Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Volume

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1940, Page 77

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1940, Page 77
69 rita, að á því getur maður, sem kemur óundirbúinn frá öðrum störf- um, vel flaskað. Því að það er með þetta rétt eins og t. d. banka- störf, að til þess að vel fari, þarf bæði dálitla þekkingu og reynslu. Ég skal leyfa mér að fara fáum orðum um handrit Njálu, og kem- ur aðallega þrennt til athugunar: skyldleiki, gæði, aldur. Skyld- leiki þeirra hefur aldrei verið vandlega rannsakaður, tilraunir von Carolsfelds og Jóns Þorkelssonar eru ekki fullnægjandi (ég skal rétt sem dæmi nefna, að ég held að sanna megi, að þeim hefur ekki tekizt að gera grein fyrir skyldleika þeirra handrita, sem kölluð hafa verið A og E). Samt er nokkurn veginn ljóst um flokkaskiptingu hand- ritanna, annars vegar er 1) DBF, hins vegar 2)GI, en 3) A og 4) E þar á milli. Það er þess vegna mikils vert, þegar 2) og 3)—4) eru saman, sérstaklega ef eitt eða fleiri af l)-flokknum styðja þann les- hátt. Líklegt er, að milli flestra eða allra handrita, sem nú eru til, og frumritsins liggi glataðar uppskriftir, en ég þykist ekki hafa kom- ið auga á nokkra sönnun þess, að öll handrit vor stafi frá sömu upp- skrift frumritsins (eins og v. Carolsfeld og Jón Þorkelsson töldu). Um gæði handritanna er það eitt að segja, að þau virðast yfirleitt hafa frekar góðan texta. En um aldurinn er þess að gæta, að elztu varðveitt handrit virðast ekki vera öllu meira en áratug yngri en frumritið. Hér er nú ekki svo fátt, sem hafa má gagn af. Villur, sem eru í öllum hand- ritum, eru t. d. að öllum líkindum úr frumtextanum, en þegar hand- ritunum ber á milli, er þó oft von um, að vita megi nokkuð um frum- textann. Nú er að líta á Þrándargil og Rangá. Þrándargil er nefnt í FB annars vegar, G hins vegar, E er ólæsilegt, eyða í öllum öðrum skinn- bókum. Allt mælir því með, að örnefnið Þrándargil hafi staðið í frum- riti Njálu. Þá er Rangá. I 98. kap. stendur, að Lýtingur og bræður hans „fóru í skógana fyrir austan Rangá“, og stendur Rangá í F, A, E, G, I og tveimur brotum, en Þverá í B. í. 99. kap. segir, að þeir Skarphéðinn fóru til þessa sama staðar, „upp til Rangár“, F, E, I; „upp með Rangá“ A, G, og eitt brot; en B: „upp til Þverár“. Á báð- um þessum stöðum má telja víst, að frumrit Njálu hafi haft Rangá(r). Texti handritsins B er leiðrétting manns, sem hefur þótzt þekkja bet- ur til í Rangárþingi. Sk. G. hugsar sér (bls. 66) eins og ég, að leshátturinn Rangá sé úr frumriti Njálu. En hann hugsar sér ennfremur, að þetta sé mis- ritun, eigi að standa Þverá, og bendir í því sambandi á pennaglöp Guðbrands Vigfússonar í tímatalsritgerð hans. Já, víst eru til mis- ritanir í verkum dauðlegra manna, engum dettur í hug að neita því. Það er létt verk og löðurmannlegt, þegar eitthvað er að texta, að
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168

x

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Árbók Hins íslenzka fornleifafélags
https://timarit.is/publication/97

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.