Morgunblaðið - 28.01.1993, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 28.01.1993, Blaðsíða 13
 S1 13 Fjárfestum í menntun eftir Heimi Pálsson Mánudaginn 18. janúar 1993 var haldinn í Helsingfors formanna- fundur norrænu háskólamannasam- takanna og sat sá er þetta ritar fundinn fyrir hönd Bandalags há- skólamanna. Á fundinum urðu mikl- ar umræður um framtíð háskóla- menntunar á Norðurlöndum og við- brögð við kreppunni sem nú gengur yfir. Fram komu upplýsingar sem virðist brýnt fyrir íslendinga að at- huga og hafa til hliðsjónar þegar skipulagt er til framtíðar. Atvinnuleysi háskólamanna í Danmörku, Svíþjóð og Finnlandi hefur undanfarin ár gætt talsverðs atvinnuleysis meðal háskólamennt- aðra manna. Enn er það sáralítið í Noregi og hérlendis en þróunin virð- ist engu að síður stefna í sömu átt. Hér gegnir þó ekki einu máli alls staðar né fyrir allar háskólagreinar. í Danmörku hefur atvinnuleysið heijað lengst og þar er mikinn fróð- leik að finna um þróun og aðgerðir. í fyrsta lagi er ljóst að atvinnuleys- ið leggst með mjög misjöfnum þunga á greinar. Viðkvæmastar eru raungreinar og tæknigreinar. Það er í sjálfu sér auðskiljanlegt: Mennt- un í þessum greinum hefur beinst mjög eindregið að tilteknum störf- um og verkefnum og samdráttur á vinnumarkaði_ gefur beina svörun í atvinnuleysi. í hugvísindum er þessu annan veg farið. Fyrir áratug eða svo var komið mikið atvinnuleysi meðal félagsmanna í „Magisterfor- eningen", en það er félag þeirra sem hafa langa háskólamenntun, m.a. í tungumálum og öðrum hugvísind- um. Áður fyrr leituðu flestallir fé- lagsmenn eftir störfum við mennta- skólakennslu og samdráttur í skóla- kerfinu jók því verulega atvinnu- leysið. Með smávægilegum aðgerð- um, einkum með því að bjóða upp á stutt námskeið í tölvufræðum, viðskiptagreinum o.þ.h. taókst hins vegar að snarsnúa þróuninni. At- vinnuleysi fór hraðminnkandi því hugvísindamenntunin (ekki síst tungumálakunnátta) opnaði leiðir til margvíslegra nýrra starfa. Og þar ber að leggja áherslu á að það voru ný störf, ekki störf sem hinir há- skólamenntuðu tóku frá öðrum. Nú er svo komið að atvinnuleysi í þess- um greinum eykst ekkert meðan það hraðvex á raungreinasviði. „Yið verðum að skapa ný færi, búa til nýjar útflutningsgreinar. Og þar eigum við reyndar aðeins eina auðlind til að sækja í. Það er hug- vit og menntun.“ í Svíþjóð og Finnlandi (og hér á íslandi) bendir allt til að þróunin verði hin sama og í Danmörku. Við erum farin að merkja samdráttinn í tæknigreinum og víðar eru blikur á lofti. Á sumum sviðum ganga háskólamenntaðir starfsmenn nú í störf þar sem áður vann fólk með mun skemmri skólagöngu og þar með flyst atvinnuleysið einfaldlega til. En það þarf að hyggja að fleiri þáttum en atvinnuleysinu einu. Samdráttur í menntakerfi er hættulegur Það kom skýrt fram á formanna- fundinum að stjórnvöld hafa mikla hneigð til þess, þegar að kreppir, að láta sparnaðarhnífinn ganga jafnt á allt. Fulltrúar fínnsku sam- takanna, AKAVA, greindu