Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1917, Side 4
unni, sem er miðkringlan, er mynd byskups i fullum skrúða, með
mítur og bagal, og heldur hann uppi hægri hendi sinni til blessunár.
Fyrir honum krýpur í 4. kringlu kórsveinn með reykelsisker og enn
utar, í 5. kringlu, kyrja klerkar 3. Hjer er sýnt hið kirkjulega
byskup3vald. Munu myndir þessar settar af ásettu ráði og í ákveðnum
tilgangi, ekki einungis til að skreyta stólinn. Eins mun standa á
andlitsmyndunum, sem eru útskornar á miðjar rimarnar í bakinu,
niður undan myndkringlunum; er þar einnig höfuð byskups í miðju,
hægra megin við það virðist vera leikmanns andlit, en hins vegar
kórónað konungshöfuð; á ystu rimunum virðast vera helgar myndir,
höfuð Krists og Jóhannesar skírara(?). — Á neðri bakslánni miðri
er myud sitjandi manns með hettu mikla yfir höfði og herðum;
hann heldur lúðri á munni sjer, en fyrir framan hann gín
hvæsandi dreki. Má vera að mynd þessi, eða enn eldri frum-
mynd hennar, hafi haft ákveðna merkingu, eða að eins baráttuna
milli hins góða í líki manns og hins illa í líki drekans. Annars
er á báðum slánum, stólpunum öllura og báðum böndunum í
framhliðinni margs konar blómskraut í rómönskum stíl helst, dregið
og skorið af hinni mestu snild. Á miðfjölinni í framhliðinni eru
skornar 3 kringlur með blómum i, en sú sem er í miðið er mjög ein-
kennileg og verður varla litið öðruvís á en að hjer sje skorinn í
rósafiúri stafurinn A. Skal síðar vikið að því nánar.
Á bakslánni efri á 7727 er blóm í miðju og greinar beggja vegna;
hægra megin í þeim er stór dreki, en vinstra megin 2 ferfætt kynja-
dýr og dreki, komið fyrir á likau hátt og í hinum stóru lyklasylgj-
um frá 16. öldiuni og öðru rómöDsku og gömlu íslensku myndaskrauti.
Efst á slánni er sem útskorið band með upphækkuðum blómtening-
um á, en rúnir skornar á bandið í milli og skulu þær brátt skýrð-
ar. Á neðri slánni miðri er kringla með mynd af ríðandi manni,
með skjöld þríhyrndan í hægri hendi og brugðið sverð i vinstri.
Beggja vegna er skorið blómskraut; sömuleiðis framan á stólpana,
nema fljetta er á hægra bakstólpa. Á milli miðfjalanna í framhlið-
inni er sett lítið þverband og skorin á greinaflækja og mannsmynd
i, en á böndin fyrir ofan og neðan eru skornar kringlur með mán-
aðamerkjunum í, sex á hvort í sömu röð og mánuðirnir, og eru
raánaðaheitin rist í rúnum fyrir neðan, en fyrir ofan sagt um stöðu
sólar í tilsvarandi mánaðarmerki, og eru þær áletranir einnig í rún-
um, um 3 fyrstu merkin, en í latínuletri um hin, ©g allar eru áletr-
anirnar á latínu. Er fyrst mynd vatnsberans með vatnskönnu í
bendi; stendur T: lí': ÁÁ H'lRM (í st* í- Á )» Þ- e- s01 in aquaria