Eimreiðin


Eimreiðin - 01.05.1905, Side 14

Eimreiðin - 01.05.1905, Side 14
94 Til leiðbeiningar þeim, er koma vildu að legstað Jónasar Hall- grímssonar, skal þess getið hér, að á móti nr. 112 á Norðurbrúargötu er sáluhlið á Assistents-kirkjugarði. Beint inn úr hliðinu er breiður veg- ur inn að hliði á þvergarði þar inni í garðinum. Skamt fyrir innan það hlið sér hægramegin lítinn dökkgráan stein og stendur á honum »A. C. Madsen * 2 2. Juni 1847 f 26. Juni 1898«. Steinn- inn snýr öfugt við líkin í reitinum, því að þau liggja þannig, að standi menn frammi fyrir steininum, við hliðið á grindunum umhverfis reitinn N. 1095, eru höfuðin í reitinum hægramegin. Gangi menn fyrir höfða- endann út á lítinn stíg, er þar verður, er gröf Madsens vinstramegin, rétt við hliðið á grindunum, og nokkrar líkur eru til þess, að þar sé gröf Jónasar, en það er með öllu óvíst. Hitt er víst, að þessi fer- hyrndi blettur (4 álnir á hvorn veg) er legstaður Jónasar Hallgrímsonar. M. f>. Dómkirkjan í Köln. Margar eru greinir hinna fögru lista. — A margan hátt hafa mennimir leitast við að gera sínar stærstu og fegurstu hugsjónir sýni- legar og öðmm skiljanlegar, með málaralistinni, tónlistinni, ljóðlistinni, leiklistinni og síðast, en ekki sízt, með byggingarlistinni. Ef til vill er það ekkert, sem fræðir oss eins ljóslega um menn- ingu iöngu liðinna alda, eins og byggingar og byggingarústir, sem eftir þær kynslóðir standa, sjálfar listaverk og listaverkum prýddar hátt og lágt, og venjulega í beinu eða óbeinu sambandi við það fegursta og göfugasta, sem þjóðirnar áttu til í eigu sinni, trúarbrögðin. Rústir Nínive og Babýlónar era uppsprettur að fróðleik um elztu æfi mannkynsins. Pýramýdarnir og hofrústimar í öræfunum kringum Níldalinn eru næstum ævarandi bautasteinar hinnar fornegypzku menn- ingar; súlubrotin á Akrópólis róma hástöfum listasmekk Grikkja og í Pompej gengur nútíðarmaðurinn rakleiðis inn í heimilishús gömlu Rómveijanna, sem lifðu á öndverðri keisararaöldinni. Þannig ber byggingarlistin hugmyndir sinnar tíðar fram gegnum margar aldir eða aldatugi. Svo má að orði kveða, að byggingarlistin gefi hinum bygða heimi hið ytra útlit sitt. Eins og andlitsdrættir mannsins gefa grun um það, hvað honum býr í brjósti, eins ber svipur borganna vitni um hugarfar íbúanna, sem hafa bygt þær. París þykir glæsilegasta borg í heimi, og Frakkar einnig mestir snyrtimenn. I’jóðveijar hugsjónamenn, djarfir og stórhuga; enda bera hinir himingnæfandi turnar í borgum þeirra þeim vitni í því efni. — — — — í’að er hin svonefnda »g o tne sk a« byggingarlist, sem ég ætlaði að gera að umtalsefni í línum þessum, einkum dómkirkjuna í Köln á Þýzkaiandi, sem þykir eitthvert hið fegursta verk þeirrar byggingarlist-

x

Eimreiðin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.