Morgunblaðið - 28.01.1993, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 28.01.1993, Blaðsíða 30
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. JANÚAR 1993 30 Tramfarasinnuð fótamennt Kvikmyndir Sæbjörn Valdimarsson Háskólabíó: Forboðin spor — ^Strictly Ballroom“. Leikstjóri Baz Luhrman. Aðal- leikendur Paul Mercurio, Tara Morice, Bill Hunter, Pat Tomson, Gia Carides. Ástralía 1992. Það má segja að þetta nýja og að mörgu leyti athyglisverða ástr- alska dansdrama sá soðið upp úr Sögu úr Vesturbænum og Rocky formúlunni. Paul Mercurio fer með aðalhlutverkið, skærusta stjarna dansskóla í Suður-Ástralíu, aukin- heldur einkasonur yfirkennarans og prímusmótors skólans. Er nú komið að hápunkti starfsins, Kyrrahafs- meistarakeppni í samkvæmisdöns- um. Bendir flest til að Mercurio og dama hans fari með sigur af hólmi en fótafjörið er afar mikið og slepp- ir hann sér út af hinum klassísku skrefum í nútímalegri tilburði sem fara svo fyrir brjóstið á afturhalds- samri dómnefndinni að hann verður af sigrinum. En ekki er ein báran stök því dansmærin hans kann öðru sætinu illa og flýgur í faðm aðalkeppinaut- arins. Og mamman verður öldungis æf og beitir nú allri sinni ráðsnilld til að fá frægan dansara sem félaga Mercurio. En hann velur sér hins vegar — eftir talsvert japl og jaml — Ijóta andarungann í skólanum, hana Giu, sem lengstum hefur orð- ið að dansa við sjálfa sig og skrúbba dansgólfið. Upphefst nú mikill eftir- leikur og lengst af má ekki á milli sjá hveijar lyktir verða í kvenna- málunum uns að keppninni kemur. Myndin skiptist í tvennt, hrífandi dansatriði þar sem staðið er vel að flestum hlutum. Dansararnir eru afbragðsgóðir svo unun er á að horfa og það skiptir ekki megin- máli hvort maður kann eitthvað fyrir sér í fótamenntinni eður ei til að hafa ánægju af þessum meistur- um dansgólfsins, svo heillandi sem þeir eru í glæstum samkvæmisdöns- unum. Kóreógrafían er á þessari línu og synd að myndin skuli ekki gérast að meira leyti á gólfínu. Því á meðan það er í bakgrunni er Forboðin spor einstaklega heillandi skemmtun sem hrífur áhorfandann með sér. Það gerir hún reyndar einnig í skemmtilegum kafla þar sem hinir latnesku ættingjar Giu taka piltunginn Mercurio í væna kennslustund í paso doble. Að öðru leyti er atburðarásin utan gólfs ósköp klisjukennd. Hér er notað gamla gleraugnatrixið þegar ljóta andarunganum er breytt í svaninn fríða og stígandin er afar fyrirsjá- anleg — í anda Rockys og hundraða annarra slíkra. Allt heldur löðurs- legt. Leikhópurinn er hins vegar athyglisverður. Minnst hefur verið á getu Mercurios sem dansara, hins vegar er hann ekki mikill bógur að yfirbragði né í dramatíkinni og verður því sjálfsagt seint talinn Travolta tíunda áratugarins. En aukaleikararnir eru flestir burðar- miklir, einkum Tara Morice í bragð- miklu hlutverki móður Mercurios. Þá er myndin á köflum skemmtilega háðsk, gert er stólpagrín að fígúru- hætti og ekki síður þeirri þröngsýni og stöðnun sem sögð er ríkja í sí- gildum samkvæmisdansi. Yfirvélstjóra vantar strax á vertíðarbát í Vestmannaeyjum. Upplýsingar í síma 98-11849 og 98-13369. Barngóð kona óskast á heimili í Garðarbæ. Heilsdagsvinna. Fyrir hendi er húsnæði í kjallara ef óskað er. Upplýsingar í síma 657563. Svæðisskrifstofa málefna fatlaðra á Norðurlandi eystra Svæðisskrifstofa málefna fatlaðra á Norður- landi eystra óskar að ráða fólk til starfa að málefnum fatlaðra. Boðin er góð starfsað- staða og áhugaverð viðfangsefni í fjölbreyti- legu umhverfi. Störfin bjóða möguleika til nýsköpunar innan málaflokks, sem krefst sífelldrar þróunar þar sem bætt þjónusta við neytendur er megin markmið. Um eftirtaldar stöður er að ræða: Forstöðumaður starfshæfingar og atvinnuleitar Svæðisskrifstofan hefur keypt plastiðjuna Bjarg á Akureyri, þar sem áður var rekinn verndaður vinnustaður. Fyrirhugað er að þar verði nú boðin starfsþjálfun og starfshæfing sem hefur þann tilgang, að búa fatlaða und- ir störf á almennum vinnumarkaði. Atvinnu- leit verður tengd þessari starfsemi og verður forstöðumaðurinn jafnframt yfirmaður henn- ar. Forstöðumaður skal hafa menntun og reynslu á sviði endurhæfingar, s.s. menntun iðjuþjálfa og aðra hliðstæða menntun. Félagsráðgjafi Félagsráðgjafi mun starfa