Morgunblaðið - 25.02.1995, Qupperneq 14
14 LAUGARDAGUR 25. FEBRÚAR 1995
MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI
Töluverðar sveiflur á verði málma og annarrar hrávöru
Málmverð lækkar en
kaffiverð hækkar
London. Reuter.
VERÐ á málmum lækkaði á heims-
markaði í vikunni af því sala jókst
vegna vísbendinga um hægari efna-
hagsbata í Bandaríkjunum og frétta
um verkfall í þýzkum málmiðnaði.
Minni breyting varð á verði annarr-
ar hrávöru og kaffi seldist á hæsta
verði það sem af er árinu.
í lok vikunnar höfðu málmar
bætt stöðu sína nokkuð, en ekki
var talið ólíklegt að fjárfestingar-
sjóðir mundu losa sig við kopar og
ál á ný.
Starfsmenn bandaríska seðla-
bankans kváðust búast við minni
hagvexti í ár en í fýrra, því að
áhrif vaxtahækkana til að hamla
gegn verðbólgu muni segja til sín.
Ummæli þeirra ýttu undir ugg um
horfur á eftirspurn eftir máimum á
sama tíma og verkfall IG Metall-
félags 11.000 þýzkra málmverka-
manna hófst í gær.
Einnjg gætti óstyrks vegna vís-
bendinga um að samkomulag helztu
framleiðenda um að draga úr fram-
leiðslu kunni að vera að bresta.
Spænskur framleiðandi hefur boðað
að hann muni hefja aftur fram-
leiðslu á 37,000 tonnum og verð-
bréfafyrirtækið Merrill Lynch grun-
ar að í ágúst verði staðan orðin
þannig að meginhluti afkastaget-
unnar verði nýttur.
Nánar um stöðuna:
KOPAR lækkaði um miðja vikuna
í 2,840 dollara tonnið og bætti ekki
stöðuna nema að takmörkuðu leyti.
Á hádegi í gær seldist tonnið á
2,855 dollara, sem er um 7% lægra
verð en þegar það komst hæst í
3,081 dollar um miðjan janúar.
Á1 lækkaði um miðja vikuna í 1,865
dollara tonnið. Hækkaði síðan lítið
eitt og seldist á um 1,880 dollara
í gær, 14% lægra verði en um miðj-
an janúar þegar það komst í 2,195
dollara tonnið. Verkfall hjá Kaiser
Aluminium í Bandaríkjunum og
verkfallshótun í Ástralíu höfðu lítl
áhrif, en uggur um meiri truflanir.
BLÝ og ZINK héldu velli. Lítil sem
engin verðbreyting.
HRÁOLÍA. Verðið um 17,00 tunn-
an. Enn við framleiðsluerfiðleika
að stríða í Nígeríu og mikil sala á
Norðursjávarolíu til Bandaríkjanna.
GULL seldist á 378-380 dollara
únsan alla vikuna.
KAFFI soldist á nýju metsöluverði
1995, 3,040 dollara tonnið. Uggur
um skort á kaffibaunum og áhrif
þurrka á uppskeruna í Kólombíu.
Verðið hafði hækkað um 6% í gær.
KAKÓ. Verðið nálægt því hæsta í
sex mánuði, 1,044 pund tonnið
vegna uggs um framboð.
SYKUR. Litlar verðbreytingar.
HVEITI Um 135 dollarar boðnir í
tonnið, um 3% minna en í síðustu
viku, og lítill áhugi
JURTAOLÍA. Litlar breytingar.
Ráðstefna
um tölvur
og tungumál
RÁÐSTEFNA um tungumál og
tölvur verður haldin í Borgartúni
6 mánudaginn 27. febrúar. Þar
verður meðal annars rætt um svo-
kallaða tungumálaverkfræði og
leiðir til þess að nýta nýja tækni
til fulls á íslensku máli.
