Morgunblaðið - 26.09.1979, Page 14
14
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 26. SEPTEMBER I979
Sendi öllum vinum og ættingjum, fjær og nær mínar
innilegustu kveöjur og þakkir, sem glöddu mig meó
nærveru sinni, m. gjöfum, blómum og skeytum á
sjötugsafmæli mínu.
Lifiö heil,
Viggó Loftsaon.
ansskóli
Innritun og uppl. í síma 27613.
rðar
nar
Reykjavík - Kópavogur
Innritun daglega kl. 10—12 og 1—7.
Börn — Unglingar — fullorðnir (pör eöa eínstakl.).
Allir almennir samkvæmisdansar og fl. Kennt m.a.
eftir „ALÞJÓÐADANSKERFINU" einnig fyrir
BRONS — SILFUR — GULL D.S.Í.
ATH.: Kennarar í Reykjavík og Kópavogi
Siguröur Hákonarson og
Anna María Guönadóttir.
DANSKENNARASAMBAND ÍSLANDS
óskar eftir
blaðburðarfólki
Austurbær:
Laugavegur frá 101 — 171
Flókagata frá 1—47.
Flókagata frá 51—69.
Vesturbær:
Skerjafjörður
sunnan flugvallar II
Uppl. í síma 35408
Nýtt verð á síld til söltunar:
Heildarverð hráefnis
að meðtöldu olíuverði
hækkar um 50 %
Yfirnefnd Verðlagsráðs sjávar-
útvegsins ákvað nýtt lágmarks-
verð á síld til söltunar frá byrjun
vertíðar til 30. september n.k. á
fundi sínum i gærmorgun. Með
hinu nýja verði hækkar lág-
marksverð til skipta um 32%,
verð til sjómanna að meðtöldu 3%
oliugjaldi hækkar um 36%, heild-
arverð hráefnis, er saltendur
greiða til útgerðar að meðtöldu
15% oliugjaldi, hækkar um 50%.
Verðið var ákveðið af oddamanni
og fulltrúum seljenda gegn at-
kvæðum fulltrúa kaupenda.
Hið nýja lágmarksverð er eftir-
farandi: A) Síld, 33 sm og stærri,
hvert kíló 124 krónur, en var áður
93 krónur kílóið. B) Síld, 30—33
sm, hvert kíló 85 krónur, en var
áður 65 krónur kílóið. C) Síld,
27—30 sm, hvert kíló 64 krónur, en
var áður 49 krónur kílóið. D) Síld,
25—27 sm, hvert kíló 54 krónur, en
var áður 37 krónur kílóið.
Stærðarflokkunin framkvæmist
af Framleiðslueftirliti sjávaraf-
urða.
Verðið er miðað við síldina upp
til hópa komna á flutningstæki við
hlið veiðiskips og skal síldin vegin
íslaus.
Auk verðsins, sem að framan
greinir, skal lögum samkvæmt
greiða fyrir síldina 3% olíugjald,
sem kemur til skipta, og 12%
olíugjald auk 10% gjalds til Stofn-
fjársjóðs fiskiskipa, sem kemur til
skipta. Söltunarstöðum ber þann-
ig á grundvelli þessarar verð-
ákvörðunar að greiða til veiði-
skipa eftirfarandi heildarverð og
skiptaverð: A) Heildarverð á síld,
33 sm og stærri, verði 155 krónur
hvert kíló, en skiptaverð 127,72
krónur. B) Heildarverð á síld,
30—33 sm, verði 106,25 krónur
hvert kíló, en skiptaverð 87,55
krónur. C) Heildarverð á síld,
27—30 sm, verði 80,00 krónur
hvert kíló, en skiptaverð 65,92
krónur. D) Heildarverð á síld,
25—27 sm, verði 67,50 krónur
hvert kíló, en skiptaverð 55,62
krónur.
I yfirnefndinni áttu sæti: Ólafur
Davíðsson, sem var oddamaður,
Kristján Ragnarsson og Tryggvi
Helgason af hálfu seljenda og Jón
Þ. Árnason og Margeir Jónsson af
hálfu kaupenda.
