Morgunblaðið - 25.02.1995, Side 18
18 LAUGARDAGUR 25. FEBRÚAR 1995
MORGUNBLAÐIÐ
ÚR VERINU
Mo/gunblaðið/Svavar M. Sigun'ónsson
Loðnan fryst um borð
ALLIR sem vettlingi geta valdið og ná í loðnu, stunda nú loðnufryst-
ingu, nánast um allt land. Fryst er í stórum og smáum vinnsluhúsum,
um borð í frystitogurum í höfn og frystiskipum á miðunum. Meðal
þeirra frystitogara, sem frysta loðnu í höfn, er Vestmannaey VE, sem
liggur ásamt fleiri togurum í höfn á Seyðisfirði.
Flokkun og frysting á loðnu úti á sjó
„Er afturför sem er að
mínu matá til skammar“
Sighvatur Bjarnason vill stöðva loðnuvinnslu úti á sjó
SIGHVATUR Bjarnason fram-
kvæmdastjóri Vinnslustöðvarinnar
hf. í Vestmannaeyjum og Finnbogi
Jónsson framkvæmdastjóri Síldar-
vinnslunnar hf. í Neskaupstað eru
á einu máli um að verðið sem greitt
er fyrir loðnu til frystingar á þess-
ari vertíð sé þokkalega gott og í
fullu samræmi við markaðsverð.
Þeir vísa því ummælum Lárusar
Grímssonar skipstjóra á Júpíter
ÞH í Morgunblaðinu í gær þess
efnis að smánarlegt verð sé greitt
fyrir hráefnið á bug. Finnbogi telur
hins vegar að verðið hefði átt að
vera hærra á síðustu vertíð miðað
við þágildandi markaðsverð á
loðnuafurðum.
„Markaðurinn var mjög góður í
fyrra,“ segir Sighvatur Bjamason.
„Við hækkuðum því loðnuna veru-
lega og launin hjá okkar sjómönn-
um voru mjög góð. Ég held að
loðnusjómenn hafi enn hæstu laun-
in í flotanum hjá okkur.“
Að sögn Sighvatar hefur afurða-
verð á frystri loðnu lækkað um
23-38% frá því í fyrra. Á sama tíma
hafi Vinnslustöðin
einungis lækkað verð
á hráefninu um
10-20%. „Hér í Vest-
mannaeyjum höfum
við alltaf reynt að láta
hráefnisverðið fylgja
afurðaverðinu.“
Sighvati þykir
brýnt að hagsmunir
landverkafólksins
sem vinnur loðnuna
séu ekki fyrir borð bomir. „Við
höfum haldið uppi atvinnu á þess-
um tíma í Vestmannaeyjum í mörg
ár með loðnufrystingu og það er
því mjög slæmt að þetta fólk sé
að missa vinnuna til frystitogara-
sjómanna sem flestir hafa haft það
mjög gott hingað til.“
Slæm nýting á aflanum
Sighvatur gagnrýnir loðnufryst-
ingu á sjó á þeirri forsendu að
nýtingin á aflanum hljóti að vera
mjög slæm. Loðnu sé dælt beint
upp úr loðnunótum um borð í skip
sem hafi burði til að frysta og
bræða „einhver kíló“
á sólarhring. „Við vit-
um hver nýtingin er
hjá okkur. í vetur
höfum við verið með
8-25% í frystingu og
ef menn geta brætt
50 tonn á sólarhring
hljóta þeir að geta
reiknað út hvað tog-
aramir geta fryst.“
Sighvatur segir að
á sama tíma og þeir sem vinna
loðnu í landi leggi mikið á sig til
að vigta hráefni til manneldis séu
skip úti á sjó að dæla því um borð
í skipin og að hluta beint í sjóinn
aftur. Þetta telur hann ekki jöfn
samkeppnisskilyrði þar sem eng-
inn geti fylgst með því hvað fer
um borð í flokkunarskipin. „Þetta
gagnrýni ég. Þarna eru menn að
gera hluti sem á að stöðva nú
þegar en Fiskistofa virðist ekki
ætla að taka á þessu. Þarna er
ekki um framþróun að ræða held-
ur afturför sem er að mínu mati
til skammar."
Nám & framtíb
Laugardagsblaöi Morgunblaðsins, 11. mars nk., fylgir blaðauki sem
heitir Nám & framtíð. í þessum blaðauka verður fjallað um
Námskynningu 1995, sameiginlega námskynningu skólanna, sem
haldin verður sunnudaginn 12. mars á þremur stöðum í Reykjavík.
Tilgangurinn með þessum blaðauka er að auðvelda nemendum að
átta sig á þeim námsmöguleikum sem boðið er upp á eftir að
skyldunámi lýkur.
Þeim, sem áhuga hafa á að auglýsa þessum blaðauka er bent á
að tekið er við auglýsingapöntunum til kl. 17.00
mánudaginn 6. mars.
\
Agnes Erlingsdóttir og Petrína Ólafsdóttir, starfsmenn
auglýsingadeildar, veita allar nánari upplýsingar í síma
569 11 11 eða með símbréfi 569 11 10.
- kjarni málsins!
Gjafir í
Þyrlusjóðinn
HÉR FER á eftir yfirlit yfir gefend- ur í Þyrlusjóð Stýrimannaskólans í Reykjavík. Við síðastliðin áramót 1994/1995 voru heildareignir sjóðs- ins kr. 20.365.284. Á árinu 1994 var þyrlusveit Landhelgisgæslunn- ar afhent hjartastuðtæki (monitor) sem kostaði 874 þúsund krónur og er tæki þetta haft með í hvert út- kall þyrlunnar. Reikningar sjóðsins hafa verið endurskoðaðir af Ólafi G. Sigurðssyni, löggiltum endur- skoðanda.
Gefendur árið 1993: 1. Slysavarnafélag Islands:
Minningaspjöld Áheit: Sigurmundur Guðnason, Skipas. 38, Rvík Samtals
2. Sérstakar gjafir: Vísir, félag skipstj.m. á Suðumesjum afhent SDarisióðsbók frá Landheleiscræzlunni .. 66.487 kr.
GrétaHalldórsdóttir.Reykjavík Nemendur á 30 tonna réttindanámsk. á Akranesi StaDavík. Akranesi 33.000 kr.
Kristjana Vagnsdóttir til minningar um Elías V. Þórarinsson, Sveinseyri Sinawik-klúbburDalvíkur Lilja Vigdís Bjarnadóttir til minningar um Harald Guðmundsson KvenfélagiðAldan.Reykjavík Ónafngreintframlag Samtals 500.000 kr. 100.000 kr. 1.500 kr.
Gjafir á árinu 1993: Samtals
Gefendur árið 1994: 1. Slysavamafélag íslands: Minningaspjöld Guðrún Pálsdóttir Samtals
2. sérstakar gjafir: Amþór Ámason og Sólveig Sigurðard Áhafnir Hafnareyjar og Andeyjar frá Breiðdalsvík Áhöfnin á ms. Helgafelli Áhöfn ov farbevar á mb. Revkiafossi
Gréta Halldórsdóttir, Reykjavík Kvenfélagið Iðunn, Bæjarhreppi Magnús Þorbergsson
Gjafir á árinu 1994: Samtals
Gjafir á áranum 1993 og 1994: Samtals
4-
i
(
r
B
i
t
i
!
L
I
I
I
I
I
I
k
I
t
I
t
!
I
I
I
I
t
I