Á ráðstefnunni, sem hefst
klukkan 9:00, verður meðal annars
fjallað um 4. rammaáætlun Evr-
ópusambandsins á sviði vísinda og
tækni og meðal fyrirlesara eru
Giovanni Varile, sem er málvís-
indamaður sem hefur starfað hjá
ESB á sviði tungiimálaverkfræði
í tengslum við áætlunina og Guð-
rún Magnúsdóttir, lektor í tungu-
málaverkfræði við Háskólann í
Gautaborg.
Aukin umsvif Hampiðjunnar byggjast á útflutningi
Markaðssókn íAfríku
Hampiðjan hf.
REKSTUR:
MilMónir kr. á verðlagi 1994
Meðalverðlag hvers ars,
Iramrelknað m.v. bygg.vísit. 1994 1993 1992 1991 1990
Rekstrartekjur 1.014,8 869,7 798,8 728,5 902,8
Rekstrargjöld 876,5 838,0 768,3 734,2 888,2
Hagnaður (tap)af regiui. starts. 138,2 31,7 30,5 (5,7) 14,6
Hreinn hagnaður (tap) 90,3 42,4 42,2 6,7 46,6
EFNAHAGUR:
Mllljónir kr. á verðlagi 1994
Arslokaverðlag hvers árs,
Iramrelknað m.v. bygg.vísil. 1994 1993 1992 1991 1990
Veltufjármunir 512,9 531,5 574,2 513,4 561,3
Fastafjármunir 945,3 1.184,8 1.123,1 1.000,1 1.053,1
Skammtímaskuldir 355,5 551,5 553,1 465,4 513,5
Langtímaskuldir 334,8 465,6 476,5 405,6 480,4
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
VERÐLAUNAHAFAR og framleiðendur. Frá vinstri: Sigurður
Gústafsson, Rafn B. Rafnsson, Guðmundur Einarsson, Birgir
Þórarinsson, Sturla Már Jónsson, Sigurður Hallgrimsson
og Ásgeir Guðmundsson.
Þijú hlutu
hönnunarverðlaun
TVENN verðlaun Hönnunardaga
1995 voru veitt á fimmtudag, en
þau hlutu Guðmundur Einarsson
fyrir kynningar- og bæklinga-
standinn Kynni og Guðbjörg
Magnúsdóttir og Sigurður Hall-
grímsson fyrir Kvartett innrétt-
ingar.
Verðlaunin nema 200.000 krón-
um hvor um sig og eru veitt af
Iðnþróunarsjóði fyrir muni sem
þykja framúrskarandi hvað nota-
gildi og hönnun varðar. Valið stóð
á milli 56 muna eftir 30 hönnuði.
Kynningarstandurinn Kynnir
er framleiddur af GKS hf. og
þótti framúrskarandi hönnun sem
sameinaði frumleika, notagildi og
einfaldleika í framleiðslu. I um-
sögn dómnefndar um Kvartett
innréttingar segir að þar fari
saman nútíma hönnun og hagan-
legt handverk, en þær eru sam-
vinnuverk Egils Árnasonar hf.,
Trésmiðjunnar Borgar hf., Form-
ax hf. og hönnuðanna.
Einnig hlutu viðurkenningu
Hönnunardaga þeir Sigurður Gú-
stafsson fyrir athyglisverða hönn-
un á klappstól og Sturla Már Jóns-
son fyrir Seríu nett skrifstofuhús-
gögn.
Frumvarp um erlenda fjárfestinffu
Utlendmgar mega
nftajarðhita
ERLENDUM aðila sem eignast
fasteign á íslandi verður heimilt
að nýta jarðhita til dæmis í fískeldi
eða iðnaði, samkvæmt frumvarpi
sem lagt hefur verið fram á Al-
þingi um iagabreytingar varðandi
erlenda fjárfestingu.
I athugasemdum við frumvarpið
segir að það þjóni tvíþættum til-
gangi: að laga reglur um fjárfest-
ingu erlendra aðiía hér á landi að
ákvæðum samningsins um Evr-
ópskt efnahagssvæði og að heim-
ila óbeina fjárfestingu erlendra
aðila í fiskveiðum og fiskvinnslu.
