Eimreiðin


Eimreiðin - 01.05.1905, Qupperneq 75

Eimreiðin - 01.05.1905, Qupperneq 75
heiur jjetað aflað sér svo umfangsmikillar og undir eins smásmuglegrar þekkingar. Starfsþol hans hlýtur og að vera með sömu afburðum, sem vilji og gáfur. Petta viðurkenna og allir, sem höf. þekkja, t. d. Max Morold (í »Fremdenblatt«), dr. Moritz Riipschl (í »Grozer Tagblatt«), J. Schicht (í »Die Geissek) Kahle (í »Litteraturzeitung«). í*á koma hin þýddu kvæði, i —224 bls. Höf. byrjar á 2 kveðlingum eftir B. Gröndal eldri. í*á kemur B. Thórarensen, 22 kvæði og kveðlingar — nálega öll beztu ljóðmæli Bjarna. Næst kemur Jónas Hallgrímsson, 15 kvæði. Úr því færri kvæði eftir ýmsa; eftir S. Breiðfjörð 2, Svb. Egilsson 2; eftir Jón Thóroddsen 9. Eftir Kr. Jónsson 3, Bólu-Hjálmar 3, Gísla Brynjúlfsson 3, Grím Thomsen 7, B. Gröndal yngra 11, Pál Ólafsson 10 (með stökum\ eftir Stgr. Thorsteinsson 13 (auk 6 eða 7 af skopstökum hans). Eftir Matthías Jochumsson 6, eftir V. Briem 3, eftir Jón Ólafsson 3, eftir Pál Jónsson 2, eftir í*orstein Erlingsson 3, eftir Einar Hjörleifsson 3, eftir Hannes Hafstein 9, eftir þorsteiij Gíslason 2, G. Guðmundsson 2 og G. Magnússon 1. Og loksins 1—4 kvæði eftir skáld Vesturíslendinga, þá Stephán G. Stephánsson 4, Kristin Stefánsson, Jóhann M. Bjarnason 3 og Hannes Blöndal. Oftast hefur þýðandanum tekist vel að velja — en slíkt gerir enginn svo öll- um líki. Og stór furða er það, hve víða hann hefur ráðist í að velja afar-torveld kvæði, eins og sum kvæði Jónasar, svo sem »Gunnarshólma« og »Skjaldbreið«, sumt eftir Gísla Brynjúlfsson, Gröndalj M. J. o. fl. Auðvitað má lengi finna að, en — hér þegi ég og finn ekkert að. Í*ví að ég þykist vita, um hvað hér sé að dæma. Geri aðrir betur! Sumum þykir Poestion (sem listafræðingur) halda bókmentum vorum helzti hátt á loít, þótt allir játi þær góðra gjalda verðar. En þótt ekki sé vert að fár- ast um það, má það gleðja oss, að allir, sem ég hygg þekki oss bezt og unna oss mest, t. a. m. H. Drachmann, þjóðskáld Dana, þeir lofa jöfnum höndum kveðskap vorn og þann mann, sem svo rausnarlega og meistaralega hefur túlkað hann fyrir erlendum þjóðum. Poestion vinnur marga manna verk ár frá ári fyrir gagn og sóma vorrar gömlu Fjallkonu — og fær litlar þakkir og engin laun fyrir ósegjanlega mæðu og erfiði. Hann er suðrænn maður, mildur og viðkvæmur sem barn, en þó ósigrandi hetja. Hvað á nú þetta lengi að ganga, að slíkur maður sjái enga áþreifanlega viðurkenn- ing frá oss? Talað er um að senda honum fé, svo hann deyji ekki svo, að vér fá- um ekki að sjá hann, og hann oss. En hvenær? hvenær? Eg segi aftur: »Heill sé þér mikli Milton íslenzkra! fyr ég aldregi fátækt reiddist —!« . Khöfn 10. apríl 1905. MATTH. JOCHUMSSON. ISLAND AM BEGINN DES 20. JAHRHUNDERTS, von Valtýr Guð- mundsson, aus dem Dánischen von Richard Palleske. Kattowitz 1904. f*ar hefur góð bók fengið góðan þýðara. Herra yfirkennari R. Palleske í Landeshut í Slesíu er einn vorra ágætu vina meðal fræðimanna hins mikla þýzka föðurlands. Hafði hann áður en hann gaf út þýðing þessa bæði ritað lof um bók dr. V. Guðmundssonar og sýnt kafla úr henni á þýzku. fýðingin er að öllu leyti snildarverk, að því er ég get séð, eins og búast mátti við af slíkum manni. Prentun, myndir og allur frágangur er alt fult svo ágætt, sem í hinni dönsku frumprentun. Kvæðin og skáldsagna þýðingarnar aftan til hafa og beztu höfundar þýtt, sitt hver
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Eimreiðin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.