Eimreiðin


Eimreiðin - 01.05.1905, Page 45

Eimreiðin - 01.05.1905, Page 45
I25 Fyrir þessa upphæö verður þá ekið með þessi fyrnefndu 2000 pd. hina umtöluðu vegalengd, 3000 mílur; kostnaður á pund-mílunni um 0,11 eyris. Eins og menn sjá kostar bifreiðar-aksturinn við fyrri vagninn 0,07.2000 eða i kr. 40 aur., við seinni vagninn 0,1 r.2000 eða 2 kr. 20 aur. á hverri mílu. Sé breytt um og þessar sömu bif- reiðar gjörðar svo úr garði, að þær verði notaðar til fólksflutn- inga, sem er hægt með litlum tilkostnaði, munu þær geta flutt 10 m e n n (auk vagnstjóra); þá kostar að flytja manninn 1 mílu 14 eða 22 aura, eftir því hvor vagninn er notaður. 16. Bifreið fyrir 2 menn. Af framangreindu munu menn og geta ráðið, að sjálfsagt er, að velja vagninn eftir þvi, hvernig til hagar á vegum þeim (með bratta o. fl.), sem honum á að aka um, því annars eiga menn á hættu, annaðhvort að bifreiðin verði ekki að fullu liði (komist ekki upp brekkur eða því um líkt), eða að eyða hestöflum til ónýtis (vélin óþarflega aflmikil). Að lyktum skal ég geta bifreiðar einnar lítillar, sem mikilli útbreiðslu hefur náð og alstaðar vakið gleði og ánægju. Er hún gjörð fyrir 2 menn, og dálítinn farangur, og kostar um 3800 kr. Vélin, sem gengur fyrir sprengilofti, hefur 7 h-1, og hraðinn er 3x/a—4 mílur á klst. Hún er einnig mjög vel fallin til smá-póst- flutninga (vagninn þá reyndar með dálítið öðru sniði) og getur auk

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.