Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1917, Síða 33
33
i dya þeirri hjá Glaumbæ í Reykjadal, aem nefnd eb
hjer að framan (sbr. nr. 6946). — Utan um hestsdysina
voru lagðir hraunsteinar í hring, og hafa þeir verið
aðfluttir um all-langan veg; hefir verið jarðvegur og
sennilega skógur yfir þessu svæði, er dysjarnar voru á,
þegar þær voru gjörðar.
6949. 1B/7 Innsigli úr silfri; stjettin er sporöskjulöguð, þverm.
2,4—2,6 sm., og grafinn á skjöldur með P og B á,
ör á milli og vefjast ormar um, en uppi á skildinum
er hjálmur og hálfur einbyrningur upp af, merki Eggerts-
ættarinnar. Blómskraut er út frá bjálminum til beggja
hliða. Halda er á og er hæðin alls 3,8 sm.; virðist
gjörð til að hengja innsiglið við úrfesti og mun það
vart eldra en frá fyrri hluta síðustu aldar. — Ovíst
hvers það er.
6950. íS/7 Vigfúsína Vigfússdóttir, ísafirði: »Sauma Siöna Book«,
skrifuð »af Gunnare Philippussyne Anno 1776«, 2 auð
blöð, titilblað og 20 blöð með uppdráttum til að sauma,
prjóna og vefa eftir ábreiður, sessur o. fl., vandlega
dregnum upp með bleki. Heft í grápappa, st. 31,5X20,3
8m. — Gunnar var bróðir Rannveigar, fyrri konu
Bjarna kaupmanos Sigurðssonar (Sivertsen) í Hafnar-
firði. Átti bókina síðast frú Steinunn Thorarensen og
hefir hún samkvæmt áletrun á saurblaðinu fengið hana
frá mági sínum, síðar eiginmanni, sjera Stefáni Thor-
arensen, 1857.
6951. 28/t Kormákur Ásgeirsson, Reykjavik: Smáprjónn (títu-
prjónn) úr messing, gamall, jarðfundinn á Skriðu í
Fljótsdal; 1. 5,5 sm.; hnöttóttur haus úr virvafningi,
þverm. 3,5 mm.
6952. — Einar Eiríksson, Eiriksstöðum á Jökuldal: Stóll, smíð-
aður úr birki, íslenskur, hefir verið vel gerður, en er
nú orðinn skemdur nokkuð og úr setan. Hæð á baki
69 sm : 1. bakfjalarinnar 55. sm., en bakið er annars
46.5— 47 sm. að br. Setuhæðin að framan er 30 sm.,
armhæðin 43,5. sm. Br. á hlið 47 sm., en að framan
46.5— 50 sm. Rimar 3 milli afturlota og aðrar 3 hvoru
megin milli afturfóta og framfóta, en 1 á milli fram-
fóta; setan hefir verið úr snæri eða þvengjum, sem
verið hafa í götum á (mið-)rimunum. Bakið erlaglega
útskorið að framan, greinar, og á bakfjölinni höfðalet-
ö