t.d. frá því að hart væri leitað eftir að AKAVA tæki þátt í skipulegum tak- mörkunum á inntöku í þær háskóla- greinar þar sem atvinnuleysið væri mest. Danski fulltrúinn í hópnum varaði eindregið við þessu og færði fyrir rök sem ekki verða í fljótu bragði hrakin. í fyrsta lagi, sagði hann, er það óhrekjanleg reynsla Dana að náms- maður sem velur sér grein af áhuga finnur sér vinnu við sitt hæfi. Það er ekki sjálfsagt að sú vinna sé á þeim hefðbundna markaði þar sem fólk með hans menntun hefur starf- að. En áhuginn er úrslitaatriði og dugir til nýsköpunar. Sá sem á hinn bóginn velur sér námsleið vegna þess að spárnar segja að þar verði atvinnu að hafa, hann lokast inni á fastri braut og leitar ekki út fyrir hana. í öðru lagi benti Daninn á að þegar kreppunni fer að linna (og þjóðhagsspá segir í dag, 20. janúar, að það kunni að verða eftir þijú ár) þá verður það menntun sem skilur milli feigs og ófeigs ef horft er á Evrópuþjóðirnar. Sú þjóð sem ekki á yfrið nóg af menntuðu vinnuafli Júlíus Kemp myndbandið og í fyrstu þtjú skiptin voru þau veitt kvikmyndagerðar- manninum og nú síðast var reglun- um breytt á þá leið að verðlaunin komu aðeins í hlut hljómsveitarinn- ar. Það kom auðvitað í ljós við út- hlutunina af hveiju reglunum hafði verið breytt. Öðruvísi var ekki hægt að verðlauna myndband Sykurmol- anna. FORELDRA OG BARNA Hugo Þórisson Wilhelm NorðJjörð Nýtt námskeið að hefjast. Upplýsingar og skráning í síma 621132 og 626632 Heimir Pálsson til þess að nýta tækifæri framtíðar- innar, hún mun einfaldlega tapa stríðinu og verða undir í harðnandi samkeppni. Þetta kemur öldungis heim og saman við stórmerka brýningu for- seta íslands á ríkisráðsfundi 14. janúar, þegar hún vakti athygli rík- isstjómar, alþingis og þjóðarinnar allrar á því að það væri vöxtur og viðgangur menntunar sem réði full- veldi og sjálfstæði íslensku þjóðar- innar á komandi árum. Fjárfestingar í menntun borga sig Allar umræður um efnahagsmál og framfarir á íslandi hafa að und- anförnu hnigið í eina átt. Það er augljóst mál að efnahagsbati er háður nýsköpun í atvinnulífí. Það er vonlaus staða að ætla sér að hjakka í sama farinu, trúa, eins og Ríkisútvarpið virðist gera, að hér sé aðeins ein auðlind (sbr. frétta- þátt með heitinu Auðlind/n) og láta sig dreyma endalaust drauminn um risaþorskinn sem leysir allan vanda. Okkur mun ekki duga að einblína á fullvinnslu þeirra afurða sem þegar eru fyrir hendi. Við verðum að skapa ný færi, búa til nýjar útflutnings- greinar. Og þar eigum við reyndar aðeins eina auðlind til að sækja í. Það er hugvit og menntun. Með fjárlögum ársins 1992 var stigið stórhættulegt skref í niður- skurði íjárveitinga til menntamála, einkum háskólamenntunar. Örlítil leiðrétting hefur verið gerð með nýjum sköttum sem kallaðir eru skólagjöld, en það eru smámunir miðað við það sem þurft hefði. Það er lítil rós í hnappagat menntamála- yfirvalda að ekki skyldi stigið enn stærra skref með fjárlögum 1993, því í raun hefði þurft að snúa