Eimreiðin


Eimreiðin - 01.05.1905, Qupperneq 10

Eimreiðin - 01.05.1905, Qupperneq 10
9° bera þá samvizkubyrði, að þeir hafi litlum ljóma brugðið á ásjónu bragadísarinnar íslenzku. Hvað á þá til bragðs að taka? Pví að ekki tjáir að láta svo búið standa Væri ekki reynandi og vinnandi vegur, að skáld- skapurinn á íslandi beindist að einhverju leyti, og það reyndar að mun, inn á aðrar brautir? Jú — víst virðist, að svo ætti að geta verið. En hvert? Skáldunum mætti ráða til, að reyna að semja skáldsögur! Pótt auðvitað sé nú ekki þar með alvíst, að þau yrðu vitrari eða þekking þeirra og þroski yxi stórum við það, þá gæti það ef til vill, þótt ekki væri annað, orðið til þess að opna augu þeirra sumra hverra og einnig annarra fyrir óskýldri nekt þeirra; þau rækju sig á, og að því gæti að m. k. orðið sá hagnaður, að þau, ef ekki vildi betur til, sæju sig um hönd og steinhættu, — jafnframt og þau þokuðust ofurlítið nær því, sem eðlilegt er og raungæft, þótt ekki væri nema í »orðinu« (forminu), og »orðin eru til alls fyrst«. Auk þess er það nú alþekt mál, að góðar, raungæfar skáldsögur hafa átt og eiga ekki lítinn þátt í því að umskapa þjóðirnar, leiða inn til þeirra strauma menning- ar og framfara í andans ríki og uppala og örfa lýðinn; hvetja dugandi menn til að rísa upp gegn kúgunarhugsun, þar er frelsi skyldi, gömlum og illum vana, en iðka mannúð og göfugt hugar- þel. Og þótt öðru sé nær en að öllum höfundum skáldsagna sé »list sú lén« að gera þær svo úr garði, að til þessa leiði, þá má þó gera ráð fyrir, að sú þjóð, sem á annað borð á þess konar menn, sé svo lánsöm, að alténd nokkrir þeirra geti sér maklegan orðstír og vinni að heillum hennar. Ætti þeim að veitast þetta því hægra, sem sannreynt er, að þeir, sem eru skáld, standa allra bezt að vígi með að hafa áhrif á menn, gróðursetja hugsan- ir sínar og kenningar í sálardjúp þeirra; þeir geta haft meira vald yfir tilfinningum manna en rökvísustu skynsemismenn nokkurn tíma öðlast, og það verður einatt affarasælast. þeir eru teljandi skáldsagnahöfundarnir okkar; nefna má Jón Thóroddsen, Gest Pálsson, Einar Hjörleifsson, Jónas Jónasson, Jón Stefánsson (Porgils gjallanda) o. s. frv. Þeir hafa samið góðar sögur (reyndar ekki mikið að mununum) og um þann síðasttalda má bæta því við, að hann er ekki síztur. — Leik- ritahöfund get ég ekki talið nema einn: Indriða Einarsson. Er það ekki von, að mönnum þyki þeir vera fáir í satnan- burði við ljóðskáldin, og hví skyldu menn ekki ætla, að þeir ættu
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Eimreiðin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.