Morgunblaðið - 13.11.1999, Síða 30

Morgunblaðið - 13.11.1999, Síða 30
30 LAUGARDAGUR 13. NÓVEMBER 1999 MORGUNBLAÐIÐ ERLENT Réttarhöld yfír forystumönnun Falun Gong í Kína Fjórir dæmd- ir í allt að 12 ára fangelsi Pcking. AP, AFP. FJÓRIR atkvæðamiklir félagar í Falun Gong, andlegri hreyfingu sem hefur verið bönnuð í Kína, voru dæmdir í tveggja til tólf ára fangelsi í gær eftir að hafa verið fundnir sekir um að „nota ill trúar- brögð til að brjóta lög landsins". Einn sakborninganna, Song Yu- esheng, fékk tólf ára fangelsisdóm en hinir þrír voru dæmdir í tveggja til sjö ára fangelsi. Dómarnir voru kveðnir upp eft- ir sjö klukkustunda réttarhöld í Hainan-héraði í suðurhluta Kína. Þetta er fyrsta saksóknin gegn fé- lögum í Falun Gong sem kínversk yfirvöld hafa greint frá, en talið er að réttað hafi verið yfir nokkrum forystumönnum hreyfingarinnar sem voru sakaðir um að hafa stolið skjölum um bannið við hreyfing- unni sem voru skilgreind sem „rík- isleyndarmál". Fjórmenningarnir voru dæmdir fyrir að skipuleggja samkomu 183 félaga í Falun Gong í borginni Haikou 8. ágúst, hálfum mánuði eftir að hreyfingin var bönnuð. Kínverska þingið samþykkti í lok síðasta mánaðar ný lög sem veita yfirvöldum víðtæka heimild til að handtaka og saksækja félaga í Falun Gong. Handtökur síðustu daga benda til þess að kínversk yf- irvöld hyggist notfæra sér lögin til að sækja til saka menn fyrir að- gerðir sem hreyfingin stóð fyrir áður en hún var bönnuð. Annan furðar sig á herferðinni Mannréttindasamtök í Hong Kong segja að um 111 félagar í Falun Gong verði leiddir fyrir rétt eftir Kínaheimsókn Kofis Annans, framkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna, sem hefst á sunnudag. Annan skoraði í gær á kínversk stjórnvöld að standa við skuld- bindingar sínar í mannréttinda- málum og furðaði sig á herferðinni gegn Falun Gong. Hann kvaðst ætla að ræða málið við ráðamenn í Peking og vonast eftir „ítarlegum og hreinskilnum" viðræðum. Stjórnin í Peking hefur áætlað að rúmlega tvær milljónir Kín- verja hafi gengið í Falun Gong en leiðtogar hreyfingarinnar segja að AP Lögreglumaður yfirheyrir aldraðan mann við Alþýðuhöllina í Peking. Kínverska lögreglan heldur enn uppi ströngu eftirliti í miðborginni og handtekur þá sem grunaðir eru um aðild að andlegu hreyfingunni Falun Gong. félagar hennar í Kína og fleiri ríkj- um séu rúmlega 100 milljónir. Margir af forystumönnum hreyf- ingarinnar voru áður áhrifamiklir í kommúnistaflokknum og gegndu opinberum embættum. Kínverskir embættismenn segj- ast nú vera vongóðir um að hægt verði að uppræta Falun Gong þótt þeir hafi áður lýst hreyfingunni sem mestu ógninni við stjórn kommúnistaflokksins frá mótmæl- um lýðræðissinna á Torgi hins himneska friðar í Peking 1989. Li Hongzhi, fyrrverandi starfs- maður opinberrar skrifstofu í Kína, stofnaði hreyfinguna árið 1992 og flutti síðar til New York. Falun Gong er blanda af búddha- trú, taóisma, dulspeki og ýmsum kenningum Hongzhi. Félagar hennar iðka hægar líkamsæfingar, sem eiga að bæta heilsuna og jafn- vel færa þeim yfirnáttúrulegan mátt. Eitt af meginmarkmiðum Falun Gong er að bæta siðferði mannkynsins og bjarga því frá sið- spillingu og úrkynjun sem rakin er tfl vísinda- og tæknihyggju nútím- ans. Jujf nmn nJ uú b/újíi lújiíju tuú jhuúu/ u/ k'jmínn Wmm Engar eðlilegar skýringar hafa fundist á hrapi Egypt Air-þotunnar Kanna undarlega hegðun flugliða Newport, Washington. AP, AFP. BANDARÍSKT dagblað skýrði frá því í gær, að verið væri að kanna undarlega hegðun nokkurra flug- liða EgyptAir-þotunnar, sem fórst undan norðausturströnd Banda- ríkjanna. Þykir hún benda til, að ekki hafi verið um slys að ræða. Dagblaðið Boston Herald sagði í gær og hafði eftir ónefndum heim- ildarmönnum, að sannanir væru um, að einn flugliðanna a.m.k. hefði haft ástæðu til að óttast, að eitthvað myndi „koma fyrir“. Þessi maður, flugþjónninn Hass- an Sherif, hringdi í konu sína, Ran- iu, frá New York skömmu áður en vélin fór í loftið og sagði við hana, að það væri eitthvað að og hann væri „mjög áhyggjufullur“. Sagði blaðið, að annar maður, einn flugstjóranna, hefði líka haft áhyggjur og hefði hann skilið eftir peninga og orðsendingu til fjöl- skyldu annars manns í áhöfninni. Blaðið segir, að engin eðlileg skýring hafi fundist á atburðinum en framkoma sumra í áhöfninni bendi hins vegar sterklega tfl, að eitthvað alvarlegt hafi verið yfirvof- andi. Tekist hefur að ná upp öðrum flugrita vélarinnar en hætt var við tilraunir til að ná upp hinum í gær er bilun kom upp í vélmenninu, sem til þess er notað. Var von á öðru fljótlega. Taesa-flugvélin sem fórst í vikunni Tæknileg vandamál hugsanleg HUGSANLEGT er að tæknileg vandamál hafi komið upp í mexík- ósku farþegaflugvélinni, sem hrap- aði fyrr í vikunni með þeim afleið- ingum að allir farþegarnir átján fórust. Þetta var haft eftir farþega sem fór frá borði á síðasta viðkom- ustað vélarinnar fyrir slysið. Maria de Gracia Anguiano sagði í viðtali sem birtist í dagblaðinu E1 Universal í gær að flugvélin hefði „hoppað upp og niður“ á leiðinni frá Guadalajara til Uruapan. „Það var skelfilegt," sagði Anguiano. „Þegar við nálguðumst Uruapan heyrðust skrýtin hljóð í flugvélinni, sem við höfðum aldrei heyrt áður.“ Flugvélin, sem var í eigu Taesa- flugfélagsins, hrapaði á akur skömmu eftir flugtak frá Uruapan á þriðjudag. Endanlegur áfanga- staður vélarinnar var Mexíkóborg, en samkvæmt upplýsingum frá flugfélaginu fóru 85 farþegar frá borði í Uruapan. Vélin var af gerðinni DC-9 og var hún smíðuð árið 1970. Hún átti að baki 60 þúsund flugstundir og var að sögn stéttarfélags flugmanna „alræmd“ fyrir olíuleka. Flugmála- yfirvöld í Mexíkó hafa ekki enn lát- ið neitt uppi um ástæðu slyssins. Flugritar vélarinnar fundust á þriðjudag, en að sögn sérfræðinga mun greining á innihaldi þeirra taka margar vikur.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.