Morgunblaðið - 13.11.1999, Page 23

Morgunblaðið - 13.11.1999, Page 23
f- MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. NÓVEMBER 1999 23 — t vúmaóðri einkahotu I í fyrsta sinn á íslandi er nú boðið upp á Aldamótaferð þar sem flogið verður umhverfis jörðina í einkaþotu sem fylgir hópnum alla leið. Ferðin er skipulögð af Samvinnuferðum-Landsýn í samstarfi við íslenska útvarpsfélagið og flugfélagið Atlanta, sem er upphafið á nýjum samstarfssamningi á nýrri öld milli þessara aðila. Heimsóttar verða sex af sérstæðustu menningarborgum heims og dvalið 3-4 daga á hverjum stað. Boðið verður upp á einstæðar skoðunarferðir, gistingu í hæsta gæðaflokki, óviðjafnanlega stemningu og að sjálfsögðu íslenska fararstjórn allan tímann. Þetta einstaka tilboð er einungis fyrir M12 áskrifendur Stöðvar 2 og aðeins eru 300 sæti i boði. Flogið verður með breiðþotu Atlanta sem tekur 476 manns og því verður rúmt um alla farþega. Verð: 399.800 kr.‘ *á mann i tvíbýli ef gengið er frá fullnaðargreiðslu (með peningum, greiðslukorti eða raðgreiðslusamningi) fyrir 20. nóvember 1999. Eftir það er verðið 439.800 kr. á mann í tvíbýli. Innifalið i verði: Flug með einkaþotu, gisting á fyrsta flokks hótelum, morgunverðarhlaðborð í Víetnam, akstur á milli flugvallar og hótels á áfangastöðum, flugvallarskattar og gjöld, háifsdags skoðunarferð um Dubai, Delhi, Ho Chi Minh, Sydney og San Francisco og íslensk fararsyóm allan tímann. Ekki innifalið f verði: Fæði á hótelum, aðrar skoðunarferðir, aðgangseyrir á söfn og vegabréfsáritanir. Vegabréfsáritanir: 12.000 kr. á mann (áætlað). Staðfestingargjald: 100.000 kr. á mann sem greiðist innan viku frá pöntun. Bókun á sætum: Um leið og staðfestingargjaid er greitt gefst farþegum kostur á að ve(ja sér sæti í flugvéiinni sem þeir haida alla ferðina. Þeir sem eru fyrstir að greiða hafa mesta valmöguleika. Betri sæti: Aukagjald fyrir sæti á efri hæð (samtals 12 sæti) er 65.000 kr. á mann. Lágmarksþátttaka í ferðinni er 250 manns. Fallegar strendur, safírblátt haf, hlýr vindur og sunnræn stemning Fidjieyja láta engan ósnortinn. Þú kafar í kóralrifjum, klifrar eftir kókóshnetum og nýtur sólar og sæiu. San Francisco er einstaklega skemmtileg borg, þekkt fyrir litríkt mannlíf, söguleg mannvirki og fjölbreyttan byggingarstíi. Nægir að nefna Kínahverfið, Alcatraz og Qolden Qate brúna, sem dæmi um áhuga- verða staði í borginni. Verð miðast við gengisskráningu og eldsneytisverð 1. nóvember 1999 og er háð verðbreytingum. Opið er á söluskrifstofu Samvinnuferða - Landsýnar í Austurstræti 12 í dag, laugardag kl. 10-14. Kynningarefni með ítarlegum upplýsingum fæst á staðnum. Sölufulltrúar Samvinnuferða- Landsýnar veita einnig upplýsingar í síma 569 1010. ,é, ■ h Samvinnuferðir Landsýn

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.