Morgunblaðið - 18.02.1979, Side 25
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 18. FEBRÚAR 1979
25
i
Eftir
Yictor
Zorza
hefur þessa hefð í heiðri með því
að vitna í „umræður“, sem það
segir að hafi farið fram við
keisarahirðina fyrir eitt hundrað
árum. En þessi aðferð undir-
strikar fremur en dylur þýðingu
rökræðnanna, sem nú standa
yfir. Greinin vekur jafnvel at-
hygli á þeirri staðhæfingu, að
umræðurnar um brottflutning
frá rússnesku landamærunum
hafi staðið í einhverju sambandi
við „klíkubaráttu."
Blaðið heldur uppi vörnum
fyrir Teng og vitnar í sögufræga
persónu, sem „hélt því fram að
ekkert landsvæði skyldi látið af
hendi við Rússa." Fyrir hundrað
árum varð þetta sjónarmið ofan
á, segir blaðið, og að lokum
neyddi efling máttar Kínverja
Rússa til að undirrita nýjan
samning, þar sem þeir gerðu þær
tilslakanir, sem Kínverjar vildu
fá. Það hafði ekki reynzt auðvelt
að sögn Kwangming-dagblaðs-
ins, og það bendir á þann lær-
dóm, sem af þessu má draga nú
með því að leggja áherzlu á það,
að Rússar hafi látið undan vegna
þess, að Kínverjar hefðu „búið
sig ákaft undir styrjöld."
I greininni er því haldið fram í
raun. að bað sé stríðsnndirhún-
að endurnýja dofnandi Rússa-
óvild kínverskra leiðtoga hlýtur
að mistakast, því að hún grund-
vallast ekki á pólitískum veru-
leika.
Hugsjónafræðiumræðan, sem
leiddi til vinslita Kínverja og
Rússa, hefur fyrir löngu misst
alla þýðingu. Klofningurinn
hófst fyrir tuttugu árum, þegar
Mao Tse-tung sakaði Nikita
Krúsjeff um að svíkja hagsmuni
heimsbyltingarinnar með því að
sækjast eftir slökun spennu í
sambúðinni við Bandaríkin.
Seinna sagði hann, að nútíma-
breytingarnar í sovézku efna-
hagslífi hefðu endurreist kapi-
talisma í Rússlandi. I báðum
þessum tilfellum og í mörgum
öðrum hefur Teng sagt skilið við
rétttrúnaðarstefnu kommúnista
og það miklu rækilegar en
Krúsjeff nokkurn tíma gerði. Og
lát bæði Krúsjeffs og Maos hefur
fjarlægt þann mikla persónulega
þátt, sem setti svip sinn á deilur
Kínverja og Rússa. Upphaflegar
ástæður klofningsins eru horfnar
og engin gild ástæða er til þess
að hann skuli halda áfram.
Fyrr eða síðar hlýtur þróunin í
átt til sátta milli Rússa og
Kínverja, sem þegar er sýnileg,
að fá byr í seglin. Og tilraun
Bandaríkjanna til að halda lífi í
deilunni með tilbúnum ráðum
verður fyrir meiriháttar diplo-
matisku áfalli. Afstaða Banda-
ríkjanna til deilu Kínverja og
Rússa byggist núna á því sem
starfsmenn Hvíta hússins kalla
að „spila Kína-spilinu“, sem mið-
ar að því að fá fram tilslakanir
frá Kreml með hótunum um að
pf 1 a máH
Þegar Teng sættist við Mao 1974.
ingur, sem Teng beiti sér fyrir
fremur en brottflutningur herja
sem maoistar vilja, sem sé „bak-
hjarl utanríkisstefnu." Ljóst er,
að tilgangur slíkrar utanríkis-
stefnu er samkomulag við Sovét-
ríkin og að bæði Teng og maoist-
ar eru sammála um það, þótt þeir
séu ósammála um tímasetning-
una og aðferðirnar.
I greininni var ljóstrað upp um
nokkur þeirra mála, sem hafa
verið tekin fyrir í umræðunum í
Peking, og hún er aðeins efsti
hluti ísjakans. Þegar Banda-
ríkjastjórn ákvað að láta til
skarar skríða til stuðnings klíku
Tengs í síðasta mánuði, fór hún
eftir upplýsingum, sem em-
bættismenn segja að þeir geti
ekki rætt. Bandaríkin hjálpa
Teng til þess að koma í veg fyrir,
að stjórnin í Peking sættist við
Kreml. En sannanirnar benda til
þess, að hann vilji nota slíka
hjálp til að komast að betri
skilmálum í því samkomulagi,
sem hann vonast til að gera við
Moskvu.
Það sem vestrænir sérfræðing-
ar óttast meir en nokkuð annað
er sá möguleiki, að hálf milljón
sovézkra hermanna verði flutt
frá landamærunum að Kína til
Evrópu, þegar sáttum verður
komið í kring. Rétt er að vest-
rænir diplómatar hafi af þessu
áhyggjur. En tilraunin til að
koma í veg fyrir sættir með því
Sovétríkjunum. En þegar menn-
irnir í Moskvu og Peking komast
að þeirri augljósu niðurstöðu, að
hagsmunum þeirra er betur
þjónað með samkomulagi en
áframhaldandi deilum, eins og
þeir eru á góðri leið með að gera
upp við sig núna, verða Banda-
ríkjamenn eins og fiskur á þurru
landi.
Heimsókn Tengs gaf stjórn
Carters færi á að breyta um
stefnu. í stað þess að synda gegn
straumi sögunnar gætu Banda-
ríkin synt með honum og hafizt
handa um að beita áhrifum
sínum til þess að Kínverjar og
Rússar sættist. Stjórn Carters er
í einstæðri aðstöðu til þess að
miðla málum og móta heims-
skipulag, þar sem þrjú aðalstór-
veldin mundu vinna saman í
eigin þágu og í þágu almanna-
heilla í stað þess að reyna að
bera eld að tortryggni og
hagnast á fjandskap, sem til-
heyrir annarri öld. Bæði í Hvíta
húsinu og Kreml trúa menn á
slökun spennu í sambúð Rússa og
Bandaríkjamanna. Mennirnir í
Hvíta húsinu geta annað hvort
unnið að því að gera Kína að
aðila í því samspili stórveldanna,
sem þeir reyna að fá Rússa til að
taka þátt í, eða tekið þá áhættu,
að þessar tvær þjóðir komist ef
til vill að lokum að samkomulagi,
sem mundi beinast gegn Banda-
ríkjunum.
Kahrs
PARKET
á gólfið
FALLEGT — NÍÐSTERKT
OG AUÐVELDAST AÐ ÞRÍFA
EGILL ÁRNASON H.F.
SKEIFUNNI 3. SlMI 82111.
Þad er margt
sem þér líkar vel
íþeim
nýju amerisku
Sparneytin, aflmikil 5 lítraVB vél
Sjálfskipting
Vökvastýri
Styrkt gormafjöðrun að aftan og framan
Transistorkveikja
Aflhemlar
Urval lita, innanogutan
Og f leira og f leira
Chevrolet Malibu Classic Station kr.6.400.000.
Þetta er það sem þeir nýju
frá General Motors snúast allir um