Morgunblaðið - 26.09.1979, Qupperneq 11
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 26. SEPTEMBER 1979
11
Konur íRamma
Leikfélag Reykjavíkur:
KVARTETT
— Dusa, Fish, Stas & Vi.
Sjónleikur eftir Pam Gems.
Þýðandi: Silja Aðalsteinsdóttir.
Leikstjóri: Guðrún Ásmundsdóttir.
Leikmynd og búningar:
Guðrún Svava Svavarsdóttir.
Leiktónar: Gunnar Reynir Sveinsson.
Lýsing: Daníel Williamsson.
MEÐAN á sýningu Kvartetts
stendur fáum við öðru hvoru að
sjá myndir eftir Edward
Kienholz og fleiri listamenn,
óhugnanleg verk um vélrænan
og firrtan heim nútímamanns-
ins. Þessar myndir ásamt
áhrifaríkum leiktónum Gunn-
ars Reynis Sveinssonar undir-
strika myrkan boðskap höfund-
Lelkllst
Kvartett: Hanna Maria Karlsdóttir (Violet), Ragnheiður Steindórs-
dóttir (Stas), Guðrún Alfreðsdóttir (Dusa) og Sigrún Valbergsdótt-
ir (Fish).
cftir JÓHANN
HJÁLMARSSON
arins. Það gera aftur á móti
ekki þokkafull leiktjöld Guð-
rúnar Svövu Svavarsdóttur.
Fjórar konur búa saman og
hafa allar við vanda að glíma.
Dusa og Fish eiga í stríði við
óstýriláta karlmenn. Stas hefur
snúið sér að vændi. Violet er
rugluð. Kvartett bregður upp
myndum úr sambúð sem líklega
er ekki óalgeng. Líf kvennanna
er ekki brotið til mergjar heldur
fær áhorfandinn að geta í eyður
og mynda sér skoðun á þeim.
Samtöl eru hverdagsleg, ekki
hlaðin mikilli leikrænni spennu.
Höfundurinn vill vera raunsær,
lýsa venjulegu fólki, sleppir því
að skapa hetjur eða einhverja
ákveðna aðalpersónu.
Fremur hljóðlátt líf sviðsins
með dálitlum uppákomum inn á
milli vekur trúnað. Allt er í
jafnvægi innan ramma verks-
ins. Þegar alvaran nær hámarki
gerist það ekki óvænt heldur
eins og sjálfsögð framvinda í
verkinu. Það sannar að Pam
Gems er enginn viðvaningur í
leikritun, hún kann mál sviðs-
Sviðsmynd úr Kvartett.
ins, segir það sem hún vill segja
að því er virðist áreynslulítið.
Kvartett geldur þess kannski
að fólk er orðið þreytt á þessum
eilífu vandamálaverkum sem
kvennaárið hleþpti af stað. Um-
ræðan er farin að verða eins og
slitin flík. Fólk hefur að vísu
gott af að kynnast þessum
konum þótt ekki sé til annars en
að rifja upp ýmis grundvallar-
atriði mannlegs lífs, sjá enn á
ný hvernig manneskjur eru
leiknar eða láta leika sig.
Guðrún Ásmundsdóttir leik-
stjóri kýs einfalda leið að marki
og nær greinilega tilgangi sín-
um. Leikkonurnar fjórar túlka
kynsystur sínar af glögg-
skyggni. Mest kvað að Ragn-
heiði Steindórsdóttur í hlut-
verki Stas. Guðrún Alfreðsdótt-
ir sem er Dusa brást ekki í
túlkun þessa að mörgu leyti
vandmeðfarna hlutverks. At-
hygli vakti leikur Sigrúnar Val-
bergsdóttur í hlutverki Fish,
persónusköpun hennar var
mannleg og hlý. Hanna María
Karlsdóttir fær mörg tækifæri
til að stela senunni og nýtir þau
vel. Violet hennar var í nánum
tengslum við áhorfendur.
Um þýðingu Silju Aðalsteins-
dóttur er ekkert nema gott að
segja.
Það er ef til vill djarft tiltæki
hjá Leikfélagi Reykjavíkur að
hefja leikárið á þessari sýningu.
En það er rétt stefna að fara
hægt af stað. Mér þykir þessi
sýning boða gott því að það er
nokkurs virði þegar valið er til
sýninga erlent verk sem á er-
indi við okkur, en ekki fyrst og
fremst verið að rækja skyldur
við hefðir eða höfunda.
Sjáið Kvartett.
Chevrolet Malibu
Þaó má lengi gera góóan bíl betri
og nú hefur Chevrolet leikiðþaó
einu sinni enn
í sparaksturskeppni B.Í.K.R. í mat s.l.
mældist Malibu eyða 12.16 litrum af
bensini á 100 kilómetrum. Þetta erathygl-
isverð útkoma nú á tímum síhækkandi
bensínverðs.
12.16 lítrar á hundraðið
En það er fleira sem gerir Chevrolet
Malibu eftirsóknarverðan. Tæknilegur
búnaður, aksturseiginleikar, rými og ytri
glæsileiki ásamt góðri endingu og lágum
viðhaldskostnaði eru þeir kostir sem
íslenskir bílakaupendur láta í vaxandi
mæli ráða vali sínu.
Næst velur þú Malibu, eins og hundruðir
ánægðra Malibueigenda hafa gert á
undan þér. Til afgreiðslu strax.
Sýningarbílar.
Malibu Classic 2 dr.
El Camino.
Malibu Classic 4 dr.