Eimreiðin


Eimreiðin - 01.05.1905, Page 1

Eimreiðin - 01.05.1905, Page 1
8i Keisarinn. Pú göfugi vinur í valdanna hæðum ég veit að þú baðar í hirðlífsins gæðum og vona’ að þú unir nú auðnunnar skini, með eintóma höfðingja fyrir vini. Peir ei verða taldir, sem alla tíð þrá það, en altaf teljandi þeir sem fá það. Nú siturðu’ í tigninni öllum ofar hver einasti maður þig hástöfum lofar. Svo býzt ég við árangri bráðum og vænum af biskupa signing og prestanna bænum, og að herinn til fylgis þér himninum bifi með hrópinu máttuga: keisarinn lifi! Og þrátt fyrir vinnuna vona’ eg þú lifir, þótt vilja’ hinna trúu’ þú undirskrifir, og ekki það kröftunum of mikið slíti þótt einstaka sinnum menn dýrð þína' líti. Eins vona eg að hástóllinn valtur ei reynist og veröldin aldrei á móti þér beinist, og seint í landinu lærist sá siður að leggja þitt vald eins og hégóma niður. En gaktu samt hljótt um þinn hallarsal. — IJar hangir á veggjunum myndaval af feðrum, sem samtíð og fortíð lofa. l’eir frægustu’ í marmara, fullri stærð. — En forðastu að trufla þeirra værð. þér væri það bezt, ef þeir vildu sofa. l'eir standa þar klæddir í stál — ekki gull. Hve stór er ei bringan og hugrekkisfull sem mynduð af tveimur miklum skjöldum. Peir brutust til valda. — I’eir biðu’ ekki þess, 6

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.