Eimreiðin


Eimreiðin - 01.05.1905, Page 46

Eimreiðin - 01.05.1905, Page 46
I2Ó i manns borið um 400 pd. Kostnaðurinn á hverri mílu mundi þá nema um 70 aura. Pau dæmi, sem hér að framan eru tekin, sýna aðeins hin beinu útgjöld, svo þegar ræða er um hvort bifreiða akstur geti borgað sig, þá er það mest undir því komið, hvort nægur flutn- ingur fæst. Einnig ef hægt er að nota vagninn lengur en þessa 4 mánuði, verða akstursútgjöldin tiltölulega minni, þar eð vextir og afborgun verða hið sama. T r y g g u r. Eftir ALEXANDER L. KIELLAND. I. Froken Þyri gekk að talpípunni og kallaði: »Eru kótelett- urnar hans Tryggs ekki bráðum tilr* Frá eldhúsinu heyrðist rödd jómfrú Hansens: »þær standa í gtugganum til að kæla þær; undir- eins og þær eru orðnar mátulegar, skal Stína koma upp með þær«. Tryggur hafði heyrt þetta og gekk stillilega að ofninum og lagði sig á ábreiðuna fyrir framan hann. Hann hafði meira en mannsvit, — að því er kaupmaðurinn tíðum sagði. Við morgunverðinn sat auk heimilisfólksins gamall óvinur Tryggs — eini óvinurinn, sem hann átti. En það var reyndar margt og mikið í þessum heimi, sem kandídat juris Viggó Han- sen hafði á hornum sér, og hann var alkunnur fyrir meinyrði sín um alla Kaupmannahöfn. Og eftir margra ára kunningsskap í þessu húsi var hann farinn að verða fram úr lagi hreinskilinn. Og þeg- ar hann var í vondu skapi, sem hann oftast nær var, lét hann gremju sína bitna á hverju og hverjum, sem vera skyldi. Einkum var honum jafnan uppsigað við Trygg. »f*etta stóra, gula kvikindi«, var hann vanur að segja, »er að slöttólfast hér, og það er verið að kjassa hann og dekra við hann og troða í hann steik og kar- bónaði, meðan margt mannsbarnið verður að bíta í fingur sér af ílöngun í þurran brauðbita«. En þetta var að koma við kaunin, sem kandídatinn hefði átt að vara sig á. Jafnskjótt og éinhver sagði eitthvað um Trygg, sem ekki lýsti eintómri aðdáun, var eins og augnaráði alls fólks-

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.