Morgunblaðið - 26.09.1979, Side 17
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 26. SEPTEMBER 1979
17
„Afleiðing af óstjórninni í landiniT
MORGUNBLAÐIÐ hefur leitað
álits þriggja þingmanna Sjálf-
stæðisflokksins i Reykjavík og
á Reykjanesi, en í þessum þétt-
býliskjörnum eru flestir neyt-
endur í landinu, — og spurði
blaðið þingmennina hvað þeir
vildu segja um það mál, sem nú
er hvað mest til umræðu manna
á meðal, þ.e. hækkun landbún-
aðarvara. Sjónarmið ráðherra,
fulltrúa launþega og fjórða
stjórnarandstöðuþingmanns-
ins, Pálma Jónssonar, hafa áð-
ur birzt hér i blaðinu. Svör
stjórnarandstöðuþingmann-
anna þriggja fara hér á eftir:
Neytendur eru orönir
œriö þreyttir
Ragnhildur Helgadóttir
hafði þetta að segja:
— Heimilin í landinu urðu
enn á ný fyrir miklum búsifjum
af völdum rangrar efnahags-
stefnu ríkisstjórnarinnar, er
landbúnaðarvörur hækkuðu í
verði meira en menn rekur
minni til.
— Ríkisstjórnin, sem mynduð
var til að vinna GEGN verðbólg-
unni, gerir hvað eftir annað
ráðstafanir, sem AUKA verð-
bólguna og hækkun búvöru-
verðsins er ein afleiðingin. Svo
er komið, að fólk getur engar
skynsamlegar áætlanir gert
fram í tímann um heimilisrekst-
ur sinn, því að enginn veit
stundinni lengur hvað hlutirnir
kosta og kemur þetta sérstak-
lega illa við ungt fólk, sem er að
byrja búskap.
— Menn velta því fyrir sér,
hvort lausnarorðið liggur í bein-
um samningum bænda við ríkis-
stjórnina. Illa trúi ég því, að
frjálsir bændur kæri sig um það
og verði þannig með nokkrum
hætti starfsmenn stjórnarinnar.
Fráleit var sú hugmynd land-
Leitað álits
þriggja þing-
manna stjórn-
arandstöðunnar
á hækkun
landbúnaðar-
varanna
búnaðarráðherra að ætla sér að
koma slíku á með bráðabirgða-
lögum.
— Hitt er ljóst, að sjálfur
grundvöllurinn, sem 6 manna
nefndin byggir verðákvörðun bú-
vöru á, er orðinn hæpinn; annars
vegar vegna þess, að hann er
sjálfvirk afleiðing efnahags-
stefnu ríkisstjórnarinnar, sem
fer síversnandi, og hins vegar
vegna þess, að þar koma lítið
sem ekki við sögu lögmál hins
frjálsa markaðar, þ.e. framboðs
vörunnar og eftirspurnar neyt-
andans. Neytendur eru orðnir
þreyttir á því, sem oft gerist, að
birgðum búvara sé safnað hjá
seljendum til að geta haldið
verðinu háu og eins hinu að
standa undir óarðbærri fram-
leiðslu, óskynsamlegum bú-
rekstri og meðlögum með kjöti
handa fólki í öðrum löndum.
Sökin liggur
hjá ríkisstjórninni
Ellert B. Schram hafði þetta
að segja:
— Oánægja neytenda vegna
hækkunar landbúnaðarvara er
gífurleg. Hún beinist ekki að
bændum, heldur að ríkisstjórn,
sem hefur beinlínis stuðlað að
þessum verðhækkunum. Þetta er
því alvarlegra þegar það er haft
í huga, að afleiðing af þessum
verðhækkunum verði stórhækk-
un á útflutningsbótum og þá
væntanlega niðurgreiðslum, sem
nemur milljörðum króna, en
hvorugt verður tekið öðrivísi en
með aukinni skattheimtu á al-
menning.
— Flestir skilja, að bændur
verða að fá sínar launahækkanir
eins og aðrar stéttir. Hjá því
verður ekki komizt, en verðlagn-
ing á landbúnaðarvörum er ekk-
ert annað en launagreiðsla til
bændanna. Traust stjórn á efna-
hagsmálum í landinu hefði gert
þessa búvöruverðshækkun
,óþarfa, vegna þess að gífurlegar
hækkanir á búvörunni og verð-
laginu almennt er afleiðing af
óstjórninni í landinu. Hækkunin,
sem nú hefur gengið yfir, er
aðeins enn ein staðfestingin á
því, hversu vanmáttug ríkis-
stjórnin er að ráða við víxlhækk-
anir launa og verðlags, verðbólg-
una og efnahagsmálin yfirleitt.
