Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Volume

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1917, Page 1

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1917, Page 1
Grundar-stólar. Haustið 1843 sendi Ólafur trjesmiður Briem, Gunnlögsson Briems sýslumanns í Eyjafjarðarsýslu, bóndi á Grund í Eyjafirði, Finni pró- fessor Magnússyni í Kaupmannahöfn 2 gamla, útskorna stóla, ásamt öðru fleira, er Ólafur hafði keypt á uppboði, sem haldið hafði \ erið á ýmsum gömlum munum tilheyrandi Grundar-kirkju. — Forngripa- safnið var þá ekki stofnað enn og sendu ýmsir menn á íslandi, sem áhuga höfðu á að vernda gamla hluti, ýmsa jarðfundna forngripi, kirkjugripi forna o. ti. til Fornritafjelagsins (Det kongelige nordiske Oldskriftselskab), eða fornmenjasafnsins (Oldnordisk Museum, nú Nationalmuseets danske Samling) í Kaupmanuahöfn, eða þá til Finns prófessors Magnússonar, sem mun hafa lagt nokkra stund á að út- vega því safni íslenska forngripi. Hann afhenti safninu þegar stóla þessa frá Grund, ljet draga upp og prenta myndir af þeim ásamt skýrslu um þá í tímariti Fornritafjelagsins, Antiquarisk Tidsskrift 1843—1815, bls. 57 o. s. frv., og myndirnar á I. og II. myndabl. Þessar myndir eru greinilegar og allrjettar; þær fylgja nú með at- hugasemdum þessum og sýna betur en gjört verður með lýsingum einum alla lögun og útskurð stólanna. í bók sinni Runehallen i det danske oldnordiske museum (Khöfn 1868; bls. 18—21) skýrði próf. George Stephens frá áletrununum á stólunum, nær fullkomlega rjett. — Verður ekki hjer farið út í að benda nákvæmlega á hverja villu fyrir sig i ritgerðum þessum; geta þeir, sem það vilja, gert það við samanburð. Stólarnir eru mjög áþekkir hvor öðrum að efni, lögun og allri gerð, og eru svipaðir öðrum gömlum íslenskum stólum, sem nú eru i Þjóðmenjasafninu, en einkum þó Drafiastaða-stólnum, sem er frá 16. öldinni (nr. 443)!). Þeir eru misstórir. Annar er með tölu- merkinu 7726, sá stærri, en hinn 7727. Stærðin sjest ekki af mynd- unum, en nokkur mál sýna hana: ') Sbr. Skýrelu um Forngri. II, bli. 49, og Árb. fornl.fjol. 1897, bli. 43—44 meD mynd. I

x

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Árbók Hins íslenzka fornleifafélags
https://timarit.is/publication/97

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.