Eimreiðin


Eimreiðin - 01.05.1905, Page 64

Eimreiðin - 01.05.1905, Page 64
44 En þegar Valdimar kom, sagði hann með spekingssvip, að auðsætt væri, að Trygg þætti sér hafa verið misboðið. Pau þyrptust nú öll utan um hann með bænum og afsökun- um og blíðyrðum; en Tryggur leit kuldalega á þau, hvort eftir annað; það var einsætt að Valdimar átti kollgátuna. Pyri stökk þá út, til að sækja föður sinn, og kaupmaðurinn kom inn með alvörusvip og dálítið hátíðlegur í bragði. Hann var nýbúinn að fá fregnir um það frá skrifstofunni gegnum talsfm- ann, hve vel Tryggur hefði gætt kolabirgðanna, og hann kraup nú niður á ofnábreiðuna fyrir framan Trygg og þakkaði honum af hrærðu hjarta fyrir þennan mikla greiða. Við þetta blíðkaðist Tryggur dálítið. Kaupmaður sagði nú konu sinni og börnum frá — alt af á hnjánum og með hönd sína um löppina á Trygg —, hverju fram hefði farið um nóttina. Að þjófurinn væri gjörspilt kvennsvift — af allraversta tægi, sem hefði meira að segja — hver skyldi trúa! rekið allmikla kolaverzlun með stolnu kolin. Hún hefði verið svo slungin, að múta unga varðhundinum með sætum brauðbita; en það hreif nú náttúrlega ekki við Trygg. »Og þetta minnir mig á, hve oft ein ónefnd persóna, sem ég vil ekki nefna, var að bulla um, að það væri synd og skömm, að kvikindi skyldi hafna brauði, sem margur maðurinn mundi þakka fyrir að fá. Má nú ekki sjá, hvaða gagn er að þvíf Ein- mitt af því hann Tryggur hafði þennan — hm! þennan eiginleika, varð honum unt að ljóstra upp viðbjóðslegum glæp, að styðja að því, að illgjörðin sætti réttlátri hegningu, og vinna þannig bæði okkur og þjóðfélaginu gagn«. »En heyrðu pabbi!« kallaði froken Pyri, viltu ekki lofa mér einuf« »Hvað er það? — barnið mitt!« »Aö þú aldrei framar krefjist neins slíks af Trygg; lofaðu þeim heldur að stela dálitlu«. »Því lofa ég þér — fyri! — og þér líka Tryggur minn góði«, sagði kaupmaður og stóð upp með metnaðarsvip. »Tryggur er svangur«, sagði Valdimar með spekingsbragði. »1 hamingju bænum Þyri! sæktu sem fljótast kóteletturn- ar hans«. Pyri ætlaði að þjóta út í eldhúsið, en í sömu svifunum kom Stína með þær másandi. —

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.