Morgunblaðið - 13.11.1999, Síða 72

Morgunblaðið - 13.11.1999, Síða 72
3 72 LAUGARDAGUR 13. NÓVEMBER 1999 MORGUNBLAÐIÐ Nýjar vörtir PelsjaRkar Kápur Úlpur Ullarjakkar - stórar stærðir Hattar og hú£ur N#HH5IÐ Mörkinni 6, sími 588 5518 Ný sending af samkvæmis- drögtum og síðum kjólum. Ennfremur buxna- og pils- dragtir við öll tækifæri. Opið laugardag 10-14. mniarion Reykjavíkurvegi 64, sími 565 1147. í DAG MMKMDI Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15 frá mánudegi til föstudags Strætisvagna- stöð við Hvamm MIG langar að spyrja for- svarsmenn Almennings- vagna hvenær við eigum von á strætisvagnastöð við Hvamm, við heilsu- gæslustöðina i Smáran- um? Á sama svæði eru bæði Sparisjóðurinn, sem er nýfluttur þangað, og sjúkraþjálfunin Táp. Það ganga engir vagna þarna og það er þó nokkur gangur fyrir fólk að ganga frá Smáranum þarna uppeftir. Það er eins og þetta sé ekki hannað nema fyrir þá sem eru á bílum. Það væri betra fyrir okkur að hafa lækni inni í Mjódd heldur en í Hvamminum vegna strætisvagnaferðanna, sem eru hagstæðari inn í Mjódd. Emilía. Styrkjum fjölskylduna LAUFEY hafði samband við Velvakanda og vildi hún koma á framfæri upplýsingum til þeirra sem styrkja vildu fjöl- skyldu litla drengsins sem var sendur til Skotlands til lækningar vegna lungnasjúkdóms. Laufey segir að þeir sem vilji styrkja þau geti lagt inn á reikning í Búnaðar- bankanum, Grundarfirði, reikningur nr. 0321-26- 222999. Tapað/fundið Gullarmband í óskilum GULLARMBAND fannst á Seltjarnarnesi 2. nóvem- ber. Eigandi vinsamlega hafí samband í síma 551 6413. Giftingarhringur og gullnæla týndust GIFTINGARHRINGUR, stór og útskorinn, týndist sl. þriðjudagskvöld. Hringurinn er með áletr- uninni „Siggi“. Einnig týndist E-gullnæla sl. miðvikudagskvöld. Skilvís fínnandi hafi samband í síma 553 7383 eða 588 1657. Morgunblaðið/Ásdís Þessir duglegu krakkar söfnuðu 11.000 kr. til styrkt- ar Rauða krossi Islands. Krakkarnir söfnuðu með sölu á gömlum munum. Þau eru í Melaskóla í Reykjavík og heita: Heiðdís Guðbjörg Gunnarsdóttir, Magnús Már Hauksson, Hafþór Sævars- son, Sigurþór Sævarsson og Sigursteinn J. Gunnarsson. Þú hittir guð og rwenn (IColaportin LiríÆteAjÆfcrJ'T:1 Antikmarkaðurinn er opinn laugardaga og sunnudaga kl. 11-17. Þar er að finna mlkið úrval af antlkvöru s,s„ gömul matar- og kaffistell, húsgögn, gamlar bœkur, notuð helmilistœkl, postulín og margt flelra. Kolaportsmessa verður í Kaffi Porti á morgun sunnudag kl. 14:00. Prestar verða Jakob Ágúst Hjálmarsson, Bjarni Karlsson ogjóna Hrönn Bolla dóttir. Anna Sigríður Helgadóttir mun syngja við undirleik Árna Heiðars Karlssonar á píanó. KOLAPORTIÐ Kolaportið er opið föstudaga kl. 12-19 og laugardaga og sunnudaga kl. 11-3 7 Víkverji skrifar... SPAKUR maður sagði eitt sinn að það væru rónarnir sem kæmu óorði á brennivínið. Þetta má líklega til sanns vegar færa og í ljósi þess finnst Víkverja það orka tvímælis af Nýkaupsmönnum að nota Spaugstofurónana, Boga og Örvar, í auglýsingu til styrktar baráttunni fyrir