Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Volume

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1940, Page 156

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1940, Page 156
148 unum í ritgerð minni, eins og Sigurður Vigfússon hélt. Það er ekki beinlínis líklegt, að Sæmundur Hólm hafi nefnt vötnin hjá Bláfjalli Fiskivötn, ef þau á þeim tíma hefði heitið allt öðru nafni. 16. Ekki held ég, að Flosi hafi farið „sunnan Fljótshlíðar með lið sitt upp á Þríhyrningshálsa". Er hann kom yfir Markarfljót móts við Húsadal, hefir hann stefnt beint til Hlíðarinnar, austanvert við Barkarstaði, og þar upp á Þríhyrningshálsa. Líklegt má telja, að skógur hafi verið á þessari leið, eins og í Þórólfsfelli og í Rauðu- skriðum. Ekki verður annað séð en að þeir Flosi hafi farið alveg sömu leið til baka, er þeir höfðu verið í Þríhyrningi í 8 daga. „Riðu þeir þá í braut (úr Þríhyrningi) ok fyrir norðan jökul (Eyjafjallaj.) ok svá, unz þeir kvámu til Svínafells“. Og þessa sömu leið fóru leitar- mennirnir eftir brennuna, úr Þríhyrningshálsum „ok svá ofan í Goðaland". 17. EÓS segir á bls. 82, að við Skúli „sviptum burtu stórjökli“ og gerum „hestfæra leið, þar sem jökullinn var áður“. Hvaða sönn- un hefir hann fyrir því, að jökull hafi verið á þessari leið á Njálu- tíð, eða þegar sagan var rituð? í þessu jöklamáli í fornöld, ætla ég nú að leiða sem vitni einn snjallasta og skarpskyggnasta jarðfræðing landsins, dr. Helga Pét- urss. í grein, er heitir „Jöklar á íslandi í fornöld“ (Skírnir 1916, bls. 429—30), sem er svar eða athugasemd við grein eftir Þorvald Thor- oddsen, segir hann svo: „Prófessor Þorvaldur gerir, að því er ég hygg, of lítið úr breytingum þeim, sem orðið hafa hér á loftslagi síð- an landið byggðist. Jöklarnir í fornöld — segir höf. — hafa að öllu verulegu haft sömu takmörk eins og nú. En þetta er óefað ekki rétt; jöklar virðast vera til muna stærri nú en þeir voru á landnámstíð og fram á 13. öld. Saga Markarfljóts virðist sýna þetta glögglega. . . . Það virðist augljóst, að Markarfljót hefir þurft að vaxa mjög mikið til þess að leggja Rangárnar undir sig. En hinn mikli vöxtur Markar- fljóts stafar óefað af því, að jöklarnir, sem fljótið kemur úr, hafa vaxið til muna. Vatnanöfn austar benda í sömu átt; engum kæmi til hugar nú á dögum, að kalla Jökulsá á Sólheimasandi eða Hverfisfljót læki eins og áður var gert. Að Skeiðará ræður nú nafninu á sandin- um, en ekki Lómagnúpur, eins og til forna, kemur sjálfsagt af því, að áin óx svo mjög, að sandsins varð ekki minnzt svo, að áin kæmi ekki í hugann miklu fremur en gnúpurinn, svo svipmikill sem hann er. Þegar farartálmi fór að verða að ánni, hafa menn farið að kenna sandinn við hana. Þá má enn minna, ef til vill, á Þórsmörk, sem nú eru aðeins litlar leifar eftir af, og á skóginn breiða, sem Breiðamerk- urjökull tekur nafn af; er þar nú skóglaust með öllu. . . . Jökulsárn-
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168

x

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Árbók Hins íslenzka fornleifafélags
https://timarit.is/publication/97

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.