Eimreiðin


Eimreiðin - 01.05.1905, Qupperneq 79

Eimreiðin - 01.05.1905, Qupperneq 79
159 Hann fer og nokkrum orðum um sögu þessa hljóðfyrirburðar og hljóðsambandanna rn og nn, er mikið hefir verið um ritað í vísindabókum, en þó aldrei verið lýst til hlítar. Þriðji kaflinn í ritgerð hans er um uppruna ýmissa sagnmynda, t. d ftið, merð, lest og þess konar, og ber sú rannsókn eins og öll ritgerðin vott um frá- bæra þekkingu á öllum heimildarritum, er lúta að hinni lifandi tungu, sem hann, enn sem komið er, er einn um að rannsaka málfræðislega. Er og auðsætt, að hann hefir mjög bygt á eigin söfnum og athugunum frá þeirri tíð, er hann dvaldi á íslandi. í>ó ritgerð þessi sé ekki stór, er hún þó dýrmæt viðbót við þá grein norrænnar málfræði, er hún hljóðar um. H. K. H. B. UM FEKÐ SÍNA Á ÍSLANDI sumarið 1903, sem þau hjónin Norden- streng hafa þægilegar endurminningar einar um eftir heimkomu þeirra til Uppsala, hefir Finnlendingur þessi (0: Svíi frá Finnlandi, en ekki Finni, eins og stendur í Ehnr. IX, 236) haldið alþýðufyrirlestra í ýmsum bæjum og bygðum í Svíþjóð. Hann er nú kominn heim úr löngum leiðangri frá Norrlandi; en þangað var honum boðið af stjórn alþýðufélaganna sænsku, til þess að fræða Svía í þessum afskektu héruð- um um ísland að fornu og nýju, íbúa þess, alþýðulífið, þjóðerni og stjórnarfar þeirra, og einkennir það meðferð Nordenstrengs á umræðuefni sínu, að hann með frábærri þekkingu og einlægri hluttekningu lýsir þeim sterku áhrifum, sem hann hafi orðið fyrir á íslandi, svo það minnir menn á Konráð Maurer Nordenstreng er sannur og einlægur vinur íslands og hjartanlega ant um að vekja áhuga áheyrenda sinna bæði á hinni frægu fornöld landsins, sem bezt kemur í Ijós í fyrirlestrum hans um íslend- ingasögurnar, og einnig á framtíð og framfaramöguleikum íslands, sem ein- mitt Svíar með sínum sérstöku þjóðareinkennum bera ágætlega skyn á. í báðum þessum löndum liggja fólgin óþrjótandi efni og kraftar, sem vekja verður alþýðuna til að sjá sem glöggast í hagfræðislegu yfirliti og eins og í skuggsjá framtíðarsjóna einstakra manna, gegnum gleraugu sannra þjóðvina, sem draga ekki dul á, hve mikið er ógert í þeim efnum. Fyrirlestrar Nordstrengs eru ekki smálega kryddaðir með sýningum ágætra mynda af íslenzku landslagi, þjóðareinkennum, búningum og einstökum þjóðkunnum mönnum. Sérstaklega ber hann hlýjan hug til alþýðlegra bókmenta, og ekki sízt hins dýrðlega skálds í’orsteins Erlingssonar (sbr. Eimreiðina X, 76). H K. H. B. 1J. THORODDSEN: HYPOTHESEN OM EN POSTGLACIAL LANDBRO OVER ISLAND og Færöerne, set fra et geologisk Synspunkt. Ymer 1904, H. 4. Hin síðustu árin hefir allmikið verið þráttað um, hvort ísland hafi verið land- fast við Færeyjar og Skotland eftir ísöldina síðustu, og eru það sérstaklega grasa- fræðingarnir, er hafa haldið þessu atriði á loft. Sumir grasafræðingar hafa haldið þvi fram, að hinn núverandi jurtagróður, t. a. m á Færeyjum og íslandi gæti bent í þá átt, að eyjar þessar hefðu verið landfastar við Norðurálfuna eftir ísöldina, ei» aðrir grasafræðingar segja að plönturnar hafi borist til eyja þessara yfir höfin. Að því er sjálfa landbrúna snertir, verða jarðfræðingarnir auðvitað að fella fullnaðar- dóminn. Og svo er álitið, að áreiðanlegt sé, að þess konar landbrú hafi verið fyrir ísöld. En hvort nokkur landbrú hafi verið eftir ísöld, verður jarðfræði íslands að skýra. Pessi ritgerð prófessor Thoroddsens, er allra manna bezt þekkir jarð- fræði íslands, er því »orð í tæka tíð«. Höf. kemst að þeirri niðurstöðu að engin landbrú hafi verið eftir ísöldina. H. J.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Eimreiðin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.