Eimreiðin


Eimreiðin - 01.05.1905, Side 3

Eimreiðin - 01.05.1905, Side 3
«3 I’ar mæta þeir í völdum veizluklæðum, sem vonast eftir krossi, hefð og náð, þar birtast þér með blíðum, mjúkum ræðum þín borðalögðu, kæru stjórnarráð. Og sjálfur ber þú bjarta tignarhjálminn og brjóst þitt alt er logastjörnum skreytt; á hlið þér dinglar demantsetta skálmin — sem drottinn veit þú gætir lítið beitt. Menn lýsa því frá landi’ og svölum unnum hve lofstír þinn og heiður stöðugt vex. Og finst þér ekki mjúkur’ í þeirra munnum þinn mikli titill: imperator rex? Svo kemur hún, þín dásamlega drotning, þitt dýrsta hnoss — ég efast sízt um það! með bros og fas, sem heimtar hlýðni’ og lotning, og hörundslit — úr Frakklands höfuðstað. — En reyndu’ að forðast grannans búðarglugga, þótt góða muni þar sé oft að sjá. Pví ef til vill þú sérð þar sjálfs þín skugga og sýnist eyrun vera furðu há. Og finst þér ei þú einhvers stöðugt sakna? Pér er sem flökurt, kinnin þunn og bleik. því eitthvað mun þó innra hjá þér vakna, sem uppreist gerir móti slíkum leik. Og finst þér ei, ef ferðu rétt að skoða, að fólksins hylli sé af náð þér veitt, að keisara’ dýrðin kúfist upp sem froða, en kjarninn sjálfur — hann er ekki neitt? Og sérðu ei að leynir fjöldans flaður þess fyrirlitning, sem á bak við er? Og sérðu’ ei gegnum hinna háu smjaður hvar hnefi ruddans steytist móti þér? 6*

x

Eimreiðin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.