeirra liða sem hvað mest kom á
óvart í Evrópu. Sveitaliðið litla
vann sinn fyrsta Belgíutitil og
komst í undanúrslit Evrópukeppni
bikarhafa. Liðið er nú enn meðal
efstu liða í belgísku deildinni.
• Búlgaria. Levski Sofía er
fulltrúi þessa lands. Levski hefur
um árabil verið eitt sterkasta
félagslið Búlgaríu, t.d. leikur með
liðinu meira en helmingur lands-
liðsins.
• Tékkóslóvakia. Dukla Prag.
Sterkt lið, en þurfti þó betra
markahlutfall til að vinna titilinn
í hinni hörðu keppni í Tékkó-
slóvakíu.
• Danmörk. Vejle Boldklubb
varð danskur meistari og hafði
frekar lítið fyrir sigri sínum. Voru
danskir knattspyrnuáhugamenn
sárir hversu gæðin höfðu versnað
meðal danskra liða. Vejle vann þó
góðan sigur á austurrísku meist-
urunum í fyrri leik fyrstu umferð-
arinnar.
• Austur-Þýskaland. Dynamó
Berlín varð fyrsta Berlínarliðið til
að vinna titilinn fyrir austan
tjald. Liðið er yfirburðalið í
heimalandi sínu, en óþekkt stærð í
Evrópukeppninni.
• Frakkland. Racing Strass-
burg vann sinn fyrsta titil fyrr og
síðar.
• Grikkland. Hér var leiðinda-
hneyksli í gangi. AEK og Píreus
voru jöfn að stigum, en Píreus
neitaði aukaleik, þar sem þeir
töldu sig vera meistara og KSÍ
þeirra Grikkja væri að fara á bak
við þá með því að setja á úrslita-
leik. Knattspyrnusamband Grikk-
lands lýsti því AEK meistara, þar
sem Píreus neitaði að leika. Leið-
indamál.
• Ungverjaland. Hinar reyndu
kempur Ujpesti Dozsa unnu sinn
átjánda titil. Ávallt erfitt lið við
að etja sökum reynsiu sinnar í
Evrópukeppnum, svo að ekki sé
minnst á getu liðsins.
• írska lýðveldið. Dundalk er
eitt þessara liða, eins og þau
íslensku, sem aldrei kemur til
mála að komist langt í keppnum
þessum. En Dundalk sækir vel-
gengni sína á heimaslóðir og liðið
varð einnig bikarmeistari lýðveld-
isins að loknu síðasta keppnis-
tímabili.
• Ítalía. AC Mílanó rauf einok-
un Torínó-liðanna Turin og Ju-
ventus, svona rétt eins og ÍBV
rauf einokun ÍA og Vals. Kappinn
heimskunni Gianni Rivera hætti á
toppnum. ACM er geysiöflugt lið
og margir telja að það muni
berjast um æðstu verðlaun í
keppninni.
• Luxemburg. Red Boys Diff-
erdingen eru fulltrúar dvergríkis-
ins. Rauðu drengirnir unnu sinn
fyrsta Luxemborgartitil í 36 ár(!).
• Holland. Ajax er á uppleið á
nýjan leik eftir nokkur mögur ár
en liðið vann Evróputitil þennan
þrjú ár í röð meðan best lét og
voru þá kappar eins og Cruyff,
Rep og Neeskens á toppinum. Nú
er það Danatríó, Lerby, Arnesen
og Jensen, tveir blandaðir, Tah-
• Norður írland. Linfield vann
annan titil sinn á jafnmörgum
árum, sem og lið eins og Valur,
Dundalk, Rauðu drengirnir o. fl.
sækja leikmenn liðsins ekki sigra í
keppni þessa, en félagið græðir
pening.
• Pólland. Ruch Chorzow.
Vann skæðasta keppinaut sinn á
betra markahlutfalli. Pólsku
deildarliðin eru ekki eins sterk og
frammistaða landsliðsins hefur
gefið til kynna og pólsku félögin
gera yfirleitt smáa hluti í Evrópu-
keppnum.
• Skotland. Celtic varð
Evrópumeistari 1967, fyrst
breskra liða. Ekki er líklegt að
skoska liðið nái jafnlangt að þessu
sinni, a.m.k. verður liðið að spjara
sig betur heldur en í tapleiknum
gegn Albaníumeisturunum í fyrri
leik liðanna í Tirana.
• Spánn. Real vann spænska
titilinn af miklu öryggi og þykir
liðið líklegt til stórræðanna í
Evrópukeppninni, auk þess sem
það hefur þegar tekið forystuna í
spænsku deildarkeppninni í haust.
• Sviþjóð. Teitur Þórðarson og
félagar hans hjá Öster eiga erfið-
an leik fyrir höndum, sem er
heimaleikurinn i fyrstu umferð
gegn meisturunum sjálfum Nott-
ingham Forest. Öster tapaði að-
eins 0—2 í fyrri leiknum og þótti
tapið of stórt. Öster gengur ekkert
í Svíþjóð að þessu sinni, er í 7.
sæti og á varla möguleika á því að
hreppa Evrópusæti að ári.
• Sviss. Servette vann fjórt-
ánda titilinn í sögu félagsins.
Svissnesk lið eru ekki sterk og
Servette er ekki líklegt til afreka í
keppninni.
• Tyrkland. Skagamenn
þekkja gamla kunningja sína,
leikmenn Trabzonspor, sem slógu
ÍA út úr keppninni árið 1976.
Skagamenn léku einkum útileik-
inn mjög vel á sínum tíma, en
samanlagt skoraði ÍA þrívegis í
leikjunum tveim. Það þætti góður
árangur nú, Trabzonspor fékk
aðeins á sig 7 mörk í 30 leikjum í
tyrknesku deildarkeppninni síð-
ustu.
