Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Årgang

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1940, Side 52

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1940, Side 52
44 brennunnar, og þá til þeirra vatna, er nú kallast Álftavötn, „ok nökkuru fyri vestan vötnin“ og stefnt svo vestur á sandinn, og því síður virðist nokkur ástæða til að rengja það, sem sagt er um eftir- leitarmenn brennumanna eftir brennuna, að þeir hafi sumir riðið „norðr allt til sands“, þ. e. Mælifellssands, en sumir til hinna sömu vatna, sem brennumenn höfðu riðið til og nokkuru fyrir vestan, er þeir fóru að austan, þ. e. til þeirra vatna, er nú kallast Álftavötn. Um Fiskivötn norðan Tungnár getur ekki verið að ræða; þangað hafa að sjálfsögðu hvorki brennumenn nje leitarmenn þeirra farið á þessum ferðum. Geti menn ekki fallizt á þá skýring Sigurðar Vigfússonar, að Álftavötn þessi norðvestan-við Bláfjall hafi fyr á öldum heitið Fiskivötn, gæti það vitanlega komið til mála, að líta á nafnið „Fiski- vötn“ í báðum frásögnunum í Njáls-sögu sem eins konar ritvillu höf- undar eða uppskrifara, sprottna af vangá eða misminni eða jafnvel, ef til vill, jafnframt af ófullkominni þekkingu á því, hvað þessi vötn hjetu, sem þeir brennumennirnir og leitarmennirnir riðu til. Það, að þarna, nálægt þeirri leið, sem sagt er, að þeir Flosi hafi riðið að austan, eru vötn, þessi Álftavötn norðvestan-við Bláfjall, kemur vel heim við frásagnirnar, ekki hvað sízt við hina seinni, um eftirleitar- menn, að þeir hafi sumir riðið til þessara vatna, hinna sömu, sem höfundur hafði áður sagt, að þeir Flosi hefðu riðið til, því að eftir- leitarmenn hafa vel getað gert ráð fyrir því, að brennumenn hefðu vikið nokkuð úr leið á þennan afvikna stað norðvestan-undir Blá- fjalli, þar eð þar gátu þeir verið í hvarfi niðri í dalverpinu og haft vatn og haga fyrir hesta sína. Hvert sem nafnið hefur verið á vötn- unum og staðnum þarna í fornöld, hefir hann sennilega verið vel kunnur mönnum úr Skaftártungu og jafnvel öðrum úr vesturhluta Skaftafellsþings, og vilji menn ekki fallast á, að staðurinn eða vötnin hafi þá heitið Fiskivötn, bendir það sízt á, að það sje úr skaftfellsk- um penna, að þau eru kölluð svo 1 Njálssögu. Að síðustu nokkur orð um nafnið á Fiskivötnum, er nú nefnast svo, norðan Tungnár. Sigurður Vigfússon áleit, að Fiskivötn norðan Tungnár hafi „f gamla daga“ heitið Veiðivötn. Byggði hann þetta álit sitt á afskrift af dómi frá 1476, þar sem þau voru nefnd svo. En það varð brátt aug- Ijóst mál, að þessi afskrift var fölsuð og að vötnin hefðu ekki verið nefnd, hvorki einu nje öðru nafni, í dómnum, frumskjalinu.1) — Það út-af fyrir sig er í rauninni bending um, að vötnin hafi þá, um 1476,, 1) Sjá Fornbrs. VI., 78.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164
Side 165
Side 166
Side 167
Side 168

x

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Árbók Hins íslenzka fornleifafélags
https://timarit.is/publication/97

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.