Morgunblaðið - 26.09.1979, Qupperneq 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 26. SEPTEMBER 1979
w
Ráðstefna Kaupmannasamtaka Islands:
Mjöghefur dregið úr
þjónustu verzlana
úti á landi vegna auk-
ins rekstrarkostnaðar
ÞANN 25. þ.m. eengust Kaup-
mannasamtök íslands fyrir
ráðstefnu kaupmanna utan höf-
uðborgarsvæðisins, þar sem tekin
voru til umfjöllunar vandamál
dreifbýlisverzlana.
Á ráðstefnuna komu 27 kaup-
menn víðs vegar að af landinu.
Auk þess sat ráðstefnuna Guð-
mundur Einarsson, forstjóri
ríkisskips, sem gestur samtak-
anna og svaraði fyrirspurnum.
Mörg mál voru til umræðu á
ráðstefnunni og þar á meðal:
Birgðahald verzlana í dreifbýli,
flutningskostnaður, simakost-
naður, lánamál, starfsræksla
pöntunarfélaga sem fjármögnuð
eru af opinberu fé, rafmagns- og
olíuverð.
Á ráðstefnunni var samþykkt
eftirfarandi ályktun: Ráðstefnan
bendir á það alvarlega vandamál
sem skapast hefur vegna þess að
mörg smásölufyrirtæki í dreifbýl-
inu eiga nú við vaxandi rekstrar-
erfiðleika að etja.
Forsenda fyrir því að byggð
haldist úti um landið er að þar sé
haldið uppi fullnægjandi verzlun-
arþjónusta, sem byggist m.a. á því
að aðdráttarleiðir séu greiðar.
Mjög hefur dregið úr þjónustugetu
verzlana úti á landi vegna aukins
rekstrarkostnaðar og má þar m.a.
nefna hækkun rafmagnsverðs,
hækkun flutningskostnaðar og
ekki sízt gífurlega hækkun vaxta.
Bryndis IS 705.
Ljósm. Mbl.;
Nýr rækjubátur
á ísafirði
Ísaflrðl 25. sept.
NÚ FYRIR nokkrum dögum af-
henti skipasmiðastöð Marzeliius-
ar Bernharðssonar nýtt skip frá
stöðinni. Hlaut það nafnið
Bryndis l.S. 705 og er eigandi og
skipstjóri Finnbogi Jónasson á
ísafirði. Báturinn er 29,9 lestir,
smiðaður úr stáli og knúinn 365
h.a. Cummings-aðalvél. Báturinn
er mjög vel búinn tækjum við
aðalvél er 15 kw rafall en að auki
er 11 h.a. Ijósavél sem knýr 7 kw
rafal. Þá er skrúfubúnaður
tengdur aðalvél með Omegadrifi
og er það nýjung i islenska
fiskiskipaflotanum.
Dýptarmælir er frá Japan-
radío, þá er í bátnum fisksjá,
ratsjá, lóran og sjálfstýring svo
eitthvað sé nefnt. Báturinn er með
skutrennu og tveimur sérbyggðum
trollspilum afturá, þá er flot-
trollstromla aftanvert við brú.
Hægt er að gera að öllum afla
neðanþilja og er sérstakt aðgerð-
arpláss aftast í skipinu. í káetu
eru kojur fyrir fjóra og auk
venjulegrar eldavélar er örbylgju-
ofn í eldhúsi. Skipið er eins og fyrr
segir mjög vel búið og er aðstaða
öll góð fyrir skipverja.
Reiknað er með að báturinn fari
á hörpudisksveiðar þar til rækju-
veiðar hefjast í ísafjarðardjúpi, en
álitið er að þær hefjist um miðjan
október. Kaupverð skipsins er
eitthvað á þriðja hundrað milljóna
króna.
Úlfar.
„Aðeins hluti af
úrlausnarleiðinni ’ ’
— segir sjávarútvegsráðherra um hugmyndir
LÍÚ um 37 daga þorskveiðibann á næsta ári
„ÉG TEL það ákaflega brýnt nú
á næstu vikum og mánuðum, að
menn horfi ekki einungis á afl-
ann út árið heldur hvernig menn
ætla að haga nýtingu fiskstofn-
anna á næstu árum og að leitast
verði við að marka stefnuna til
langs tíma,“ sagði Kjartan Jó-
hannsson, sjávarútvegsráðherra,
er hann var inntur álits á sam-
þykkt LÍÚ þess efnis, að sam-
bandið væri ekki til viðræðu um
frekara þorskveiðibann á þessu
ári.
Þá var ráðherra inntur eftir
áliti hans á þeirri samþykkt LÍU,
að þorskveiðibann verði samtals
sett á í 37 daga á næsta ári. „Slíkt
bann gæti aldrei orðið nema hluti
af úrlausnarleiðinni, það verður
annað og meira að koma til,“ sagði
ráðherrann.
