Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1917, Qupperneq 16
Skýrsla
tini viðbót við Þjóðmenjasafoið árið 1915.
[Framhald].
6848. '% Leirkanna úr dökkgráum leir (»steini«) með brúnum
glerungi smádröfnóttum; h. 21,3 sm., öll síyöl, en mjög
misgild; hálsinn, sem sr 7,4 sm. að 1., er 7 sra. að
þverm, og botninn er 8, en um bumbuna, sem er jafn-
víð á ca. 6 sm. breiðu belti, er hún 13,5 sm. að þverm.
Handarhald er fest við hálsinn og gengur í boga út og
niður á bumbuna. A breiða beltinu umhverfis bumb-
una eru 6 skjaldarmerki í sporbaugum og þeir aftur
hver undir sinum skrautboga og súlur á milii; en hvert
skjaldarmerki er, eins og tíðkast, samsett af 4 eða fleiri
merkjum og á 4 af skjöldunum eru innri skildir.
Munu merki þessi vera þýsk aðalsmerki, en hjer eru
ekki þau rit fyrir handi, er af megi sjá hvaða ættum
þau tilheyri. Ártalið 1 — 5 — 9 — 8 er sett i 4 fyrstu
sporbaugana. — Könnur þessar voru gerðar í bænum
Ráren á Þýskalandi, skamt frá Aachen, á 16. og 17.
öldinni og þykja merkar, — þótt dýrmætari þeim sjeu
Siegburger-könnurnar, eins og nr. 147. — Þessi kanna
er mjög lik nr. 4119, sem er með ártalinu 1583 og
sögð ölkanna Guðbrands byskups Þorlákssonar. —Tin-
lok hefir verið á þessum könnum, en er nú af. Botn-
inn er sprunginn úr þessari og hefir verið feldur i blý-
botn. Hún hefir verið höfð fyrir skírnarvatnskönnu í
Sauðlauksdals-kirkju og þaðan er hún til safnsins komin.
6849. — Kirkjuklukka úr kopar, 1 17,5 sm, þverm. neðst 21,3
sm., en annars er hún mjórri og þó nær jafnvíð öll
fyrir ofan slaghringinn, 14,3—15,8 sm. Niður við
slaghringinn eru 2 upphleypt bönd, og 4 ofarlega, 2
og 2 saman með breiðari bekk á milli. í stað krónu