Morgunblaðið - 18.02.1979, Qupperneq 28
28
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDÁGUR 18. FEBRÚAR 1979
Auður Torfadóttir var skip-
aður lektor í ensku við Kenn-
araháskóla íslands árið 1978,
en hún hefur starfað við stofn-
unina frá þvi' árið 1967. Er hún
var spurð um tilhögun ensku-
kennslunnar í skólanum, sagði
hún a cnskan væri þar aðeins
kennd sem valgrein.
„I kennslunni er leitast við að
koma að þeim þáttum, sem að
mestu gagni geta orðið fyrir
enskukennara á grunnskóla-
stigi. Jaequeline Hannesson,
námsstjóri í ensku á grunn-
skólastigi annast þann hluta
kennslunnar, sem snýr að
hagnýtu skólastarfi, en hún er
jafnframt kennari við Æfinga-
skólann. Þarna skapast því bein
tengsl við grunnskólann, en það
tel ég mjög nauðsynlegt."
„Aðbúnaður til enskukennslu
hér í skólanum er mjög lélegur.
Tækjakostur er hér ákaflega rýr
og þurfum við að senda nemend-
ur í málþjálfun í málaver Há-
skóla íslands. Ennfremur erum
við á hlaupum um allt húsið með
nemendahópa, því við höfum
engan fastan samastað fyrir
enskukennsluna. Það hefur lengi
staðið til að hafa sérkennslu-
stofu fyrir erlendu málin, en
húsnæðisskortur leyfir ekki
slíkan munað."
„Okkur dreymir nú um að fá
málaver, sem þá væri hægt að
nota bæði fyrir ensku og
dönsku."
„Meira notað af
hjálpargögnum viö
kennsluna nú
en áöur“
„Enskukennslan í grunnskól-
anum hefur breyst mjög mikið á
undanförnum árum. í æ ríkari
mæli er farið að nota ýmis
hjálpargögn, svo sem hljómplöt-
ur, segulbönd og kvikmyndir,
þannig að nemendur heyra
miklu meira af talaðri ensku í
kennslustundunum en áður tíðk-
aðist. Vaxandi áhersla er lögð á
að nemendur geti skilið málið og
tjáð sig á því. Vegna þessara
breytinga þurfa kennaranemar
að fá miklu þjálfun í að nota
málið áður en þeir fara út í
kennslu, en það háir okkur mjög
hversu tækjakostur er lélegur í
því tilliti."
„Nauðsynlegt er að
búa vel að
æsku landsins“
Aðspurð um stöðu skólans í
þjóðfélaginu sagði Auður að
með stofnun Kennaraháskóla
Islands hafi draumur margra
ræst. Nú væri hins vegar svo
komið að þessi unga stofnun
ætti í vök að verjast og væri
vegið að henni úr ýmsum áttum.
„Eins og fram hefur komið í
fréttum að undanförnu hefur
Rætt við Auði
„ Ungt fólk
hefuráhuga
á kennara-
starfinu ”
Torfadóttur lektor í ensku
komið til umræðu að leggja
Æfingaskólann niður. Það er
mjög alvarlegt mál ef þarna á að
klippa á þráðinn og gera að engu
samstarf Kennaraháskólans og
Æfingaskólans um árabil. Mér
finnst það gersamlega óskiljan-
legt hvernig ráðamönnum dett-
ur í hug að ætla að leggja niður
þennan skóla, sem á undanförn-
um árum hefur komið fram með
ýmsar nýjungar og unnið hefur
að mjög merkilegum tilraunum í
þágu alls skólastarfs í landinu."
„Það má líka bæta því við að
samkvæmt því sem fram hefur
komið er hugmyndin sú að
Kennaraháskólinn fái afnot af
húsnæði Æfingaskólans. Þetta
er engin lausn, þar sem þetta
húsnæði hentar engan veginn,
því það sem okkur vantar er
m.a. aðstaða fyrir handavinnu-
deildirnar og fyrirlestrasalir, en
engir slíkir eru fyrir hendi í því
húsnæði, sem Kennaraháskól-
inn hefur nú til umráða."
„Ég hef alla tíð furðað mig á
því áhugaleysi og virðingarleysi
sem yfirvöld og raunar almenn-
ingur hefur sýnt kennarastarf-
inu og kennaramenntuninni.
Það er til dæmis mjög rótgróin
hugmynd að í rauninni geti hver
„Kristinfræðikennslan hefur
breyst töluvert að undan-
fÖrnu,“ sagði séra Ingóifur
Guðmundsson kennari í kristn-
um fræðum við Kennara-
háskóla íslands er hlm.
Morgunbiaðsins ræddi við
hann fyrir stuttu.
