Morgunblaðið - 25.02.1995, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 25. FEBRÚAR 1995 21
Nýtt lyf gegn lifrarbólgu leyft vestanhafs
Verið notað hér
á landi í tvö ár
LYFIÐ Havrix, sem
notað er gegn lifrar-
bólgu af A-stofni, og
verður senn leyft í
Bandaríkjunum, hefur
verið notað með góð-
um árangri á íslandi
og í fleiri Evrópulönd-
um í tvö ár, að sögn
Haralds Briem, yfir-
læknis smitsjúkdóma-
deildar Borgarspítala.
Sjúkdómurinn var allt-
íður faraldur hér á
landi frá aldamótum
og fram yfir 1950 en
er nú fátíður, helst að
ferðamenn fái hann.
Lifrarbólga af A-stofni veldur
slæmum niðurgangi og uppköstum
en veldur ekki varanlegu tjóni,
mjög sjaldan dauða.
Bandaríkjamenn
oft seinni
Haraldur sagði að Bandaríkja-
menn væru oft seinni til að leyfa
ný lyf en Evrópumenn. Fylgst
væri með árangrinum af notkun
lyfsins hér og yrði það gert áfram
næstu árin, m.a. er kannað hve
lengi mótefnið endist. íslendingar
sem fæddir eru eftir stríð eru yfir-
leitt ekki með mótefnið í blóðinu
en þeir sem eldri eru hafa flestir
fengið sjúkdóminn einhvern tíma
og eru því varðir.
„Þetta er lifrarbólga sem smit-
ast með saurmengun,
hún kemst í mat“,
sagði Haraldur. „Það
var lömunarveiki í
gangi um 1950 og
mikil herferð farin til
að auka hreinlæti. Eg
hugsa að þetta hafi
skilað árangri líka
gegn þessari umferð-
argulu, eins og lifrar-
bólga A var kölluð
héma.“
Haraldur sagði að
við værum í mestri
hættu á ferðalögum
erlendis, hún gæti ver-
ið í skelfíski og öðrum
mat þar sem ekki væri gætt fyllsta
hreinlætis. Fólk gæti verið veikt
vikum og jafnvel mánuðum saman
og því orðið fyrir miklu vinnutapi
auk óþægindanna.
Sum lönd varasöm
Fólk sem færi til landa þar sem
veikin væri landlæg væri hvatt til
að láta bólusetja sig. Haraldur
sagðist telja að mest væri hættan
á smiti í Afríku og Suður-Amer-
íku, einnig væri Suður-Evrópa
nokkuð varasöm, minnst væri
hættan sennilega í Norður-Amer-
íku. Aður hefðu ferðalangar fengið
svonefnt gammaglóbúlín sem hefði
varið fólk í stuttan tíma en líkur
bentu til að Havrix væri virkt í
10-15 ár, jafnvel lengur.
Haraldur Briem
Umræður á Lögþinginu í Færeyjum
Sjálfstæðistillögnr
án meirihluta
Þórshöfn. Morgunblaðið.
TILLAGA Þjóðveldisflokksins í Fær-
eyjum þess efnis að landinu verði
sett ný stjómarskrá og það hljóti
fullt sjálfstæði mun ekki fá meiri-
hluta á Lögþinginu. Á hinn bóginn
er vilji fyrir því að gera umbætur á
gildandi stjómarfyrirkomulagi.
Er tillagan var rædd á fimmtudag
sagði Edmund Joensen, lögmaður
Færeyja og formaður Sambands-
flokksins, að flokkurinn væri andvíg-
ur sjálfstæði en vildi endurbætur á
heimastjórninni. Jafnaðarmenn vilja
einnig halda í sambandið við Dan-
mörku en era reiðubúnir að ræða
hugmyndir um aukið sjálfsforræði
eyjanna í ríkjasambandinu.
Danska blaðið Berlingske Tidende
skýrði á miðvikudag frá nýrri skoð-
anakönnun í Færeyjum þar sem 55%
aðspurðra sögðust styðja sjálfstæði
eða endurskoðun á lögunum um
heimastjórn. Árið 1993 var samsvar-
andi hlutfall 27%.
ERLEMT________________
Keðjureykjandi hug-
læknir hjálpar Jeltsín
DZHUNA og Jeltsín spá í spilin.
SÉRSTAKUR hópur manna starf-
ar innan Kremlarmúra við að rýna
í stjörnukort Borís Jeltsíns Rúss-
landsforseta. Við þennan hóp hef-
ur nú bæst huglæknirinn Dzhuna,
kona sem kveðst vera „líf-orku-
veita“ og rekur sérstaka mennta-
stofnun í heilunarfræðum ýmsum.
Þeir sem veitt geta handanheima-
ráðgjöf hafa löngum átt greiðan
aðgang að rússneskum ráða-
mönnum; munkurinn Raspútín
stjórnaði á sínum tíma lífi Nikul-
ásar II keisara og Alexöndra konu
hans.
Alexandra og Nikulás II Rúss-
iandskeisari nefndu Síberíumunk-.
inn Raspútín jafnan „vin okkar“.
Munkurinn, sem var ómenntaður
með öllu, stjómaði þeim og hefur
þetta sérkennilega vald hans yfir
keisarahjónunum verið rakið til
trúar þeirra á að hann gæti hjálp-
að syni þeirra, Alexej, sem var
blæðari. Svo fór að lokum að ung-
um aðalsmönnum tókst að myrða
Raspútín eftir að sögusagnir tóku
að berast um að hann sængaði
hjá keisaraynjunni.
