Morgunblaðið - 28.01.1993, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 28.01.1993, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. JANÚAR 1993 Afmæliskveðja Arnfinnur Arnfinns- son frkvstj., Akureyri 17 Morgunblaðið/Arnór Reykjavíkurmeistarar 1993 Sveit S. Ármanns Magnússonar varð Reykjavíkurmeistari í sveitakeppni í brids um sl. helgi þegar sveitin sigraði sveit Glitnis í 64 spila úrslita- leik. Myndin var tekin af sigursveitinni í mótslok, talið frá vinstri: Ólafur Lárusson, Jakob Kristinsson, Sigmar Jónsson sveitarformaður, Hjördís Eyþórsdóttir, Ásmundur Pálsson og Hermann Lárusson. Á myndina vant- ar Norðlendinginn Pétur Guðjónsson. Glaðlegur og hressandi í viðmóti, ákveðinn og einarður í skoðunum, hreinskilinn og hreinskiptinn, hver sem hlut á að máli. Þannig kom vinur minn, Amfinnur Arnfinnsson, mér fyrir sjónir við fyrstu kynni og slíkan hefí ég reynt hann til þessa dags. Hann ber aldurinn ekki með sér. Fæstir myndu renna grun í, að hann væri orðinn sjötugur, þó að sú sé nú raunin á. Arnfinnur fæddist í Vallarborg á ísafirði 28. janúar 1923. Foreldrar hans vom Arnfinnur Jónsson frá Gröf í Þorskafirði og Jakobína Jak- obsdóttir, fædd ísfirðingur en ættuð úr Húnaþingi. Hann var yngstur fjögurra albræðra og er hann sá eini þeirra, sem enn er á lífi. Tveir af þremur hálfbræðrum hans em einnig á lífi. Átján mánaða gamall var Amfinnur tekinn í fóstur af hjónunum Helga Eirikssyni og Guð- rúnu Ólafsdóttur í Miðdal í Bolung- arvík og ólst þar upp sem þeirra eiginn sonur. Hjá þeim dvaldi hann svo til 1948 og vann þar við land- búnaðarstörf eftir að hann hafði lokið skólanámi. Svo var það í maí- mánuði árið 1948 að hann kvaddi Vestfirðina fyrir fullt og allt og fluttist til Akureyrar. Þar fór hann að starfa hjá Kaupfélagi Eyfirð- inga. Á þeim árum tók hann einnig virkan þátt í verkalýðsbaráttunni, og var um skeið ritari og varafor- maður Iðju, félags verksmiðjufólks á Akureyri. Hjá KEA starfaði Arn- finnur í 17 ár. Þá gerðist hann starfsmaður Góðtemplarareglunnar á Akureyri og hafði með höndum hótelstjórn á Hótel Varðborg, sem þá var í eigu Reglunnar. Árið 1970 gerðist hann framkvæmdastjóri fyrirtækja Reglunnar á Akureyri og í dag er hann framkvæmdastjóri Borgarbíós þar í bæ. Hótelinu stjórnaði hann frá 1965 til 1989, en þá seldi Reglan það. Arnfinnur gerðist félagi í stúkunni Ísafold-Fjallkonan nr. 1 árið 1963 og hefir starfað í henni til þessa dags. Hann hefír löngum verið í forystusveit norðlenskra góðtempl- ara og oft látið mjög til sín taka. í stúku sinni hefir hann skipað öll æðstu embættin með miklum sóma, og glöggskyggn er hann á hið mikla gildi siðakerfís Reglunnar. Barnastúkustarfi sinnti Arnfinn- ur einnig um langt skeið í ná- grannabyggðum Akureyrar, bæði á Dalvík og í Hrísey. í framkvæmdanefnd Stórstúku íslands hefur Arnfínnur átt sæti hátt á annan áratug og löngum gegnt þar gjaldkeraembætti. Þar sem annars staðar hefír hann skip- að sæti sitt á þann veg að vart verður á betra kosið. Þar hefír glöggskyggni hans og gjörhygli notið sín næsta vel. Og gott hefir verið að hafa hann sér við hlið til halds og trausts í erfiðum málum. Hann er bæði ráðsnjall og ráðhollur og jafnframt því segir hann sína meiningu afdráttar- og umbúða- laust. Slíka menn er gott að hafa hið næsta sér, bæði í vináttu og samstarfi. Arnfinni er margt til lista lagt. Hann er söngmaður góður og hafa kirkjukórar á Akureyri fengið í ríkum mæli að njóta þess. Hann er líka mikill bókamaður, víðlesinn og margfróður, mikill húmoristi, bráðskemmtilegur og mjög vel máli farinn. Hann er nokkuð ör í lund og stundum óþægilega orðhvatur, að því er sumum fínnst, en alltaf hreinn og beinn, hugsjónaríkur eld- hugi og drengskaparmaður. I einkalífí sínu er Arnfinnur mik- ill gæfumaður. Hann giftist árið 1949 Elínu Sumarliðadóttur frá