Morgunblaðið - 13.11.1999, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 13.11.1999, Blaðsíða 14
14 LAUGARDAGUR 13. NÓVEMBER 1999 MORGUNBLAÐIÐ HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ Samtök foreldrafélaga og foreldraráða í grunnskólum Kópavogs endurreist Foreldrastarf gert markvissara Þrír starfsmenn Staðlaráðs hjóla í vinnuna Morgunblaðið/Eiríkur P. Anna María Geirsdóttir, Þorgeir Sigurðsson og Salbjörg Óskarsdóttir eru ánægð með far- arskjóta sína, en þau nota hjólin í vinnuna allt árið um kring. Ódýr og heilsu- samlegur kostur Kópavogur SAMKÓP, Samtök foreldrafé- laga og foreldraráða í grunn- skólum Kópavogs, voru end- uireist í síðasta mánuði, en þau voru lögð niður fyi-ir um sex árum. Rúnar Þórisson, formaður Samkóp, sagði að með því að endurreisa sam- tökin væri meiningin að gera allt foreldrastarf markvissara en áður og skapa formlega tengsl á milli þeirra sem starfa á þessum vettvangi í Kópavogi. „Samkóp á að vera það bak- land, þar sem mál er brenna á foreldrum eru kynnt,“ sagði Rúnar. „Vænta má að með Samkóp geti foreldrar enn- frekar nýtt sér þau tækifæri, sem þeir hafa til að láta rödd sína heyrast og ná þannig fram markmiðum sínum.“ Helstu markmið Samkóp eru: ► Að standa vörð um réttindi bama til menntunar og þroska. ► Að beita sér fyrir auknum áhrifum foreldra á skóla- starf. ► Að stuðla að skipuiegu samstarfí aðildarfélaganna. ► Að vera sameiginlegur Göngubrú tilbúin næsta sumar Miklabraut VERIÐ er að steypa undir- stöður fyrir göngubrú yfir Miklubraut, en brúin kem- ur til með að liggja frá Grundargerði og yfir í Skeifu. Að sögn Haralds B. Alfreðssonar, verkfræð- ings hjá gatnamálastjóra, verður brúin tekin í notk- un næsta sumar og nemur heildarkostnaður við gerð hennar um 60 milljónum króna. Nýja göngubrúin mun annars vegar tengjast málsvari foreldra gagnvart stjórnvöldum. Rúnar, sem einnig situr í skólanefnd Kópavogsbæjar, sagði að hugmyndin að endur- reisn Samkóp hefði komið fram síðasta vetur á óform- legum fundum foreldraráða og stjórna foreldrafélaga grunnskólanna í Kópavogi. A einum fundinum var tilnefnd- ur starfshópur, sem hafði það hlutverk að undirbúa endur- reisn samtakanna. Vinnu starfshópsins lauk hinn 6. október, er samtökin voru formlega endurreist á fyrsta aðalfundi sínum f 6 ár. Þátttaka mætti vera meiri Aðalfundurinn var haldinn í Kópavogsskóla og sagði Rún- ar að allir foreldrar barna í grunnskólum Kópavogs hefðu verið boðaðir, sem og skóla- nefnd Kópavogs, fræðslu- stjóri, formaður Heimilis og skóla og formaður Samfok (Samtök foreldi’afélaga og foreldraráða við grunnskóla Reykjavíkur). Að sögn Rún- ars var aðsókn foreldra á fundinn viðundandi, en hann tók það hins vegar fram að svona almennt séð mætti göngustígnum sem Iiggur á milli Miklubrautar og Sogavegar, en hins vegar göngustíg, sem eftir á að ganga frá, en mun liggja frá Skeifunni að Álfheim- um. Harald sagði að jarð- þátttaka foreldra í skólastarfí vera meiri. Sótt um styrki til bæjaryfirvalda A aðalfundinum var m.a. kjörinn fimm manna stjórn og tveir varamenn og var fyrsti fundur stjórnarinnar haldinn 16. október. Fyi-sta verkefni Samkóp verður að halda nám- skeið fyrir stjórnir