— Það er algjörlega þýð-
ingarlaust fyrir stjórnarflokk-
ana að kenna einhverju fyrir-
komulagi, verðlagskerfi eða lög-
um um þessa hækkun. Sökin
liggur hjá ríkisstjórninni sjálfri,
því hún hefur ekki náð neinum
tökum á verðbólgunni, sem leiðir
slíkar verðhækkanir af sér.
— Karp um breytingar á lög-
um, um sex-manna nefnd eða
beina samninga við bændur er í
rauninni aukaatriði. Ég sé ekki
að beinir samningar ríkisvalds-
ins við bændur leysi neinn
vanda, nema það sé hugsað til að
draga úr réttmætum launa-
hækkunum til bændastéttarinn-
ar til samræmis við hækkanir á
launum annarra stétta. Við út-
reikninga sex manna nefndar-
innar mun vera tekið tillit til
aukinnar fóðurnotkunar og
hækkana á töxtum járniðnað-
armanna. Þetta er vafasamt í
meira lagi, en ræður þó engum
úrslitum. Hækkunin hefði engu
að síður orðið mjög mikil og
tilfinnanleg. Breytingar á verð-
lagskerfi landbúnaðarins eru
óhjákvæmilegar, en þá aðeins
sem liður í róttækri breytingu á
stjórn efnahags- og verðlags-
mála. Það er borin von að þessi
ríkisstjórn standi fyrir slíkum
breytingum.
— Það sem skiptir megin máli
er að við völd í landinu sé
ríkisstjórn, sem taki efnahags-
málin einhverjum tökum en fari
frá ella. Neytendum blöskrar
hækkunin á búvörunum, eins og
þeim blöskranjnúorðið allt sem
snertir almenna stjórn í landinu.
Þess vegna er það stærsta hags-
munamál neytenda og alls al-
mennings að þessi ríkisstjórn
fari frá og það sem fyrst.
Bændur ákveói
sjálfir verdið
ólafur G. Einarsson hafði
þetta að segja:
— Mér finnst, að fyrst lögun-
um hafði ekki verið breytt áður
en búvöruverðið var ákveðið,
hafi ekki verið um annað að
ræða en að láta þessar hækkanir
ganga i gildi. En menn athugi,
að orsakanna fyrir þessum
geigvænlegu hækkunum er að
leita hjá ríkisstjórninni, sem
ekkert hefur gert til þess að
lækka verðbólguna; — þar eru
orsakirnar fyrir þessum hækk-
unum, ekki aðeins á þessu sviði
heldur öllum öðrum líka. Þessi
hækkun á landbúnaðarvörunum
kemur ofan á hækkun söluskatts
og vörugjalds, sem eru nýjustu
dæmin um skattaæði þessarar
ríkisstjórnar. Þar til viðbótar
má svo nefna sífelldar hækkanir
á bensíni og öðrum olíuvörum.
— Ég hef ekki sannfæringu
fyrir því, að taka eigi upp beina
samninga milli bænda og ríkis-
valdsins eins og uppi eru hug-
myndir um. Ef ekki er möguleiki
á að koma á hliðstæðu kerfi og
við fiskverðsákvörðun, sýnist
mér eðlilegast að bændur ákveði
sjálfír verð á sínum framleiðslu-
vörum, eins og t.d. kjúklinga-
bændur gera nú.
— Mér skilst, að frestunin á
hækkun landbúnaðarvaranna
hafi kostað bændur nokkur
hundruð milljóna króna. Nú
skilst manni, að þessa upphæð
eigi að greiða úr ríkissjóði. Hvar
á að taka þá peninga? Má búast
við frekari skattlagningu til þess
að standa undir því?
Dr. Buckminster Fuller:
Ibúar „geimstöðvarmnar Jarö-
ar”vttja oftgleyma hvertstefhir
HÚSFYLLIR var í Menningarstofnun Bandaríkjanna við Neshaga í fyrrakvöld er dr.
Buckminster Fuller hélt þar fyrirlestur um kenningar sínar á sviði heimspeki og
byggingarlistar. Dr. Buckminster, sem er 84 ára, er einkum þekktur fyrir sérstaka
tegund hvolfþaka, en einnig hefur hann vakið athygli vegna kenninga sinna um
stærðfræði. Hefur honum verið lýst sem einstaklingi sem stendur fyrir utan öll
viðurkennd samfélagskerfi, brjóstvitsmanni, sem haft hefur það að ævistarfi að miðla
kenningum sínum í ræðu og riti.
