Morgunblaðið - 02.04.1965, Page 1
32 síður
52. árgangur.
mwM
78. tbl. — Föstudagur 2. apríl 1965
Prentsmíðja MorgunblaSsins.
Anthony Liuzzo, eiginniaður frú Liuzzo, sem myrt var í Aalabama á dögunum, og börn þeirra
homa til kirkju sl. þriðjudag til þess að vera viðstödd útför frú Liuzzo í Detroit. Frá vinstri:
I.iuzzo, Thomas, 13 ára, Mary 17, Anthony yngri 10, og Penny. Fimmta barn þeirra hjóna, Sally,
eex ára, er að baki Anthony. (Sjá forystugrein á bls. 16).
Fellst Hanoistjórn á nýja
ráóstefnu um mál Indókína?
— án þess að setja skilyrði um
brottför Bandaríkjamanna fyrst?
Wasíhingbon 1. apríl —.
NTB — AP.
LYNDON B. JOHNSON, Banda-
Gunnar Thoroddsen
ríkjaforseti, kvaddi seint í kvöld
saman á fund í Hvíta-húsinu
helztu ráðgjafa sína, þeirra á
meðal Dean Rusk, utanríkisráð-
herra, Robert MacNamara, varn-
armálaráðherra og Maxwell
Taylor, sendiherra Bandaríkj-
anna í S.-Viet Nam. Á fundinum
var styrjöldin við Viet Cong
kommúnista til umræðu, og mái-
efni Viet Nam í heild. Tavlor,
sendiherra, er sem kunnugt er
nýkominn til Washington tii við-
ræðna við Bandaríkjastjóm um
þróun máia í hinu stríðshrjáða
landi. Auk þeirra, sem fyrr eru
nefndir, tóku þátt í fundinum í
kvöld þeir John McCone, yfir-
maður bandarísku leyniþjónust-
unnar (CIA), M'heeler hershöfð-
ingi, yfirmaður herforingjaráðs-
ins, og McGeorge Bundy, sér-
stakur ráðgjafi forsetans um ör-
yggismál.
Bandaríska stórblaði'ð New
York Times segir í aðalfyrirsögn
á forsíðu í dag, að sendinerrar
hlutlausra ríkja í Moskvu hafi
tjáð fréttamanni blaðsins, Henry
Tanner, ai stjórn N.-Viet Nam
iirvundi e.t.v. fallast á að Genfar-
ráðstefnan um málefni Indókína
verði kvödd saman á ný. Ekiki
nefndi blaði'ð nánar hverfar þjóð
ar umraeddir sendiherrar séu, en
sagði að heimildir sínar hefðu
sendiherrarnir frá smndimiönn-
um N.-Viet Nam í Moskvu.
Hanoi-stjórnin hefur til þessa
haldið sig ákveðið við að skil-
yrði fyrir samningagerð væri að
Bandaríkjamenn færu frá Suður
Viet Nam. Lítur því út fyrir
að stjórninni í Hanoi muni ekiki
vera þetta eins mikið alvörumál
og gert hafði verið ráð fyrir,
segir New York Times.
beir, sem með miálum fylgjast,
telja þó varasamt að vera of
bjartsýnir vegna ummæla, sem
sendimenn N.-Viet Nam hafi við-
haft vi'ð sendiherra hlutlausra
ríkja jafnvel þó svo kunni nú
Framhald á bls. 31
Stórframkvœmdir í sam-
göngumálum Vestfjarða
B6 millj. kr. lán fengið hjá
notað til vcga, flugvalla og hafn-
argeröa á Vestfjörðum næstu
fjögur ár.
Wiiðreisnarsjóði Evrópuráðsiiis
til samgöngubéta
Yfirlýsing Cunnars Thoroddsen,
f jiármálaráðherra á Álþingi í gaer
GUNNAR Thoroðdsen fjármála-
ráéherra skýrði frá því á Alþingi
é gær í unuræðum um vegaáætl-
un, að ríkisstjórnin hefði fengið
86 millj. kr. Ján hjá Viðreisnar-
sjóði Evrópuráðsius. Yrði þetta fé
Jafnmiklu fjármagni yrði var-
ið til þessara framkvæmda héð-
an að heiman, þannig að sam-
lals yrði unnið fyrir 171.6 millj.
kr. samkv. fyrrgreindri fram-
kvæmdaáætlun.
Fjármálaráðherra koynst að
orði um þetta á þessa leið:
Á þskj. 399 flytur ríkisstj. brtt.
við vegaáætlunina, og fjalla þær
um fjárveitingar til vegagerða á
Framhald á bls. 8.
Sprengjufarald-
ur í Alabama
Hús borgarstjóra i Birmingham
i hættu — Margar sprengjur geróar
óvirkar, — ein sprakk
Birmingham, Alabama,
1. apríl — NTB — AP.
ÖFLXJG sprengja sprakk í dag
fyrir utan heimili negrafjöl-
skyldu einnar í Birmingham í
dag, og olli tjóni á húsinu. 13 ára
gamall drengur meiddist á hendi I
af sprengjubrotum í tilræðinu, ]
en meiðslin eru ekki talin al- j
varleg. Nær samtimis því, að |
sprengja þessi sprakk, fundust
ósprungnar tímasprengjur viða í
borginni, m.a. á svölum borgar
stjórans í Birmingham, Albert
Boutwall, en hann er talinn miög
frjálslyndur í afstöðu sinni til
kynþáttamálanna. Ennfremur
fannst sprengja fyrir utan hús
borgarráðsmanns, frú Nina Migli
onico, en hún mun svipaðra skoð
ana í kynþáttamálum og borgar
stjórinn. Lögreglunni tókst að
gera sprengjurnar óvirkar áðwr
en tii tíðinda drægi.
Svo sem kunnugt er hefur
mikið borið á sprengjutilræðum
í Birmingham sl. tvö ár eða svo,
Framhald á bls. 31.
Hlutlausirhvctja
til samninga
Belgrad, 1. apríl. — NTB.
SAMTALS 17 svonefnd hlutlaus
ríki gáfu út í dag sameiginlega
áskorun í Belgrad í Júgóslaviu,
þar sem þau hvetja til þess
að sezt verði að samningaborð-
inu varðandi málefni Viet Nam,
og reynt verði að finna stjórn-
málalega lausn á styrjöldinni þar
í landi.
Það var talsmaður Júgóslavíu-
stjórnar sem frá þessu skýrði í
dag, og jafnframt því að sendi-
herrar landanna 17 hefðu stjórn-
um Sovétríkjanna og Bretlands
áskorun þessa fyrr í dag. Verður
áskorunin síðar send öðrum rík-
isstjónum, sem hlut eru taldar
eiga að máli.
Áskorun þessi var samþykkt á
fundi sendiherra hlutlausu ríkj-
anna í sl. mánuði, og siðan send
viðkomandi ríkisstjórnum til
staðfestingar. Henni er beint til
Sovétríkjanna, Bandaríkjanna,
aðaliútara SÞ, Bretlands, Pól-
lands, Kanada, Norður og Suður
Viet Nam og „þjóðfrelsishreyf-
ingarinnar" í S-Viet Nam, þ. «.
Viet Cong kommúnista.
Nokkrir starfsmenn scndiráðs Bandarikjanna í Saigon, ganga
slasaðir út úr sendiráðsbygigingunni eftir hina óhugnanlegu
sprengjuárás í Saigon í vikunni. Föt þeirra eru ötuð blóði, s**n
sjá má. (AP)