• Rússland. Dynamó Tiblisi á
nú góða möguleika á að slá út
Liverpool, eftir að hafa tapað
aðeins 1—2 á Anfield. Nokkrir
landsliðsmenn skipa sovéska liðið,
sem vann tvöfalt í heimalandi
sínu.
• Vestur-Þýskaland.
Hamburger vann sinn fyrsta titil í
19 ár og margir telja liðið sigur-
stranglegt í keppninni. Liðið skip-
ar nú fjórða sætið í þýsku „Búnd-
eslígunni", en er þó gífurlega
sterkt þegar best lætur. Spyrjiði
bara Valsmenn.
• Júgóslavia. Hadjuk Split,
góðkunningjar Keflvíkinga frá
1974. Split-liðið er geysilega
reynsluríkt í Evrópukeppnum og
sterkt eftir því. Liðið hefur þó
vantað herslumun til að vinna
svona keppni í gegnum árin,
kannski það komi nú.
• Albania. Lítið er vitað um
Patizan Tirana, albanska meist-
araliðið. Leikmenn liðsins sýndu
það hins vegar að gott getur verið
að vera óþekkt stærð, þegar Celtic,
mótherjinn í 1. umferð kom í
heimsókn, Celtic tapaði 0—1 og
var heppið að tapið varð ekki
stærra. Þeir virðast því kunna að
leika knattspyrnu í þessu dular-
fulla landi.
• ísland. Ekki má gleyma Völs-
urum, þó að ljóst sé að þeirra
göngu í keppninni er lokið. Það
þarf varla að minna á, að Valur
tapaði aðeins einu stigi í íslands-
mótinu í fyrra og er slíkur árang-
ur fáheyrður. Það hallaði undan
fæti í sumar og hvorki titillinn eða
bikarinn hafnaði í hillu að Hlíðar-
enda. Á næstunni verður liðið
síðan að leika aukaleik við í A um
hvort að það kemst í UEFA—
keppnina, þrautarlendinguna, að
ári.
Hinn 20. september hófst í Royal
Albert Hall I London fyrsta
keppnin i badminton þar sem
keppt var um peningaverðlaun.
Þetta var „Master of Badminton“
keppnin og meðal þátttakenda
voru nokkrir af bestu badmin-
tonspilurum heimsins, þó enginn
frá Indónesíu.
1 undanrásum var leikið i
tveimur riðlum ogi einliðaleik
karla unnu Morten Frost Hansen
Danmörku og Padukone Prakash
Indlandi sina riðla. Morten Frost
vann meðal annars Flemming
Delfs i riðlakeppninni og Prak-
ash vann m.a. Svend Pri Dan-
mörku og Thomas Kihlström
Sviþjóð. I úrslitum vann svo
Indverjinn örugglega i tveimur
lotum með 15—4 og 15—11.
Lena Köppen vann einliðaleik
kvenna. í riðlakeppninni vann hún
m.a. Atsuko Tokuda og Hiroe Yuki
sem báðar eru frá Japan og í
úrslitum vann hún sjálfan erki-
óvininn Gilian Gilks frá Englandi
með 12-10 og 11-4. Gilks hafði í
riðlakeppninni unnið m.a. Saori
Kondo Japan og Wendy Carter frá
Kanada.
í tvíliðaleik karla unnu Bengt
Fröhman og Thomas Kihlström
Svíþjóð þá Ray Stevens og Mike
Tredgett Englandi í úrslitum með
18—16 og 15—9 og í tvíliðaleik
kvenna unnu Jane Webster og
Nora Perry Englandi þær Atsuko
Tokuda og Yoshiko Yonekura Jap-
an með 15—2, 8—15 og 15—10.
Það sannaðist margt á þessari
keppni sem andstæðingar pen-
ingabadmintons höfðu óttast. í
fyrsta lagi var mótið ekki opið
heldur voru valdir keppendur í
það eftir geðþótta mótshaldar-
anna og í öðru lagi voru settir
saman menn í tvíliðaleik sem ekki
hafa spilað saman áður eins og t.d.
Flemmig Delfs og Morten Frost
sem urður síðastir í riðlinum í
tvíliðaleik. Þá má einnig geta þess
að þrátt fyrir að dönsku keppend-
urnir hafi unnið yfir 4 milljónir
króna í verðlaun þá eru þeir allir
áhugamenn ennþá. Þetta gerist á
þann hátt að það er viðkomandi
badmintonsamband sem fær pen-
ingana og notar þá til að standa
straum af að senda þetta fólk á
mót og til að greiða dagpeninga og
kostnað við æfingar. Ef svo eitt-
hvað er eftir af peningum þegar
viðkomandi hættir að taka þátt í
keppnum þá má sambandið greiða
honum þá og menn geta því unnið
sér inn stórfé sem áhugamenn.
Enn sem komið er eru það aðeins
nokkrir af bestu spilurum Eng-
lands sem eru orðnir atvinnum-
enn.
Blak
BLAKSAMBAND íslands heldur
A-stigs þjálfaranámskeið dagana
5.-7. október næstkomandi í
Reykjavík. Tilkynningar um
þátttöku berist til Alberts Valdi-
marssonar fyrir 1. október.
Breskir þjálfarar halda námskeiö
TVEIR breskir þjálfarar, annar í köstum og hinn í stökkum, munu
halda námskeið fyrir þjálfara dagana 3.—7. október næstkomandi.
Hafi einhverjir áhuga á að nema af gestum þessum, ber þeim að
tilkynna þátttöku sína á skrifstofu ÍSÍ.
• SK Beveren, Belgiumeistararnlr, er eitt þeirra sterku liða sem mun
reyna að krækja i bikarinn volduga.