Morgunblaðið sneri sér til nokk-
urra þeirra, sem hlut eiga að máli,
og innti þá eftir áliti þeirra á hinu
nýja verði. Fara svör þeirra hér á
eftir:
Hækkunin ekki meiri en búast
mátti við
„Það er ekki mikið um þetta
nýja verð að segja, það hefur
einfaldlega fengist meirihluti fyr-
ir ákveðnu lágmarksverði á síld til
söltunar. Hækkunin er ekki meiri
en búast mátti við sé höfð hiiðsjón
af verðlagsþróun frá því að síldar-
verð var síðast ákveðið í septem-
ber á s.l. ári,“ sagði Kjartan
Jóhannsson, sjávarútvegsráð-
herra.
„Hins vegar er það ljóst, að
hækkanir á þessu sviði eru bundn-
ar ákveðnum vandamálum með
tilliti til mafkaðsaðstæðna og
markaðsþróunar," sagði Kjartan
ennfremur.
Þá var ráðherrann spurður að
því hvers vegna verðið væri aðeins
ákveðið til mánaðamóta. „Sú
ákvörðun er í fullu samræmi við
þær venjur sem gilda, þetta er
aðeins septemberverð. Það verður
svo tekin ákvörðun um nýtt verð
frá og með 1. október n.k.“
„Við getum nú varla verið að
kvarta“
„Við getum nú varla verið að
kvarta þar sem þetta var afgreitt
með okkar atkvæðum og odda-
manns nefndarinnar," sagði
Tryggvi Helgason fulltrúi sjó-
manna.
Sjómenn fá nú 36% hækkun frá
því verði sem var í september á
síðasta ári, að meðtöldu olíugjald-
inu, en útgerðarmenn fá 12% með
olíugjaldinu.
Halda sjómenn sínum hlut mið-
að við aðra með þessari verðhækk-
un? „Nei, að mínu viti gera þeir
það ekki, sé'miðað við þá hækkun
sem orðið hefur í þjóðfélaginu, að
viðbættri gengislækkuninni sem
orðin er. Þá má geta þess að þessi
verðhækkun er eins konar forspil
að nýjum samningum eftir mán-
aðamót, því þetta verð er miðað
við 30. september. Það gerir okkur
auðveldara fyrir í komandi samn-
ingum,“ sagði Tryggvi.
Hverjar voru ykkar kröfur í
upphafi? „Þær voru 38% hækkun,
þannig að segja má, að það hafi
verið gengið að þeim að mestu,"
sagði Tryggvi að síðustu.
„íhugum hvort við söltum, eða
menn hreinlega gefast upp“
„Hljóðið í okkur síldarkaup-
endum er langt frá því að vera
gott. Við erum ansi hræddir um að
þessi verðlagning verði okkur
erfið," sagði Margeir Jónsson full-
trúi kaupenda. „Við höfum þegar
kallað saman fund í Félagi síldar-
saltenda á morgun þar sem vænt-
anlega verður tekin ákvörðun um
hvort við reynum að salta upp á
þessi býti eða hvort menn hrein-
lega gefast upp,“ sagði Margeir
ennfremur.
Nú var að mestu orðið við
kröfum seljenda. Hversu langt
tölduð þið ykkur getað gengið?
„Við gátum auðvitað engan veginn
gengið að þessu verði. Það munar
a.m.k. 10% á því og því verði sem
við töldum okkur hæst geta greitt.
En erfiðasti þátturinn í þessu er
auðvitað þetta olíugjald, sem er
15% ofan á allt annað, en af því
fara 3% til sjómanna og 12% til
útgerðarinnar. Að auki er svo
gjald til Stofnfjársjóðs fiskiskipa
upp á 10%,“ sagði Margeir.
„Tiltölulega ánægðir með lyktir
málsins“
„Við erum búnir að halda fund
um málið og þar var einróma
samþykkt að fara á sjó, og við
erum tiltölulega ánægðir með
lyktir málsins, þó verðið sé auðvit-
að bara ákveðið til næstu mánaða-
móta. Hvað þá tekur við, vitum við
auðvitað ekkert um, þá eru allir
endar lausir, síldarverð, almennt
fiskverð og olíugjaldið," sagði Jón
Sveinsson talsmaður útvegs-
manna á Hornafirði en útvegs-
menn þar höfðu neitað að róa fyrr
enn nýtt verð lægi fyrir. Hann
sagði ennfremur, að bátar hefðu
um það bil verið að fara til veiða
um miðjan dag í gær.
SINDRA
STALHF
Fyrirliggjandi í birgðastöö
STANGAJÁRN
Fjölbreyttar stæröir og þykktir
SÍVALT JÁRN
FLATJÁRN
VINKILJARN
L.
ferkantað járn
□
Borgartúni 31 sími27222