Rauði þráðurinn í fyrirlestri dr. veröldina nýjum augum, þ.e. að
Buckminsters Fullers var tilraun líta á hana sem eina heild. Hann
hans til að fá fólk til að líta sagði að nú skynjaði fólk raun-
Ljósm. Mbl. ól.K.M.
Húsfyllir var i Menningarstofnun Bandarikjanna við Neshaga er dr.
Buckminster Fuller flutti fyrirlestur þar í fyrrakvöld. Hátt á þriðja
hundrað manns sóttu fundinn og urðu margir að láta sér það lynda að
sitja á gólfinu. Fremstur á þessari mynd er dr. Buckminster Fulier.
veruleikann betur en í upphafi
aldarinnar. Á æskuárum sínum
hefði það eitt talizt raunverulegt
og máli skipta, sem hægt var að
þreifa á. í dag væri það hins vegar
svo, að 99,9% þess, sem einhverju
skipti, væri ósýnilegt, í formi alls
kyns tækni, öreinda, bylgna
o.s.frv. Við vissum, að þessir
hlutir væru til þar sem okkur
hefði verið sagt af þeim, en
hefðum engar sannanir fyrir að
svo væri. Hann sagði að maðurinn
væri eina veran í veröldinni sem
ekki væri búin einhverjum sér-
stökum tækjum, t.d. klóm o.þ.h.,
en hefði hins vegar fengið þróaðan
heila til þess að geta tileinkað sér
ýmis tæki í kringum sig.
Sagði dr. Buckminster, að af
þessum sökum hefðu íbúar
„geimstöðvarinnar Jarðar" oft
viljað gleyma hvert stefndi, af
hverju og hvers vegna. Lýsti hann
trú sinni á tæknina, sem hann
taldi að ætti eftir að leysa öll
vandamál, t.d. á sviði matvæla-
framleiðslu og skorts. Allir mögu-
leikar væru á að bæta afkomu
hinna fátæku til jafns við þá ríku
með þeim auðlindum og þeirri
tækni sem væri fyrir hendi, og að
gera mætti ráð fyrir því að
tækninni ætti eftir að fleygja enn
meira fram. Sagði dr. Buckminst-
er að hægt væri að læra af
náttúrunni, sem gerði sem mest af
sem minnstu. Nefndi hann að
mikið lægi að baki tækninni í dag,
t.d. að 5,000 teikningar þyrfti við
smíði fólksbifreiðar, og 35,000
teikningar við smíði þotu af gerð-
inni Boeing-747.
Leggja ætti
landamæri niður
I ræðu sinni sagði dr. Buck-
minster Fuller að leggja ætti
niður öll lönd sem pólitískar
einingar, svo og öll landamæri,
þannig að heimurinn yrði
skoðaður sem ein heild. Sagði
hann í þessu sambandi, að landa-
mæri lýstu aðeins árásarhneigð
einstaklinga. Fullt væri af fólki í
öllum löndum er ekki vildi fara í
stríð.
Dr. Buckminster Fuller fjallaði
einnig um kenningar sínar í
stærðfræði. Hefur hann tekið upp
líkanið sem ýtt var til hliðar úr
stærðfræðinni fyrir einni öld.
Sagði dr. Buckminster, að eins og
stærðfræðin væri iðkuð í dag væri
hún full af öfgum og á villigötum.
Aðeins fáir skildu stærðfræðina.
Teningurinn og ferningurinn
hefðu ekkert form, heldur væri
einfaldasta og minnsta byggingar-
lagið þríhyrningur, og í því sam-
bandi skírskotaði dr. Buckminster
til gerðar kjarnasýra.
Einnig útlistaði dr. Buckminst-
er Fuller byggingarfræði geo-
desískra húsa sem hann fann upp
og víða hafa verið tekin í notkun,
einkum sem trefjaglerkúlur yfir
radarskerma á stöðum þar sem
hús verða að standast mikil veður,
t.d. á Fuji-fjalli í Japan. Hönnun
húsanna gerði það að verkum að
þau stæðu af sér fellibylji og þyldu
margfalt meiri sviptingar en stál-
hýsi er gerð væru með hefðbundn-
um hætti. Við hönnun geodesísku
húsanna væru tog- og þrýstikraft-
amir í náttúrinni nýttir til fulln-
ustu.
Á fyrirlestrinum kom fram að
dr. Buckminster Fuller hefur farið
45 sinnum umhverfis jörðina á
fyrirlestrarferðum sínum undan-
farin 52 ár. — ágás.