Eimreiðin


Eimreiðin - 01.05.1905, Side 74

Eimreiðin - 01.05.1905, Side 74
154 íslenzk hringsjá. EISLANDBLÚTHEN. Ein Sammelbuck neuislándischer Lyrik von J, C. Poestion. Leipzig und Miinchen 1905. (Tileinkuð íslenzku þjóðinni). »Heill sé þér mikli Milton íslenzkra! fyr ég aldregi fátækt reiddist—« datt mér ósjálfrátt í hug, þegar ég opnaði þessa bók — hina síðustu af hinum mörgu ágætu ritum höfundarins um land vort og bókmentir þess Þessi bók kórónar hma miklu og merkilegu starfsemi Poestions, þó að vandi sé að segja, hvort þessi bók sé meira stórvirki en »Islándische Dichter der Neuzeit«. Hann einn, sem samið hefur bækurnar, getur skorið úr því. Hitt er víst, að í augum skálda og lista- manna stendur þessi bók ólíku hærra en hin umfangsmikla krítiska bók hans, því að í þessari bók sýnir höf. fyrst til fulls, hve ágætur þýðari hann er, þ. e. skáld og listamaður. Því að eins og hann þýða engir nema útvaldir listamenn: svo mörg kvæði eftir svo marga höfunda, og það íslenzka. Eins og hinir beztu í^jóðverjar, sem ritað hafa um bók þessa — og fjöldi fagurfræðinga hafa minst hennar með lofsorðum — allir taka fram, er miklu meiri vandi að snúa íslenzkum kvæðum á erlend mál, heldur en úr nokkru öðru evrópumáli — eigi þýðingin vel að takast. En þeim ber ölluin saman um, að yfirleitt séu þýðingar Poestions ágætar, og eins til »aflestrar« »eins og væri kvæðin frumkveðin á þýzkri tungu«. Þetta er geysi-mikið hrós. eins og málið er vaxið, og flestum af oss íslendingum nálega óskiljanlegt. Eg hefi, því miður, ekki enn þá haft tíma til að rannsaka og saman bera, nema svo sem helming hinna þýddu kvæða; en eftir því að dæma, sem ég hefi yfirfarið, felst ég á þennan almenna dóm í’jóðverja — að því einu undanskildu, að mismunur máls- og kveðskaparlistar höfunda vorra birtist óvíða sem skyldi. En þann galla getur og enginn þýðari, liversu mikill snillingur sem liann væri, umflúið til hlítar — svo torveld er íslenzk tunga og »tekník«. Aftur hefur víst engum útlendum manni tekist yfirleitt eins vel og P. að þýða erfið íslenzk kvæði. í*að væri hægt að sýna list P. í þessa stefnu, sem ég á við, með mörgum dæmum. En hér er ekki tóm til þess, enda eru þeir of fáir, sem bæði málin skilja til gagns. Nú skal bent með fáeinum orðum á efni bókarinnar. Fyrst er for- máli. Gerir höf. þar grein fyrir aðferð sinni og ástæðum, einkum hvað því valdi, að hann hafi þýtt fleiri eða færri kvæði hinna ýmsu höfunda, að hann, sem sé, hatí víða orðið að velja léttari kvæði minni skálda í stað þyngri eftir meiri skáld, af eðlilegum orsökum, þar sem svo rriargt og mikið skyldi þýða, og það fyrir þýzka lesendur. Bókin skyldi vera skáldleg myndabók, sem fylgja ætti »Lands- og lýðfræði íslands«, (o; bók hans: »Island. Das Land und seine Bevvohner, Wien 1885«). — í*á kemur inngangur þýðinganna, »Kulturhistorische Skizze«, eða þjóðmenningarsögu ágrip, bls. XI—XLIV. ]?etta yfirlit er stuttort, en bæði skarplega skrifað og skemtilega. Höf. er orðinn svo þaulæfður í að rita um þetta efni, að það leikur í höndum hans, og — samt fer honum fram og aldrei hefur hann, ef til vill, betur lýst oss, að m. k. aldrei með nákvæmari skilningi á kjarna og þræði siðmenningar vorrar, en nú. Ylur hans og velvild til hinna beztu og alls hins bezta, sem vér eigum og átt höfum, hefur og aldrei komið betur fram. Yfirleitt vil ég segja, að svo eru ályktanir hans um menn og málefni skarpar og óhlutdrægar, að ég þekki enga innborna menn meðal vor, er færir mundu framar að komast. Vandvirknin er fyrirtak, og nálega er óskiljanlegt, hvernig maður suður í Vínarborg

x

Eimreiðin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.