Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1917, Blaðsíða 32
sþerrileggir 2, framfótarleggir (ossa mctacarpi digiti
tertii) 2, 1. 23 (eyddur) og 23,5 sm., jaxlar 2, smáköggl-
ar 2 og 2 rifbútar.
Þessum beinum (nr. 6947—48 a-b) fylgir þessi
skýrsla í dagbók fornmenjavarðar:
Litlu-Núpar heitir eyðibýli eitt i fjaxamýrar
landi; er það suðvestan í svonefndum Heiðarenda,
enda Hvammsheiðar, í krika, sem gengur þar inn í
heiðina upp frá Laxá. Eru þar uú valllendisbrekkur
og móar og sjer þar á nokkrum stöðum fornar tóftir,
bæði niður við ána og hærra uppi, en þar sem verið
hafa bæjarhúsin sjálf hafa verið á síðari öldurn beitar-
hús stór frá Laxamýri, sem lögð hafa verið niður fyrir
2 árum (1913). Túngirðing forn sjest umhverfis og
önnur varnargirðing miklu utar. Heflr hún varið
næsta heimalandið, sem að líkindum hefir alt verið
viði vaxið í fyrndinni. Nyrst í þessu landi innan girð-
ingarinnar hafa blásið upp 2 dysjar, því að þar hefir
sumstaðar orðið örfok niður í möl. Í annari komu í
Ijós 3. júlí í sumar mannabein, hauskúpa úr manni.
Bar svo við, að drengur nokkur frá Laxamýri sá hun-
angsflugu fljúga inn í þúfu. Rótaði hann þá í þúfunni
til þess að leita búsins, og varð þar þá fvrir hauskúp-
an, en flugnabúið var í henni. Fór hann nú heim og
sagði frá fundi sínum. Egill bóndi Sigurjónsson á Laxa-
mýri kom boðum til fornmenjavarðar, sem þá var á
ferð norður, og bað hann athuga dysina. Fornraenja-
vörður kom að Laxamýri 17. s. m. og athugaði þá
ásamt Agli bónda og Sigurði syni hans dysjarnar, er
þeir fundu þarna 2, mannsdysina með hauskúpunni og
handleggsbeinum, er sýndu, að maðurinn hafði verið
lagður með höfuðið í noiður og fætur i suður, og 14
m. í norðvestur frá henni fundu þeir leifar af hests-
dys með nokkrum beinum, er sýndu að liöfuð hestsins
hafði snúið í norður, en lend í suður. Sum af hest-
beinunum höfðu borist nokkuð frá dysinni, því að hún
var uppblásin, og skamt frá henni fundust mjaðmar-
bein úr öðrum hesti en þeim, er beinin fundust úr í
dysinni. Hefir verið hjer önnur hestsdys í nánd, en
hana var ekki hægt að finna; ef til vill hafa 2 heatar
verið dysjaðir saman i einni dys eins og átti sjer stað