1 • • ■
■■ $ I ?|; 'j '& ' ]
Leiguskip Hafskips hf, m.v. Borre.
Nýtízku skip bætist
í flota Hafskips
30-40% ódýrari flutningar en með hefðbundnum skipum
HAFSKIP HF hefur tekið á
leigu norska flutningaskipið
m.v. Borre frá skipafélaginu
Fred. Olsen og kom skipið til
Reykjavíkur í gærmorgun.
Skipið er mjög nýtízkulegt að
öllum búnaði og markar koma
þess hingað þáttaskil í vöru-
flutningum að og frá íslandi að
sögn forráðamanna Hafskips,
en flutningar með því eru
30—40% ódýrari en með hinum
hefðbundnu skipum, sem sigi-
ingarnar stunda. Skipið hefur
verið leigt til eins árs og ef
reynslan af því verður góð mun
Hafskip taka systurskip þess,
m.v. Bomma, á leigu fyrir þrjá
mánuði. Leigusamningur varð-
andi skipin er til eins árs og er
kaupsamningur fyrir hendi ef
skipin reynast jafn vel og áætl-
að hefur verið og nauðsynleg
leyfi yfirvalda fást.
Hagkvæmni þessara skipa er
fyrst og fremst fólgin í hraðari
og jafnframt hagkvæmari losun
og lestun og minni olíukostnaði.
Það kom fram á blaðamanna-
fundi með forráðamönnum Haf-
skips hf í gær að íslenzki verzl-
unarskipaflotinn er orðinn úrelt-
ur að verulegu leyti. Þeir sögðu
ennfremur að ef Hafskip hf
innleiddi þessa nýju tækni nú
myndu önnur skipafélög vænt-
anlega fylgja í kjölfarið og
útkoman yrði því lægri farm-
gjöld þegar fram í sækti. Haf-
skip á í dag fimm skip, öll byggð
á árunum 1965—1967, og hefur
auk þess verið með fjölmörg
leiguskip í ferðum, mest 9 skip.
Er ætlunin að fækka leiguskip-
unum en skip félagsins verða
ekki seld fyrst um sinn a.m.k.
Flutningar Hafskips hf á þessu
ári munu væntanlega verða lið-
lega 100% meiri en í fyrra að
verðmætum talið og umtalsverð
aukning varð einnig milli áranna
1977 og ’78.
í fréttatilkynningu, sem af-
hent var á blaðamannafundinum
í gær, segir m.a.:
„Þeirri skoðun vex ört fylgi, að
íslenski verslunarskipaflotinn
hafi úrelst og ekki hafi verið
gætt nægrar fyrirhyggju í
tengslum við þá endurnýjun,
sem átt hefur sér stað á áratugn-
um.
Á undanförnum árum hafa
miklar vonir verið byggðar við
svokölluð RoRo skip. Þessi skip
henta við vissar aðstæður, en
standast að öðru jöfnu ekki
samkeppni á lengri flutninga-
leiðum. Er það aðallega tilkomið
vegna verri nýtingar. Skip þess-
arar sérstöku tegundar eru því
ekki talin eiga framtíð fyrir sér í
íslandssiglingum.
Að undangenginni ítarlegri
athugun Hafskips hf og með
hliðsjón af samsetningu vöru-
flutninga til landsins hefur svo-
kölluð „Flex/multi-purpose carr-
iage“ gerð orðið fyrir valinu.
Þessi fjölhæfu skip eru í senn
búin eiginleikum bretta, gáma
og RoRo skipa með opnanlegum
skut, akstursbrú og tveimur
hliðar-vörulúgum, 4x5 metrar
hvor að stærð.
Skip það, sem félagið hefur nú
gert leigusamning um og stend-
ur til boða að kaupa, M/V
„BORRE", er eitt af átta syst-
urskipum, sem Fred. Olsen fé-
lagið í Noregi lét byggja á árum
í kringum 1970.
Vöktu þau mikla athygli sem
framúrstefnu skip, og eru enn í
dag talin með fullkomnustu
skipum sinnar tegundar.
Helstu kostir þessara skipa
eru, að þau eru ekki háð hafnar-
aðstöðu, eins og RoRo skipin, og
skapa mikinn sparnað við lestun
og losun. Er losunarhraði milli
tvisvar og þrisvar sinnum meiri
en í eldri hefðbundnum skipum,
auk þess sem vörumeðferð batn-
ar.
Vörudekk í skipinu eru sam-
tals um 2600 m2 og getur skipið
t.d. rúmað 400—600 bifreiðar
eftir stærð."
Stjórnendur Hafskips hf á skutbrú m.v. Borre ásamt yfirmönnum
skipsins, sem eru norskir. Stjórnendur fyrirtækisins eru, talið frá
vinstri: Ragnar Kjartansson, Björgólfur Guðmundsson og Einar
Hermannsson. Ljóem. mm. ól. K. M»*.