Morgunblaðið - 13.11.1999, Qupperneq 77

Morgunblaðið - 13.11.1999, Qupperneq 77
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. NÓVEMBER 1999 77 Veruleiki sýndarinnar Tilvera (eXistenZ) Vísindaskáldsaga ★★★ Framleiðandi: David Cronenberg, Andras Hamori, Robert Lantos. Leikstjóri: David Cronenberg. Handritshöfundur: David Cronen- berg. Kvikmyndataka: Peter Suschitzky. Tónlist: Howard Shore. Aðalhlutverk: Jennifer Jason Leigh, Jude Law, Ian Ilolm, Don McKellar, Sarah Polley, Callum Keith Rennie, Willem Dafoe. (97 mín.) Bandaríkin. Myndform, 1999. Myndin er bönnuð innan 16 ára. HVAÐ er raunveruleiki og hvað ekki er spurningin sem nýjasta mynd kanadíska leikstjórans David Cronenberg spyr sig. Allegra Geller (Jennifer Jason Leigh) helsti leikjahönnuður heimsins, er að prufukeyra nýj- asta sýndarveru- leikaleikinn sinn, eXistenZ, með hópi fólks. Þegar þau eru að byrja ræðst á hana mað- ur með undarlega lífræna byssu. Geller nær að flýja með aðstoð Ted Pikul sem verður allt í einu að hennar persónulega lífverði. Þar sem leikjavélin hennar hafði bilað í árásinni biður Geller Pikul um að spila með sér einn leik.Cronenberg er einn líkamlegasti kvikmynda- gerðarmaður sem uppi hefur verið. Myndir hans fjalla flestar á einn eða annan hátt um afmyndun mannslíkamans af vísindunum eða poppmenningu („Brood“, „Dead Ringers", „Fly“ svo fá dæmi séu tekin). Hér er það tölvuspilið sem afmyndar líkamann en það þarf að tengja það í mænuna til þess að það virki. Myndin dregur áhorfandann strax inn í heim tölvuleikjarins þar sem mjög óljós skil eru á milli sýnd- ar og veruleika. Glæsileg frammist- aða Leigh, Dafoe, Law og Holm er mikill plús fyrir myndina, sem hef- ur að geyma margar góðar hug- myndir og bráðsniðugar fléttur. Þessi mynd sýnir það að Cronen- berg hefur engu gleymt, frekar hef- ur hann lært meira og notar það til þess að hrella undirmeðvitund áhorfandans. Ottó Geir Borg Doði Og dapurleiki (No Looking Back) Ekki aftur snúið__________ Drama ★ Leikstjóri: Edward Burns. Hand- ritshöfundur: Edward Burns. Aðal- hlutverk: Edward Burns, Jon Bon Jovi og Lauren Holly. (93 mín.) Bandarísk. Skífan, október 1999. ÖHum leyfð. MYNDIN gerist í sjávarbæ í New York-fylki og einkennist af grámyglulegum doða sem loðir við atburðarásina frá upphafí til enda. Þegar Charlie (Edward Bums) snýr aft- ur til heimabæj- arins hittir hann gömlu kærust- una, Claudiu (Lauren Holly) sem nú hefur hafíð sambúð með gömlum vini Charlies, honum Mike (Jon Bon Jovi). Ástarþríhyraingur- inn sem þar með skapast þarf ekki að koma nokkurri sál á óvart og úrvinnslan ekki heldur. Bums, leik- stjóri, handritshöfundur og aðal- leikari myndarinnar, drekkir verk- inu í klisjum og sá eini sem reynir að halda sér á floti er Jon Bon Jovi sem kemur nokkuð á óvart í hlut- verld sínu. Heiða Jóhannsdóttir FÓLKí FRÉTTUM Þreföld Janis Joplin ÞœgUegir og vandaðir sjónvarpssófdr SVO virðist sem aðdáendur Janis Joplin muni hafa úr nógu að velja í kvikmyndahús- um á næstunni því í það minnsta þrjár myndir eru í bígerð sem byggðar eru á ævi söngkonunn- ar. Variety grein- ir frá því að þriðja myndin sé úr óháða geiran- um, komi til með að kosta um 350 milljónir króna og að söng- og leik- konan Laura Theodore verði í að- alhlutverki. Leikarinn Roy Schei- der verður í hlutverki umboðsmanns hennar, Alberts Grossmans. Myndin er hugverk Joels L. Freedmans sem byggði handritið á viðtölum við samstarfs- fólk Joplin og hefur hann tryggt sér réttinn á nokkrum lítt þekktum lögum Joplin, og einnig lögum sem hún tók upp en samdi ekki. Áður hafði verið ráðgert að Marc Rocco myndi leikstýra Mel- issu Etheridge í annarri mynd sem nefndist „Piece Of My Heart" en Var- iety hermir að bæði stjaman og leik- stjórinn hafí hætt við verkefnið. Gary Fleder átti einnig að leikstýra Britt- any Murphy úr „Clueless" í aðal- hlutverkinu, en ekkert varð úr fjár- mögnun og er verk- efnið í lausu lofti. Fyrirtækið eyddi 70 milljónum króna í að tryggja réttinn á laginu „Piece Of My Heart". Sú mynd sem virð- ist helst lofa góðu byggist á sam- vinnu leikstjórans Nancy Savoca og leikkonunnar Lili Taylor. Áætl- að er að myndin kosti 1,5 milljarða króna og er stefnt að því að þær hefjist á næsta ári. Myndin er unn- in í samvinnu við bróður og systur Joplin og hafa framleiðendurnir tryggt sér réttinn á helstu lögum Joplin, þar á meðal „Mercedes Benz" og „Me And Bobby McGee". M.10:00-16:00 V lltt PUUMAN BRIDGET FONDA OLIVER RLATT í 'á i -■ ' *»* |gfe WHAT VOU SYND I HASKOLABIOI H4SKOL4BIO
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.