foreldrafé- laga og foreldraráða og sagði Rúnar að samtökin fengju styrk frá bæjaryfirvöldum vegna námskeiðahaldsins. Hann sagði að Samkóp hefðu einnig sent erindi til bæjaryf- irvalda, þar sem tilkynnt hefði verið um endurreisn samtak- anna og beðið hefði verið um styrk og eða aðstöðu fyrir þau, en að því hefði verið hafnað að svo komnu máli. Rúnar sagði að Samkóp og Samfok myndu starfa náið saman á ákveðnum sviðum og nefndi hann sérstaklega svo- kallað foreldrarölt, þ.e. þegar foreldrar taka sig saman og rölta um bæinn á kvöldin til að hafa auga með unglingum, en bæði samtökin fengu styi'ki úr Forvamarsjóði, að upphæð 100 þúsund krónur, vegna for- eldraröltsins. vinnu og gerð undirstaðna myndi Ijúka fyrir áramót, en þá tæki við brúargerðin sjálf. Brúin, sem verður 60 metra löng og 3 metra breið, verður mjög svipuð göngubrúnni við Rauða- gerði. Holtagaróar ÞRÍR starfsmanna Staðla- ráðs Islands í Holtagörðum mæta í vinnuna allt árið um kring hjólandi og telja reið- hjólið fyrirtaks samgöngu- tæki á höfuðborgarsvæðinu. Þau Anna María Geirsdóttir, Salbjörg Oskarsdóttir og Þor- geir Sigurðsson segjast nokk- uð ánægð með framkvæmdir í stígagerð í Reykjavík, en telja að nokkuð skorti upp á teng- ingar á milli sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu. Þá brenni það við að gangandi vegfarendur og hjólreiða- menn taki ekki nægjanlegt tO- lit hver til annars á stígunum. Öll eru þau sammála um að reiðhjólin séu ódýr og góður kostur í samgöngumálum og að betra sé að brenna frekar spiki en bensíni. Anna María segist m.a. leggja sitt af mörkum til að draga úr mengun og umferð með því að hjóla. Hún hjólar á hverjum vinnudegi frá Arn- arnesi í Holtagarða og segist vera um 30-40 mínútur á leiðinni, eftir því hvernig viðrar. Samtengingar stíga- kerfa milli bæjarfélaga eru að hennar mati ekki nægi- lega góðai’ og bendir á að enginn virðist t.d. sjá um að leggja stíga frá Hafnarfírði til Reykjavíkur. Hún hefur sjálf fundið sér leið heiman frá í Holtagai’ða eftir vegum, göngustígum og torfærum. Þorgeir segir að hann hafí fyrst byrjað að hjóla í vinn- una í sumar og tók þar upp fordæmi þeirra Önnu Maríu og Salbjargar. Hann býr í Kópavogi við Fossvogsdal og segist hafa orðið hissa á því hversu miklar framfarh- hafí orðið í stígagerð í Fossvogs- dalnum og víðar, en hann vandist hjólreiðum þegar hann bjó í Danmörku. „Mér þykir skemmtilegt að sjá hvernig þetta hefur þróast. Hjóla- og göngustígamir eru að verða gott samgöngukerfí, eins og t.d. í Fossvogsdalnum og meðfram ströndinni. Ég er bara að uppgötva allt aðra borg en ég þekkti.“ Hægt að nota hjólin allt árið Hann segir að tilkoma fjallahjólanna hafí breytt möguleikum hjólreiðamanna á Islandi til að nota hjólin allt árið. I snjó og hálku er t.d. hægt að skella nagladekki undh’ hjólin að framan, þannig að í flestum tilfellum skiptir færð ekki máli. Þor- geir telur að vakning sé í gangi varðandi notkun hjóla og að fleiri eigi eftir að nýta sér reiðhjólin sem samgöngu- tæki í framtíðinni. Þess vegna sé það mikilvægt í dag að huga vel að skipulagningu stíga á höfuðborgarsvæðinu. Salbjörg býr í Vesturbæn- um og hjólar á hverjum degi með lítið barn sitt í leikskól- ann