Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Árgangur

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1940, Síða 82

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1940, Síða 82
74 ok bundu þar hesta sína ok dvölðusk til þess er mjök leið á kveldit“. Eftir kenningu þeirra Sigurðar Vigfússonar (sjá ísafold 1883, bls. 103) og A. J. J. er alls ekki um það að tala, að þeir leynist. Þeir bara bíða þarna, eftir orðum sögunnar varla minna en eina klukkustund, heimamenn vita um þá, ekkert gerist, engar skærur, engar tilraunir til að senda menn á aðra bæi til að safna liði! Þegar hér er komið sögu, mælti Flosi: „Nú skulu vér ganga heim at bænum ok ganga þröngt ok fara seint ok sjá, hvat þeir taki til ráðs“. Njáll stóð úti ok synir hans ok Kári ok allir heimamenn ok skipuðusk fyrir á hlað- inu“ — er það ofur skiljanlegt, Njáll hafði beðið menn fara ekki til svefns og vera vara um sig. Nú fara þeir að tala saman Njáll og synir hans, og ganga þeir að lokum inn. „Flosi mælti: „Nú eru þeir feigir, er þeir hafa inn gengit. Skulu vér nú heim ganga sem skjótast ok skipask sem þykkvast fyrir dyrrin ok geyma þess, at engi komisk í braut — hvárki Kári né Njálssynir, því at þat er várr bani“. Þeir Flosi kómu nú heim ok skipuðusk umhverfis húsin, ef nökkurar laun- dyrr væri á“. Öðruvísi mér áður brá. Eftir að Flosi hefur gefið óvin- um sínum tækifæri að fara hvert á land sem þeir vilja og safna liði um allt héraðið, fer hann nú allt í einu að hyggja að því, að enginn komist á burt. Hér kemur fram sami hugsunarhátturinn og í fyrir- ætlun hans um ferðina yfirleitt: hann fer hratt yfir og með leynd, sami hugsunarháttur og kemur fram í orðum hans eftir brennuna, þegar hann hefur heyrt af undankomu Kára. Og þetta er sami hugs- unarháttur og kemur fram í árásarferðum Sturlungaaldar, svo sem Eyjólfs ofsa, þegar hann fer að Gizuri á Flugumýri. En hvernig samrýmist þetta kenningu Sigurðar og A. J. J.? Það samrýmist henni alls ekki, heldur sýnir, að hún er fjarstæða. Meining söguritarans er, að brennumenn leynist í dalnum, og ef það kemur ekki heim við stað- háttu, og það játa þeir Sigurður og A. J. J., þá sýnir það, að sögurit- arinn er hér ekki nógu kunnugur, hefur að líkindum haft sagnir þaðan, en ekki séð staðina sjálfur. Þetta virðist mér nú alveg augljóst mál, og að því athuguðu stendur ekki á miklu, hvort „dalurinn“ í hvolnum rúmar brennumenn og hesta þeirra, eða ekki. En það spillir ekki að athuga það líka. A. J. J. segir, að lægðin sé nál. 800 ferm. Hvernig hann fær þá tölu, er mér hrein ráðgáta. Auðvitað telst sléttan uppi á hólnum ekki til „dals- ins“, heldur er það aðeins sjálf lautin, sem þar er, og er hún, að því er ég fæ bezt séð, alls ekki meira en þriðjungur þess flatar, sem A. J. J. tiltekur, og komast þar þá vitanlega ekki fyrir 180 hestar og 100 menn. Niðurstaða mín er því nákvæmlega sama og Finns Jónssonar í
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132
Síða 133
Síða 134
Síða 135
Síða 136
Síða 137
Síða 138
Síða 139
Síða 140
Síða 141
Síða 142
Síða 143
Síða 144
Síða 145
Síða 146
Síða 147
Síða 148
Síða 149
Síða 150
Síða 151
Síða 152
Síða 153
Síða 154
Síða 155
Síða 156
Síða 157
Síða 158
Síða 159
Síða 160
Síða 161
Síða 162
Síða 163
Síða 164
Síða 165
Síða 166
Síða 167
Síða 168

x

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Árbók Hins íslenzka fornleifafélags
https://timarit.is/publication/97

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.