Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Volume

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1940, Page 62

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1940, Page 62
54 heiðarlegur og drengilegur, og er það alveg eins og vænta mátti af hinum merka öldungi. Hreppapólitík. Sk. G. kemst tvívegis svo að orði, að Njála sé fyrst og fremst héraðssaga Rangæinga. Ég þykist skilja á allri grein- inni, að Sk. G. þætti að því missir fyrir hérað sitt, ef það reyndist, að hún væri ekki rituð þar. Hann gagnrýnir það mjög, sem ég segi í bók minni um staðþekkingu í Skaftafellsþingi og Rangárþingi, þykir ég „draga um of taum Skaftfellinga sem hugsanlegra söguritara“ og segir það vera það, sem helzt hafi gefið sér tilefni til athugasemda sinna. Þegar slíkt er sjónarmið, er nokkur hætta á, að héraðsmetn- aður hafi helzt til mikið að segja. En það er Sk. G. ljóst, því að hann segir: „Jeg vildi forðast að draga taum Rangæinga sem Njálu-ritara meira en efni eru til, en jeg kann því hins vegar illa, að hallað sje á þá ómaklega í því tilliti“. Þessi viðleitni er vitanlega bráðnauðsyn- leg, og má segja, að ekki verði nær komizt. 1 ritgerð A. J. J. er ekki getið um neina slíka viðleitni, enda verð- ur hennar ekki vart. Þar er genginn berserksgangur og hvorki litið til hægri né vinstri, öllum ráðum beitt til að hrekja það sem ég hef sagt um staðháttalýsingar í Njálu. Ástæðan leynir sér ekki, og kemur hún allra skýrast fram í dómi A. J. J. á ritum mínum. 1 „Um Nj.“ hafði ég látið í ljós, að ókunnugleika gætti á sumum stöðum í frásögnum Njálu úr Rangárþingi, og á þessi bók mín ekki upp á pallborðið hjá A. J. J. Þar eru „rök, sem tæplega hæfa vísindariti“, málaflutningur minn er „hæpinn, svo ekki sje meira sagt“ — og enn önnur stillileg orð eru um hana höfð. En þegar kemur til greinar minnar í Skírni „Njála og Skógverjar", þá fer að koma annað hljóð í strokkinn, enda er í þess- ari grein bent á líkur fyrir sambandi milli Njálu og ættar einnar, sem átti heima vestan við Jökulsá á Sólheimasandi. Það er ekki laust við, að A. J. J. fari að gerast léttur í máli, honum þótti meira að segja gaman að lesa greinina. Og þegar loks kver mitt „Sagnaritun Oddaverja“ kemur til skjalanna, fer verulega að hækka hagur strympu, jafnvel svo mjög, að A. J. J. gerir í greinarlokin mín orð að sínum. Þetta eru þá ekki svo litlar framfarir. Allt er bezt, þá endirinn allra beztur verður, segir máltækið. Það mætti kannske ætla, að ég léti mér þetta lynda. En svo er þó ekki. Að vísu skiptir álit A. J. J. um rit mín litlu máli. Það sem skiptir máli, er sú hreppapólitík, sem stjórnar penna hans, og henni mótmæli ég. Það gildir einu, hvort höfundur þeirrar sögu, sem hér um ræðir, eða ein- hverrar annarar sögu, er Rangæingur eða Skaftfellingur eða t. d. Þingeyingur, og það er skylda vísindamannsins að láta sig það einu
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168

x

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Árbók Hins íslenzka fornleifafélags
https://timarit.is/publication/97

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.