und- anhaldinu í stórsókn. Það verður að gerast á nýbyijuðu ári. Annars stefnum við markvisst til glötunar og það er ekki bara óþarfi, það er heimska. Höfundur er formaður Bandalags háskólamanna, BHM. SPARIÐ TÍMA FÉ OG FYRIRHÖFN og skapiö öruggari vinnu og rekstur með ELBEX sjónvarpskerfi. Svart hvítt eöa í lit, úti og inni kerfi. Engin lausn er of flókin fyrir ELBEX. Kynnið ykkur möguleikana. Einar Farestveit & co hf. Borgartúni 28, sími 91-622900 r Þá finnst mér skjóta skökku við að nokkru fyrir jól neitaði Ríkissjón- varpið mér um að sýna myndband með hljómsveitinni Jet Black Joe í þættinum Upptakti á þeirri forsendu að hljómsveitin söng á ensku en ekki íslensku. Samt er myndbandið unnið á íslandi af íslensku kvik- myndagerðarfólki fyrir íslenska hljómsveit. Þegar óréttlæti Ríkissjónvarpsins er svo hróplegt, framkoma stofnun- arinnar neyðarleg og ósamkvæm sjálfri sér að öllu leyti og síðast en ekki síst fjandsamleg íslenskri kvik- myndagerð, finnst mér ástæða til að vekja á því athygli. Þannig að stofnunin geti gert upp hug sinn, hvort hún hyggist halda því áfram að bæta þar úr. Til dæmis með því að setja einhveijar fastar reglur um myndbandaannál íslenskra tónlist- armyndbanda og sýningar á íslensk- um tónlistarmyndböndum í Ríkis- sjónvarpinu og þá vonandi reglur sem styðja íslenska kvikmyndagerð en vinna ekki gegn henni. Það er svo margt annað sem við þurfum að berjast við að ekki bætist við ósanngirni Ríkissjónvarpsins í garð okkar. Höfundur er kvikmyndagerðar- maður. Myrkir músikdagar 1993 Skottís - skosk-íslensk listahátíö 28. JANUAR Fimmtudagur 29. JANÚAR Föstudagur 30. JANÚAR Laugardagur 31. JANÚAR Sunnudagur 3. FEBRÚAR Miðvikudagur 6. FEBRUAR Laugardagur 7. FEBRÚAR Sunnudagur 8. FEBRUAR Mánudagur 10. FEBRÚAR Miðvikudagur 11. FEBRUAR Fimmtudagur 12. FEBRÚAR Föstudagur 13. FEBRÚAR Laugardagur 14. FEBRÚAR Sunnudagur HASKÓLABÍÓ KL. 20.00 Sinfóníuhljómsveit íslands CAFÉ SÓLON ÍSLANDUS KL. 21.00 Tommy Smith og Jasskvartett Reykjavíkur KJARVALSSTAÐIR KL. 17.00* Auður Hafsteinsdóttir, fiðla KJARVALSSTAÐIR, KL. 20.30* Blásarakvintett Reykjavíkur NORRÆNA HÚSIÐ, KL. 12.30 Háskólatónleikar: Nemendur Tónlistarskólans í Reykjavík KJARVALSSTAÐIR KL. 20.30* Reykjavíkurkvartettinn HALLGRÍMSKIRKJA KL. 17.00* lain Quinn, orgel SAFNAÐARHEIMILI AKUREYRAR KL. 17.00 Kammerhljómsveit Akureyrar KJARVALSSTAÐIR KL. 20.30* Kammerhópurinn ÝMIR LISTASAFN ÍSLANDS KL. 20.30* James Clapperton, píanó NORRÆNA HÚSIÐ KL. 12.30 Háskólatónleikar. Nemendur Tónlistarskólans í Reykjavík RÁÐHÚSIÐ, TJARNARSALUR, KL. 20.30* Flytjendur Pétur Jónasson, Kolbeinn Bjarna- son, Sigurður Flosason o. fl. LISTASAFN ÍSLANDS KL. 20.30* Paragon Ensemble of Scotland HAFNARBORG KL. 20.30* Frumflutningur 22ja íslenskra sönglaga RÁÐHÚSIÐ, TJARNARSALUR, KL. 14.00* Tónsmiðja barnanna LISTASAFN ÍSLANDS KL. 20.30* Lokatónleikar Myrkra músikdaga: CAPUT og PARAGON. ‘Miðaverð kr. 800. Áskriftarkort kr. 3000,-. J

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.