Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1917, Page 17
G850.
6851.
6852.
6853.
It
er ferstrent typpi með stóru gati; 1. 8,8 sm., br. 4,7—5,4
og þ. 2 sm. Járnkólfur hangir í járnkeng. Efnisþykt-
in er um miðju 6 mm. Frágangur allur fremur óvand-
aður. Klukkan er að öllu leyti mjög fornleg og varla
yngri en frá 13. öld. Hún er frá Sauðiauksdalskirkju.
10/o Grindavíkur-kirkja: Hökull úr rauðu og rósþryktu
ílosi, fóðraður með mórauðu ljerefti. Hvitleitur silki-
kross með gi’ænum bekk, rósofinn, er á bakinu. L.
bakhluta eftir miðju 81 sm , br. 50 sm. Brjósthluti er
eftir miðju 70 sm. að 1.; br. 51—60 sm. Líklega frá
17. öld. Orðinn mjög skemdur og er bættur, m. a.
innan á bakhlutanum, fóðrið, með þryktu ljerefti, lík-
lega parti úr altarisdúk, sem á er margskonar mynda-
skraut, englar, blóm o. fl. Er nú hneptur á vinstri
öxl, en hefir í fyrstu verið heill á herðum.
— Sama kirkja: Hökull úr rauöu flosi, sem nú er orðið
bleikt, fóðraður með bláköflóttu hörljerefti, bættur mjög
að neðan á bakhluta. Móbrúnn floskross er á baki og
rósaborðar ljósleitir á jöðrum hans og alis hökulsins.
Á brjósthluta ersaumað: ANNO — .1. H. S. — 1779.
L. bakhluta 92 sm. í miðju og br. 42,5—51 cm., en
1. brjósthluta er 68 sm. í miðju og br. 42,5—51 cm.
Krækt á vinstri-öxl.
— Sama kirkja: Altarisdúkur, samansaumaður úr þykk-
um ullardúk, rauðum, og er hann bryddur rauðu kanta-
bandi, nema að framan, þar er saumuð við hann blá
flujelsbrún með bláu kögri og er hún eldri; 1. 106 og
br. 12,5 sm. án kögurs, en dúkurinn er 113,5 sm. að 1.
og 75 að br. Orðinn gamall, líklega frá 18. öld seint,
og skemdur af mús og mel.
— Jón Hallgrímsson, kaupmaður i Reykjavík: Myndablöð,
5 að tölu, um 31,5X20,5 sm. að stærð hvert; eru á
þeim annars vegar myndir af mönnum, dýrum og
skipum o. fl., dregnar upp með penna og bleki, og
bornir .ýmsir litii í; en hins vegar er skrifað mál,
íslenska, skrifuð með fljótaskrift, líklega heldur snemma
á 18. öld. Er það ilt aflestrar sökum rotnunar og
og óhreininda á blöðunum Myndirnar virðast yngri
og þó frá 18. öld. Á einu blaðinu eru margar myndir
af fólki við heyskap. Eru búningar sýndir allglögt;