og í vinnuna. Hún á ekki bíl en segh- gott að nota hjól- ið í flestar ferðir. Það kalli auðvitað á skipulagningu og að ekki sé hægt að vera í daglegum bæjarferðum. Henni þykir nokkuð skorta upp á að þeir sem nota göngu- og hjólreiðastígana taki tillit hver til annars. I umferðarlögum er hjólreiða- fólki beint á gangstíga frekar en akbrautir, en á gangstíg- unum hefur gleymst að gera ráð fyrir hjólandi umferð, sem veldur stundum ákveðn- um árekstrum. Salbjörg segir að þannig sé nokkuð um að menn séu með hunda lausa og að henni standi ekki á sama þegar hún mæti hundum sem ekki eru í bandi. Hún hefur lent í því að hundur hefur stokkið á hana og einnig að hundur í langi’i ól hljóp fyrir hjólið, sem flæktist í bandinu með þeim afleiðingum að hún féll af hjólinu. „Það þurfa allir að taka tillit tO hinna og vera vel merktir. Það þýðir ekki bara að gagnrýna að hjólin séu illa merkt, gangandi vegfarendur sjást oft dla. Það er ekki nóg fyrir þá að sjá hjólin, hjól- reiðamenn verða líka að sjá þá sem eru gangandi.“ Morgunblaðið/Jim Smart Verið er að steypa undirstöður fyrir göngubrú yfir Miklu- braut um þessar mundir. MÖL & SANDUR HF V/Súluveg - Akureyri - sími 460 2200 - fax 460 2201 ATVINNA Óskum eftir að ráða: Verkstjóra til starfa í hellu- og röradeild fyrirtækisins. Nauðsynlegt er að viðkomandi sé vanur verkstjóri, þekking á vélum og tækjum æskileg (vélvirki - járniðnaðarmaður). Framtíðarstarf. Múrara til starfa í einingaverksmiðju og helludeild fyrir- tækisins. Framtíðarstarf. Nýjar og fullkomnar helluvélar verða teknar í notkun í vetur. Möl og sandur hf. var stofnað 1946. Fyrirtækið rekur steypustöð, er með umfangsmikla röra- og helluframleiðslu, vinnuvélaleigu, sölu malarefna og annast jarðvegsskipti. Heildarstarfsmannafjöldi er 30-50 manns, eftir árstíðum. Umsóknareyðublöð og nánari upplýsingar á skrifstofu fyrir- tækisins. Boð og bönn í umferðinni Reykjavík LÖGREGLUSTJÓRINN í Reykja- vík hefur tdkynnt um ný boð og bönn í umferðinni í Reykjavík. Sam- kvæmt tillögu borgarráðs hefur verið ákveðið að banna bflstjórum að taka u-beygju á mótum Sæbraut- ar og Héðinsgötu, á mótum Lækj- ai’götu og Skólabrúar og á mótum Gullinbrúar og Fjallkonuvegar. Sett hefur verið stöðvunarskylda á Draghálsi og Krókhálsi gagnvart umferð um Hálsabraut, ásamt stöðvunarskyldu á Starhaga gagn- vart umferð um Suðurgötu. Þá hef- ur verið ákveðið að biðskylda verði á Blómvallagötu gagnvart umferð um Sólvallagötu og á Brekkustíg gagnvart umferð um Öldugötu. Einnig verður biðskylda í Skipholti og Einholti gagnvart umferð um Stórholt. Lögreglustjóri hefur einnig til- kynnt að einstefna verði á Týsgötu milli Skólavörðustígs og Þórsgötu frá Skólavörðustíg til suðurs og á Óðinsgötu verður einstefna milli Þórsgötu og Skólavörðustígs frá Þórsgötu til norðurs. í Seljahverfi hefur verið ákveð- ið að setja á 30 km hámarkshraða á Seljabraut milli Jaðarsels og Engjasels og hefur sú ákvörðun þegar öðlast gildi. Þann 1. desem- ber nk. mun einnig verða 30 km hámarkshraði á eftirtöldum göt- um í Seljahverfi: Flúðaseli, Engjaseli, Bakkaseli, Brekkuseli, Dalseli, Fífuseli, Fljótaseli og Fjarðaseli.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.