Bolungarvík, hinni ágætustu konu, sem verið hefir manni sínum traust- ur lífsförunautur. Þau eiga 5 börn, sem öll eru á lífi. Guðrún og Bryn- dís búa í Reykjavík, María og Sig- urður eiga heima á Akureyri og Arna býr á Blönduósi. Barnabörnin eru 15 talsins og 4 langafabörn hafa litið dagsins ljós. Allt er þetta hið efnilegasta fólk, svo hiklaust má segja, að þau hjónin eigi barna- láni að fagna. Það var ósk mín og ætlun að sækja Arnfínn heim og gleðjast með honum á þessum heiðursdegi hans. En starfsannir leyfðu mér það ekki. Því verð ég að láta nægja að dvelja með þér, kæri vinur, í anda og árna þér heilla og blessunar á þessum tímamótum í lífi þínu. I nafni Stórstúku íslands þakka ég þér sérstaklega öll þín miklu og margþættu störf í hennar þágu og Góðtemplarareglunnar á íslandi, bæði í þinni heimabyggð og víðs vegar annars staðar. Þú ert einn þeirra, sem velt hefir björgum á vettvanginum þeim. Heill og gifta fylgi þér, kæri vin- ur, bæði í störfum og einkalífí, héð- an í frá sem hingað til. Þess skal að lokum getið, að Arnfinnur og Elín taka á móti gest- um í Húsi aldraðra við Lundargötu 7 á Akureyri frá kl. 19 í dag. Björn Jónsson stórtemeplar. _____________Brids__________________ Umsjón Arnór G. Ragnarsson Bridsfélag Akraness Nú er bikarkeppni Bridsfélags Akraness að fara af stað. 8 sveitir tilkynntu þátttöku og drógust eftir- taldar sveitir saman í fyrstu umferð: ÞórðurElíasson Böðvar Bjömsson ÁsgeirÁsgeirsson Sjpvá-Almennar hf. ÞorvaldurGutaundss. Ómar Rögnvaldss. GuðmundurÓlafss. Guðmundur Sigurjónss. Ákveðið hefur verið að spila fyrstu umferðina í Grundarskóla fimmtu- dagskvöldið 25. febrúar nk. kl. 19.30. Bridshátíð 1993 - skráningarfrestur í tvímenning til 29. janúar Tólfta Bridshátíð Bridssambands íslands og Flugleiða verður haldin á Hótel Loftleiðum dagana 12.-15. febrúar nk. Skráningarfrestur í tví- menninginn rennur út nk. föstudag 29. janúar og er skráning á skrifstofu Bridssambands íslands í s. 91- 689360. Keppnisgjald er óbreytt frá síðasta ári 10.000 á par og bridssam- bandsstjórn velur þátttakendur í tví- menninginn. Skráning í sveitakeppni Bridshátíðar er öllum opin en hús- næðið rúmar ekki fleiri en 64 sveitir, og nú þegar hafa rúmlega 30 sveitir skráð sig til þátttöku. íslandsmót í parasveitakeppni íslandsmót í parasveitakeppni verð- ur haldið í Sigtúni 9 helgina 6.-7. febrúar nk. Skráningarfrestur er til miðvikudagsins 3. febrúar á skrifstofu Bridssambands íslands í síma 91- 689360. Opið tvímenningsmót Laugardaginn 30. janúar verður haldið í Sigtúni 9 opið tvímennings- mót vegna Evrópumótsins í tvímenn- ing í Bielefeld í Þýskalandi 19.-21. mars nk. Þátttaka er öllum opin og fyrstu verðlaun í mótinu verður þátt- taka á Evrópumótinu. Verðlaun fyrir annað og þriðja sætið verður hluti kostnaðar á mótið. Skráningarfrestur er til miðvikudagsins 27. janúar á skrifstofu Bridssambands Islands í síma 91-689360. Spilaður verður Barómeter ef þátttaka verður minni en 32 pör og miðað er við að spila milli 60 og 70 spil. Spilamennska hefst kl. 10 og keppnisstjóri verður Kristján Hauksson. EINSTAKT TILBOÐ! ALLTAÐ AFSLÁTTUR Seljum næstu daga skápa og húsgögná stórlækkuðu Lítið útlitsgallaðir fataskápar með miklum afslætti. Dæmi um einstök tilboð: Áöur Nú st.gr. Bókahilla 80x60 cm. 10.200.- 4.900,- Rúm m/dýnu 70x190 cm. 27.950.- 17.900,- Fataskápur 100x180 cm. 14.700.- 13.950.- Rúm án dýnu 95x205 cm. 20.859,- 13.870,- Borðskápur 30x68 cm. 4.900.- 2.900,- Bókahilla 95x100 cm. 13.836.- 9.200,- Skrifpúlt 95x1 OOcm. 16.571,- 10.990.- Landsbyggðarþjónusta: Tökum við símapöntunum og sendum um land allt VISA Opið: 9-18 virka daga 10-16 laugardaga Visa raðgreiðslur í allt að 18 mán., engin útborgun. * AXIS AXIS HUSGOGN HF. SMIÐJUVEGI9. KÓPAVOGI SÍMI: 43500 FAX 43509.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.