Bein fjárfesting útlendinga í
fiskveiðum og frumvinnslu sjáv-
arafurða er áfram óheimil, en sam-
kvæmt frumvarpinu yrði reglum
um erlenda fjárfestingu í orkumál-
um breytt lítillega til að taka af
tvímæli um heimildjr útlendinga
til að nýta jarðhita í atvinnu-
rekstri. Samkvæmt EES-samn-
ingnum hefur ísland frest til 1.
janúar 1996 til að laga gildandi
reglur um fjárfestingu útlendinga
í orkugeiranum.
og á Nýja Sjálandi
LJÓST er að aukin umsvif Hampiðjunnar hf. munu byggjast á aukn-
um útflutningi, þar sem markaðshlutdeild fyrirtækisins hérlendis er
mjög há, sagði Bragi Hannesson, stjórnarformaður Hampiðjunnar á
aðalfundi félagsins í gær.
Disney ræðst á
evrópska kvóta
Santa Monica, Kaliforníu. Reutcr.
Gunnar Svavarsson forstjóri
sagði að Hampiðjan einbeitti sér
nú að fjórum fjarlægum markaðs-
svæðum. I fyrra hefði verið komið
á fót söluskrifstofu í Chile ásamt
þremur öðrum íslenskum fyrir-
tækjum og nýlega var samið við
veiðarfæragerð í Seattle í Banda-
ríkjunum um sölu á flottrollum. í
ár hygðist félagið síðan hefja
markaðssókn í sunnanverðri Afr-
íku og Nýja Sjálandi.
Verðmæti útflutnings Hampiðj-
unnar jókst um 26% í fyrra, úr 178
milljónum króna árið 1993 í 224
milljónir. Mest jókst sala flottrolla,
sem skila nú álíka veltu og netin
sem Hampiðjan framleiðir. Hlut-
fall útflutnings af heildarsölu var
rúm 22%.
Bragi Hannesson sagði að segja
mætti að Hampiðjan hefði tekið
forystu í gerð risaflottrolla, en þró-
un og sala þeirra hófst árið 1989,
þegar íslendingar hófu að veiða
úthafskarfa utan landhelgi.
Hlutabréf vanmetin
Hann sagði að á síðasta aðal-
fundi fyrirtækisins hefði hann leitt
rök að því að hlutabréf Hampiðj-
unnar væru vanmetin og á síðasta
ári hefði markaðurinn viðurkennt
það, því gegni hlutabréfanna hefði
hækkað um 33% á sama tíma og
hlutabréfavísitala Verðbréfaþings
íslands hefði hækkað um 24%.
Þrátt fyrir þessa breytingu sagði
Bragi að leiða mætti rök að því
að gengi bréfanna væri enn of
I é<_i
KVÓTAR Evrópusambandsins á er-
lendu efni geta teppt upplýsinga-
hraðbraut nútímans, ef þeim verður
fylgt strangt eftir, að sögn eins
framkvæmdastjóra Walt Disney-fyr-
irtækisins, Richard Franks.
Franks kvaðst skilja að kvótar
þættu eftirsóknarverðir á óvissutím-
um, en lýsti þeirri skoðun sinni að
þeir bæru vott um þröngsýni og
mundu að lokum koma niður á þeim
sem þeir ættu að hjálpa.
Franks sagði að hann væri ekki
mótfallinn öllum kvótum, en þeiryrðu
að vera innan raunhæfra marka.
Hann gagnrýndi sjónvarpskvótana á
þeirri forsendu að þeir væru slæmir
fyrir alla. Kvótamir yrðu til þess að
æ fleiri rásir í Evrópu væru„fylltar
með endurteknu efni, sem drægi úr
fjölda áhorfenda, og það drægi úr
tekjum, sem mundi bitna á öllum.“
Franks hélt ræðu sína skömmu
fyrir ráðstefnu sjö helztu iðnríkja
heims í Brussel, þar sem fjallað verð-
ur um upplýsingabyltinguna.
Vinnur |j u á laugardögum?
Lafidsleikurinn okkur!