Eimreiðin


Eimreiðin - 01.05.1905, Síða 8

Eimreiðin - 01.05.1905, Síða 8
88 myndir um rétta tilhögun, geti dregið illan dilk eftir sér og orðið mönnum að fótakefli á vegi til framfara og góðs gengis. Auðvit- að má líkt segja um drjúgan hluta óbundins skáldskapar, og það er víst ekki auðgert að skera úr því, hvor greinin af lélegurn skáldskap hafi gert meira ilt. En ég hygg, að sú skoðun sé ekki alveg úr lausu lofti gripin, að þar sem óbundið form er meira blátt áfram, einfaldara og þvi ljósara, þá er hægra að vara sig á andlegu skaðvæni í því (ég á hér eingöngu við vitskynjan sálar- lífsins, en ekki við strangar siðgæðishugmyndir), — en ljóðaforminu tekst betur að berja í brestina, hylrua yfir sálfræðilegar fjarstæður, röklegar meinvillur, eða gandreið frá öllu raungæfu. Petta getur bæði stafað af því, að bundna formið í raun og veru blekki —- t. d. sé svo íburðarmikið eða stórort, að almenningi verði á að ætla, að hér geti eitthvað háfleygt legið á bak við, þótt það ekki skiljist, og þótt það vitanlega sé endileysa ein, ekki heil brú í því öllu saman —, og eins af hinu, að menn auðsýna ljóðskáld- unum fremur umburðarlyndi en þeim, er semja órímuð skáld- verk: Ljóðskáldunum leyfist meira, menn gefa þeim hið alræmda skáldaleyfi, eins að því er efnið snertir og meðferð þess. fess vegna verður og skáldunum ljóðaformið hægra, menn gera þar ekki eins háar kröfur, og einmitt af þeim sökum getur kveðskapurinn verið hættulegri til skaðsemdar. Hins vegar verður bundið mál í sjálfu sér einnig að teljast fjarlægara raungæfum efnum, jafnframt og það er fjarlægara því, sem eðlilegt er, en óbundið mál. þetta kemur ekki í bága við það, sem ég hefi áður getið um, að í skáldskapnum mundi bundið form vera upprunalegast; það, sem er upprunalegast, er sem sé ekki ætíð raungæfast, og sú hefir reyndin á orðið, að þroska hefir þurft til þess að koma raungæfi eða realisma inn í skáldskapinn. Efni bernskuskáldskapar mannkynsins er ekki raungæft og sé bundið mál álitið að vera elzta form skáldskapar- ins, má éinnig um það segja, að það sé ekki heldur alls kostar raungæft. Pessar almennu athuganir eiga nú einnig við skáldskapinn ís- lenzka, eins og hvern annan; mælikvarðinn verður að vera líkur. Eg hefi getið þess, sem alkunna er, að skáldskapurinn okkar er því nær eingöngu kveðskapur. Við eigum talsvert af góðum ljóð- um (sum eru óaðfinnanleg, sem gleðilegt er) — þótt ekki sé nema

x

Eimreiðin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.