Morgunblaðið - 28.01.1993, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 28.01.1993, Blaðsíða 36
 ir rsM. GARÐABÆR Signrbjörg íþrótta- maður ársins AKRANES Birgir Leifur íþrótta- maður Akraness 1992 Val Birgis Leifs kemur engum á óvart. Þó mörg góð íþróttaafrek hefði verið unnin af íþróttafólki á Akranesi 1992 standa afrek Birgis þar fremst. Hann hlaut 84 stig í kjörinu, í öðru sæti varð knatt- spyrnumaðurinn Luka Kostic með 76 stig og sundkonan Ragnheiður Runólfsdóttir varð þriðja með 60 stig. Aðildarfélög ÍA tilnefndu hvert sinn mann til kjörsins. Birgir Leifur varð íslandsmeist- ari unglinga 16 ára ogyngri 1992 og hann var í sveit Golfklúbbsins Leynis sem varð íslandsmeistari í sveitakeppni unglinga 1992. Birg- ir Leifur átti líka bestan árangur (lægsta skor) einstaklinga í sveit- arkeppni GSÍ í 1. deild þar sem allir bestu kylfíngar landsins voru þátttakendur. Hann varð klúbb- meistari Leynis 1992. Birgir lék landsleiki í Evrópumóti pilta- landsliða í Wales, Norðurlandamót unglinga í Svíþjóð, European Juni- or Master í Þýskalandi og á Norðurlandsmóti karla sem haldið var í Reykjavík þar sem hann varð í níunda sæti. Birgir hefur forgjöf 0 sem er þriðja lægsta forgjöf ís- lendings í dag og þar sem drengur- inn er aðeins 16 ára gamall er forgjöf hans mun lægri en nokkur annar íslendingur hefur náð á samsvarandi aldri. Sigurbjörg Ólafsdóttir fímleika- stúlka úr Stjömunni var kjör- in íþróttamaður Garðabæjar 1992. Hún varð m.a. íslandsmeist- ari í gólfæfingum, varð stigahæst í úölþraut og í 1. sæti í gólfæfíng- um og á jafnvægisslá á Senior- mótinu í apríl. Sigurbjörg var fyrst valin í landslið Islands 1990 en Íiað ár varð hún unglingameistari slands. í fyrra keppti hún fyrir íslands hönd á Norðurlandamóti í Danmörku, hún tók þátt í lands- keppni milli íslands og Skotlands og á móti sem nefnist Baltic- Nordic í Tallin í Eistlandi. Þar stóð hún sig mjög vel og var valin í lið Norðurlanda. Aðrar viðurkenningar voru veittar til íslands- og deildarmeist- ara, alls 79 einstaklinga. 16 efni- legir unglingar fengu viðurkenn- ingu og fyrrverandi formenn hand- knattleiks- og knattspymudeildar, þeir Guðjón E. Friðriksson og Páll Bragason fengu viðurkenningu Morgunblaðið/Jón Gunnlaugsson Birgir Leifur hampar glæsilegum verðlaunagrip sem veittur er Iþróttamanni Akraness. Sigurlaunin eru gefin til minningar um Friðþjóf Daníelsson og afhenti Helgi Daníelsson bróðir Friðþjófs Birgir Leif verðlaunagripinn. Akranesi. Hinn ungi og efnilegi kylfíngur Birgir Leifur Hafþórsson hefur verið kjörinn íþróttamaður Akraness 1992 og er vel að þeim heiðri kominn eftir að hafa átt frábært keppnistímabil og komist í fremstu röð kylfinga hériendis. Bandarísku tónlistarverðlaunin (American Music Awards) vom afhent fyrr í vikunni við há- tíðlega athöfn í Los Angeles en 20.000 manns taka þátt í að velja verðlaunahafa. Þrátt fyrir venju- bundnar verðlaunaveitingar til poppara sem víkja ekki frá vin- sældapoppinu komu stöku verð- launahafar á óvart. Þau sem ömgg máttu teljast með verðlaun vom Mariah Carey fyrir bestu plötuna og sem vinsælasta poppsöngkon- an, Michael Bolton sem vinsælasti popparinn og vinsælasti tónlistar- maðurinn, nafni hans Jackson, fyrir bestu rokkplötuna auk sér- stakra verðlauna sem vinkona hans Elizabeth Taylor veitti og sveitasöngvarinn Billy Ray Cyrus, sem þótti flytja besta sveitasöng- inn og vera efnilegasti sveita- söngvarinn. Af þeim sem þóttu síður líklegir má nefna rokkhljóm- sveitina Pearl Jam og rapparann Kris Kross. Sveitasöngvarinn Billy Ray Cyrus glaður í bragði eftir að hafa hlotið verðlaun fyrir besta sveitasönginn og sem efnilegasti sveitasöngvarinn. Sigurbjörg Ólafsdóttir, íþrótta- maður Garðabæjar 1992. fyrir vel unnin störf í þágu íþrótta- og æskulýsðmála í Garðabæ. Elizabeth Taylor afhenti góðvini sínum Michael Jackson sérstök verðlaun. Mariah Carey hlaut tvenn verðlaun, fyrir bestu plötuna og sem vinsælasta poppsöngkonan. félk f fréttum Ágúst Pétursson heldur námskeið í lestri stjörnukorta laugardaginn 30. janúar frá kl. 10.00-18.00. Allir þátttakendur fá sitt eigið stjörnukort Við skráningu á námskeiðið þarf að greiða staðfestingargjald og gefa upp fæðingardag, stað og tíma. Námskeiðsgjald kr. 3.200,- Öll gögn innifalin Við minnum á opið hús í kvöld kl. 20.30 Ásta Halldórsdóttir heldur kynningu á indverskri stjörnuspeki, en hún hefur unnið með hana í nokkur ár og útbýr m.a. indversk stjörnukort fyrir fólk. Aðgangseyrir kr. 400. NYALÐARSAMTOKIN Laugavegi 66, sími 627712. COSPER COSPER —Ég skal gefa þér samband við manninn þinn, frú, hann er hér í rúminu við hliðina á mér. VERÐLAUN Ekkí brugðið út af vananum i - J.G.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.