Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1917, Síða 21
21
nr. 6866; 8t. 19X13,3 sm. Á smástöng með krossfæti.
Fáninn orðinn upplitaður; einkum hafa bláu reitirnir
orðið Ijósari. — Þessar fánamyndir (nr. 6864 — 67) eru
gerðar af gef. í Kaupmannahöfn í byrjun febrúarmán-
aðar 1906 og silkifáninn saumaður um likt leyti eftir
nr. 6867 af heitmey hans, nú konu. — Nr. 6866 er
er fyrsta frummynd þess fána fyrir Isiand, sem þenn-
an dag ('% 1915) er fyrirskipaður. Sbr. ennfr. Skýrslu
fánanefndarinnar (íslenski fáninn), Kvk. 1914, bls.
XI,—XII. og flgr. I., bls. .18—19.
6869. 27/o Prjedikunarstóll, smíðaður úr furu, með 5 hliðum og
myndar önnurhver rjett horn við aðra frá eins og í
reglulegum átthyrningi, en op er þar sem 3 hliðar
væru, ef heill átthvrningur væri. Hæð 102,5 sm., br.
hliðanna dálitið misjöfn: 27,5—32 sm. Stór brún, út-
standandi, er yör; virðist vera aukin, hækkuð. I
hverri hlið eru 2 spjöld og eru máluð blóm á þau með
ýmsum litum, allvel gert; alþýðulist. Á efra spjaldinu
i miðhliðinni eru 2 islensk skjaldarmerki saman; er á
öðru hálfur, gulur björn (ísbjörn) í rauðum feldi, og á
liinu hálfur, hvitur einhyrningur í bláum feldi. Á
hjálminum uppi yfir er stór fugl. Þar uppi yfir eru
uphafsstafirnir B:Þ:S:H: og J:S:D: Fyrir neðan
skjaldarmerkin stendur ANO 1726 Upphafsstafirnir eru
Brynjólfs Þórðarsonar, Illíðarenda, og Jórunnar Skúla-
dóttur, konu hans, sem var 8. maður frá Eggerti lögm.
Eggertssyni, er fjekk aðalsmerkið með einhyrningnum
°/8 1488. Hitt skjaldarmerkið er naumast gamalt; kann
Bryjólfur að hafa tekið það upp. — Prjedikunarstóllinn
var fyrst í Hlíðarenda-kirkju, en fór svo i Keldna-
kiikju, líklega 1802, er Hlíðarenda-kirkja var af tekin.
— Umhverfis spjöldin eru hliðarnar gráar nú, en hafa
fyrrum verið bláar og fyrst rauðar. Botninn er nú úr.
— Kominn frá Keldum á Rangárvöllum.
6870. — Lás eða skrá úr járni, gagnryðguð og ekki heil; nokk-
urn vegin ferstrend, 2,6 og 1,7 sm. að þverm. og bryggja
út úr á annari mjórri hliðinni; 5,5 sm. Kveikt saman
með látúni. — Fundið fyrir austan Knafahóla, og virð-
ist mjög gamallegt.
6871. — Blijmet nær teningsmyndað, þverm. 1,5, 1,3 og 1 sm ;
þyngd 19 gr. Hvítt orðið utan. Virðist fornlegt.