Kraftaverkum sjónvarpað
Huglæknum og kraftaverka-
mönnum var hampað á sovét-tím-
anum, ekki síst þegar halla fór
undan fæti í valdatíð Míkhaíls S.
Gorbatsjovs. Huglæknirinn Kasp-
írovskíj náði til milljóna sjónvarps-
áhorfenda víða um sovétveldið og
vann kraftaverk á hverju kvöldi.
Fullyrt hefur verið að þjóðernis-
sinninn Vladímír Zhírínovskíj hafi
leitað í smiðju til Kaspírovskíjs í
baráttunni fyrir síðustu þingkosn-
ingar. Dzhuna á sjónvarpinu einn-
ig að þakka frægð sína.
„Ég hitti Borís Níkolajevítsj,
mjög oft. Ef ég get ekki hitt hann,
tölum við saman í síma,“ segir
Dzhuna. „Ég tel það skyldu sér-
hvers borgara að fræða forsetann
um vilja fólksins," bætir hún við
um leið og hún bandar löngum,
lökkuðum nöglum sínum að karl-
kyns aðstoðarmanni sínum.
NATO og hrísgtjón
Aðspurð um umræðuefnin segir
Dzhuna: „Við ræðum hugmyndir
mínar og það er af nógu að taka.
Náttúran, maðurinn, við eram öll
hluti af sama lífheiminum.“ Hún
hristir litað, dökkt hárið og gerir
grein fyrir hvers vegna það sé á
ábyrgð Atlantshafsbandalagsins,
NÁTO, að finna lækningu við al-
næmi. Því næst ræðir hún galla
Uncle Ben’s hrísgijóna frá Amer-
íku. Hún keðjureykir Marlboro-
sígarettur og jórtrar samtímis á
tyggigúmmí af einstakri elju.
Hún getur þess að Rússland sé
tíu sinnum ríkara land en Banda-
ríkin og kveður áform andstæð-
inga Jeltsíns um að fara fram
gegn honum í forsetakosningum
á næsta ári lýsa miklu vanþakk-
læti. Skyndilega tekur hún upp
bækling af borði sínu. „Hef ég
sýnt þér að ég hef fengið einka-
leyfi á „Dzhuna-1“ nuddtækinu?"
Maður einn sem sækir stjörnu-
speki-námskeið Dzhunu útskýrir
að tæki þetta veiti „nudd án snert-
ingar, sem læknar alla sjúkdóma."
Réttur kjúklinga og manna
„Þar sem ég er alþjóðlega við-
urkenndur vísindamaður, vil ég
leggja áherslu á að aðeins er til
einn guð og maðurinn er maður,“
segir Dzhuna eftir að hafa kynnt
galdratækið. „Ég vil lifa og ég fæ
ekki séð hvers vegna kjúklingar
eiga ekki líka að fá að lifa.“ Þess-
ari yfirlýsingu fylgir þögn á með-
an lærisveinar hennar meðtaka
spekina. „Ég veit!“ segir einn
aðdáandinn. „Hún er að segja að
við eigum öll að gerast
grænmetisætur!" Viðstaddir
fagna þessum boðskap ákaflega.
í reglu Assyringa
Fyrrum blaðafulltrúi Jeltsíns,
Pavel Vostsjanov, segir að forset-
inn hafi oftlega boðið huglæknin-
um í sumarhús sitt. Hann rifjar
upp þegar Dzhuna sótti forsetann
eitt sinn heim og hafði meðferðis
hatt einn mikinn og slá til að vígja
Jeltsín sem félaga í „einhverri
reglu eða einhveiju slíku“.
Dzhuna man þetta vel. „Já, þetta
var þegar Borís Níkolajevítsj varð
heiðursfélagi í Reglu hinna fomu
Assyringa," segir hún. „Ég held
að við höfum einnig sæmt hann
doktorsnafnbót í heimspeki. Ég
meina, hann er nú einu sinni for-
seti.“
Tölvutæk
stjörnuspá
Áhugi á handanheimafræðum
og stjörnuspeki er ekki bundinn
við ráðamenn innan Kremlar-
múra. Nýverið skýrði háttsettur
embættismaður í varnarmála-
ráðuneyti Rússlands frá því að
hann og samstarfsmenn hans
færa reglulega yfir stjömuspána
sem þeir hefðu aðgang að í tölvu-
tæku formi. „Við getum ekki leit-
að til kirkjunnar eftir að hafa
mátt hlýða svo lengi áróður gegn
trúarbrögðum. Okkur þykir sem
stjörnuspáin sé einhvers konar
millistig hvað andlega leiðsögn
varðar.“
Heimild:Tfie Sunday Times.
SjúkraJjjálfari leiáLeinir um val á dýnum í dagf
Góð hvíld er mikilvægari fyrir heilsuna en flest annað. Gæði
dýnunnar geta haft úrslitaáhrif á hvort svefninn er vær og
endurnærandi. I verslun Lystadúns-Snælands mun sjúkraþjálfari
leiðheina og fræða viðskiptavini og segja frá hvaða kostum góð
dýna |>arf að vera húin til að svefnsins verði notið sem hest.
Dýnuúrvalið hjá Lystadún-Snæland er fjölhreytt; fjaðradýnur
- hæði einfaldar og tvöfaldar latexdýnur, svampdýnur, yfirdýnur,
eggjahakkadýnur og heilsukoddar.
Opið í dag kl. 10:00-16:00.
%
/1
^'sjúkraþjAlfun
REYKJAVÍKUR
Shútuvogi 11 • Sími 581-4655 568-5588