á ráðgjafar- og greiningardeild Svæðisskrifstofu í samvinnu við sálfræðinga og aðra sérfræðinga er þar vinna. Deildin hefur það hlutverk að veita fötluðum, svo og aðstandendum þeirra og fjölskyldum, ýmiss konar ráðgjöf og leiðbein- ingar. Vinna með íbúum og starfsmönnum sambýla er einnig viðamikill þáttur í starf- semi deildarinnar svo og þjónusta við aðrar stofnanir er Svæðisskrifstofan rekur. Sjúkraþjálfari Sjúkraþjálfari hefur aðsetur á vistheimilinu Sólborg, en þar er aðstaða til sjúkraþjálfunar og sundlaug. Sjúkraþjálfun á Sólborg sækja fyrst og fremst íbúar staðarins og fólk, er þar nýtur dagþjónustu. Þroskaþjálfar Þroskaþjálfar óskast til starfa á sambýlum, en alls eru 18 sambýliseiningar reknar á vegum Svæðisskrifstofu. Þroskaþjálfar ósk- ast einnig til starfa á vistheimilinu Sólborg. Umsóknarfrestur er til 10. feb. nk. Skriflegar umsóknir skal senda Svæðisskrif- stofu fatlaðra á Norðurlandi eystra, pósthólf 557, 602 Akureyri. Framkvæmdastjóri. tjtÆKOAUGL YSINGAR Til sölu/leigu Hótel Leifur Eiríksson Þrotabú Selavíkur hf. (áður Leifur Eiríksson hf.) auglýsir hér með eftir tilboðum varðandi fasteign þrotabúsins Skólavörðustíg 45, Reykjavík, en þar er rekið 29 herbergja hótel: a) Þrotabúið auglýsir eftir tilboðum í leigu á hótelinu frá 1. febrúar nk. og fram til 15. sept- ember nk. eða eftir nánara samkomulagi. b) Þrotabúið auglýsir eftir kauptilboðum í fasteign þrotabúsins, Skólavörðustíg 45, sem er 705 fm að stærð. Nánari uppl. veitir undirritaður næstu daga. Andri Árnason hdl., skiptastjóri, Garðastræti 17, sími 29911/fax 29191. Félagar í Sölusambandi ísl. fiskframleiðenda! Stjórn SÍF boðar til félagsfundar á Hótel Sögu, Súlnasal, mánudaginn 1. febrúar 1993, kl. 13.30. Dagskrá: Endanleg staðfesting á samþykkt félags- fundar Sölusambands ísl. fiskframleiðenda, haldinn 26. janúar 1993, um að leggja niður félagið skv. 37. grein laga SÍF. Stjórn SÍF. ¥Möguleikar frísvæðis í Reykjavík Hagræðingqrnefnd Félags íslenskra stór- kaupmanna boðar til kynningarfundar um íslenska frísvæðið í Reykjavík. Fundurinn verður haldinn í dag, fimmtudaginn 28. jan- úar, kl. 12.00 í Skálanum, Hótel Sögu. Dagskrá: 1. Markús Örn Antonsson, borgarstjóri: Fríhöfn í Reykjavík. 2. Helgi K. Hjálmsson, forstjóri Tollvöru- geymslunnar hf.: Kynning á möguleikum fyrirtækja á notk- un íslenska frísvæðisins í Reykjavík. 3. Umræður. Þátttökugjald með hádegisverði er kr. 2.500. Vinsamlegast tilkynnið þátttöku í síma 678910. Fundurinn er öllum opinn. KENNSLA Sundhöll Reykjavíkur Sundnámskeið hefjast 1. febúar kl. 18.20. Innritun og upplýs- ingar í afgreiðslu í síma 14059. Hvítasunnukirkjan Völvufelli Almenn samkoma í kvöld kl. 20.30. Allir hjartanlega velkomnir. St.St. 5993012819 VIII I.O.O.F. 11 S 17401287A = K.K. Þb. I.O.O.F. 5 = 17401288’/2 = FERÐAFÉLAG ÍSLANDS MÖRKINNI 6 ■ SÍMI 682533 Vætta- og þorrablótsferð 6.-7.febrúar Frábær gisting í nýju gistihúsi að Leirubakka í Landsveit, Nánari upplýsingar á skrifstof- unni, Mörkinni 6. Einstök og þjóðleg ferð sem enginn ætti að láta framhjá sér fara. Brottför laugard. kl. 8.00. Fararstjórar: Ólafur Sigurgeirsson og Kristján M. Baldursson. Sunnudagsferðir 31. janúar kl. 11: 1. Skíðaganga. 2. Verferð Staf- nesi og Hvalnesi. Myndakvöld miðvikudags- kvöldlð 3. febrúar í Sóknarsaln- um, Skipholti 50a (kl. 20.30). Ari Trausti og Hreinn Magnús- son með myndasýningu af vetr- arferðum og jöklaferðum. Eftir hlé verður sýnt frá gönguferðinni síðastliðið sumar um svæðið milli Skálfanda og Eyjafjarðar. Fáið ykkur nýja, fjölbreytta ferðaáætlun Ferðafélagsins 1993. Ferðafélag (slands. fíimhjólp í kvöld kl. 20.30 er almenn sam- koma í Þríbúðum. Fjölbreyttur söngur. Orð hafa Stefán Bald- vinsson, Jón Jóhannsson og Ragnheiður Pálsdóttir. Kaffi að lokinni samkomu. Allir velkomnir. Samhjálp. Orð lífsins, Grensásvegi8 Samkoma i kvöld kl. 20.30. Allir hjartanlega velkomnirl ------7 / KFUM V Aðaldeild KFUM, Holtavegi Biblíulestur í kvöld kl. 20.30 i umsjá Ástráðs Sigursteindórs- sonar. Takið Biblíuna með. Allir karlar velkomnir. Hjálpræðis- herinn Kirkjustræti 2 í kvöld kl. 20.30: Kvöldvaka í umsjá starfsmanna og foringja á Bjargi. Happdrætti og veiting- ar. Vertu velkomin(n).

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.