afnámi einkaréttar ÁTVR á sölu áfengra drykkja. Þeir félagar Bogi og Orvar virðast að vísu vera bestu skinn, en sjálfsagt er það lítið tilhlökkunarefni fyrir matvörukaupmenn og viðskiptavini þeirra, ef fólk sem á við alvarleg áfengisvandamál að stríða fer að venja komur sínar í matvöruversl- anir, eða hanga þar fyrir utan eins og oft vill verða við áfengisverslan- ir ríkisins. Víkverji vill að það komi skýrt fram, að hér er ekki verið að gera lítið úr því ógæfusama fólki sem hefur orðið Bakkusi að bráð. Áfengissýki er of alvarlegur sjúk- dómur til að hafa hann í flimting- um. í þessum efnum ber að rétta þeim hjálparhönd sem eiga við þetta vandamál að stríða, fremur en að gera grín að þeim. Það er því álitamál hversu langt eigi að ganga í gamanmálum um þetta fólk, þótt grínið sé góðlátlegt, eins og hug- myndin á bak við persónur Boga og Örvars sjálfsagt er. XXX INNUFÉLAGAR Víkverja voru nú í vikunni að ræða hlý- indin undanfarna daga og rifjuðust þá upp frásagnir af veðurfari hér á landi haustið 1917. Einn félaganna minntist þess að gamall maður hafði sagt honum að svo hlýtt hefði verið á Þorláksmessu þetta ár, að hann hefði gengið um utandyra á skyrtunni. Svo sem kunnugt er skall „frostaveturinn mikli“ á í jan- úar árið 1918. Menn skyldu því fara varlega í að fagna óeðlilega miklum hlýindum á þessum árstíma. Af þessu tilefni skal hér rifjuð upp veðurlýsing frá þessum tíma. Haustið 1917 var óvenju hlýtt eins og áður segir, jafnvel svo að elstu menn mundu ekki annað eins. Hinn 5. janúar 1918 skall hins vegar á norðanveður með fannkomu og frosthörkum um allt land. Hafís dreif að landi norðaustan-, norðan- og norðvestanlands og víða lagði víkur, voga og jafnvel stóra firði. Gátu menn þá farið fótgangandi eða ríðandi langar leiðir á ísnum, sem engin sambærileg dæmi voru um í manna minnum. Frosthörkumar voru mestar í janúar og undir lok mánaðarins var mjög farið að di’aga af fólki enda jók það á nauðimar að víðast hvar var eldsneyti af skom- um skamti. Mest mældist frostið á Grímsstöðum á Fjöllum, mínus 36 gráður, á Akureyri mínus 33,5 gráð- ur og í Reykjavík mínus 25 gráður. Með þessari upprifjun er ekki ætlunin að hræða fólk, heldur er hún sett fram fyrst og fremst til fróðleiks og skemmtunar. Rétt er að benda á að allur aðbúnaður fólks nú til dags, húsakostur, upphitun og klæðnaður, er auðvitað gjörólík- ur því sem fólk þurfti að búa við ár- ið 1918 og þjóðin er ólíkt betur í stakk búin til að mæta kuldakasti eins og því sem þá varð. Þó fer nú hálfgerður hrollur um mann við til- hugsunina um að eiga kannski eftir að upplifa frosthörkur upp á mínus 25 til 30 gráður nú í vetur. Við þetta má svo bæta, einnig til gamans, að Katla gaus árið 1918, og gamlir menn, sem telja sig vita lengra en nef þeirra nær, túlka gjarnan mikil hlýindi að hausti sem undanfara mikilla hamfara svo sem eldgosa og jarðskjálfta. Á ensku heitir þetta „Indian summer“, og er túlkað á svipaðan hátt af mörg- um þjóðflokkum.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.