„Hér við skólann hefur verið
kennsla í biblíufræðum, kirkju-
sögu og trúarbragðafræðum og
var venjan að kenna þetta allt á
fyrsta námsárinu. Nú hefur
þessu verið breytt þannig að
kirkjusagan er kennd á fyrsta
ári, en biblíufræði og trúar-
bragðasaga á þriðja ári og gefst
það vel. Til viðbótar við þetta
hefur svo verið boðið upp á
kristin fræði sem valgrein og
eru fyrstu hóparnir í þeirri
grein á öðru árinu, svo ekki er
komin mikil reynsla á þann
þátt.“
„Að mínu mati er aðstaðan til
kristinfræðfkennslu að mörgu
leyti góð hér við skólann. Það er
til dæmis mjög þægilegt að hafa
aðgang að Kirkju Óháða
safnaðarins sem er hér alveg á
lóðinni. Þessi kirkja er ágætlega
búin og vel fallin til helgihalds
og tónlistariðkunar. Að öðru
leyti líður þessi námsgrein eins
og aðrir hér í skólanum, vegna
húsnæðisskorts og takmarkaðs
aðgangs að bókum og öðrum
hjálpargögnum."
„Til skamms tíma var enginn
námsstjóri í kristnum fræðum,
en nú er hann kominn og er
verulegur styrkur í að fá Sigurð
Pálsson til starfa, og hefur hann
tekið þátt í kennslunni ásamt
Kristjáni Búasyni dósent og
Gunnari J. Gunnarssyni kenn-
„ Vekja verðurskiln-
ing almennings á
nauðsyn góðrar
kennaramenn tunar ”
Rætt við séra Ingólf Guðmundsson kennara í KHÍ
ara og cand. teol. Hins vegar er
enginn æfingakennari í kristn-
um fræðum og hefur ekki verið
lengi og er það nokkur ókostur
að hafa ekki betri tengsl við
starfið í grunnskólanum."
Aðspurður um það hvort ein-
hverra breytinga væri að vænta
í kristnifræðikennslunni sagði
séra Ingólfur að nú væri verið
að reyn að auka þátt trúar-
bragðafræðinnar.
„Ég held að það gefi betri
raun að skoða kristnina í trúar-
bragðalegu samhengi en í
kirkjusögulegu samhengi. Þessi
breyting virðist ætla að ganga
vel.“
„I fyrsta skipti sem þessi
breyting var reynd var útkoma á
prófum ekki nógu góð og kann
það að hafa valdið einhverju um
þá miklu óánægju, sem ríkti
meðal nemenda í fyrra. Síðan
hefur þetta gefist mun betur og
kemur það best fram í vinnu-
gleði nemenda og góðum árangri
á prófum."
„Ég hef þó eiginlega aldrei
getað skýrt hvers eðlis óróinn í
fyrra var og get ekki sagt að ég
viti af hverju hann stafaði.
Framkoma nemenda kom mér
mjög á óvart, en ég tel þó ekki
líkur til þess að þetta muni
endurtaka sig.“
„Óánægja með
námsskrá í
kristnum fræðum“
Er við báðum séra Ingólf að
skýra nánar það sem gerst hefði
í fyrra, sagði hann að þegar
nemendur komu úr æfinga-
kennslu á vorönn í fyrra hefði
komið í ljós mjög mikil óánægja
með námskrána í kristnum
fræðum fyrir grunnskóla.
„Við fengum þá námsstjór-
ann, Sigurð Pálsson, til að koma
hingað og ræða málin, en eftir
það varð ég ekki var við nein
sérstök mótmæli, og nemend-
urnir skiluðu langflestir viðun-
andi kennsluverkefnum. En síð-
an gerðist það, að á lokaprófinu
skiluðu flestir auðu og skrifuðu
jafnframt undir mótmælabréf.
Þar var þó ekkert minnst á
námskrá grunnskólans, sem þó
virtist vera aðalásteytingsefnið.
Þeir nemendur, sem skiluðu
auðu fengu þó sitt kennarapróf,
að því er ég best veit.“
„Um 95—97% pjóðarinnar
játar kristna trú“
Eins og fram hefur komið í
umræðum manna eru margir
þeirrar skoðunar að kristin-
fræðikennsla í grunnskólum sé
ekkert annað en beint trúboð á
kostnað ríkisins og var séra
Ingólfur beðinn um álit á þess-
ari staðhæfingu.
„Þegar ég kenni kristin fræði
kenni ég með því hugarfari að
gera mönnum málefnalega grein
fyrir trúarbrögðum, jafnt
kristnum sem öðrum, frá
sjónarmiði viðkomandi trúar-
bragða. Ég tel mig t.d. ekki vera
að reka neitt íslamskt trúboð,
þegar ég geri grein fyrir trúar-
skoðunum múslima, en vissu-
lega er meiri áhersla lögð á
kristinfræðikennsluna, þar sem
hún hefur vissa sérstöðu í þjóð-
félaginu. Framhjá þeirri stað-
reynd verður ekki gengið að um
95—97% þjóðarinnar játar
kristna trú.“