Morgunblaðið - 28.01.1993, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 28.01.1993, Blaðsíða 2
2 ' MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. JANÚAR 1993 Vond færð norðanlands Fyrirtæki tapa allt að 20% veltu ÓFÆRÐIN norðanlands hefur valdið því að ýmis fyrirtæki á Akureyri sem skipta mikið við Austurland hafa tapað alit að 20% af veltu sinni. Halldór Biönd- al samgönguráðherra skýrði frá þessu á fundi á Akureyri i gær. Halldór sagði að næsta stórverk- efni í vegagerð á eftir jarðganga- gerð fyrir vestan yrði lagning há- lendisvegar er tengdi Norður- og Austurland. Sagði ráðherra það hafa verið skammsýni að ætla að draga það fram til næstu aldar. Davíð Oddsson forsætisráðherra hafði einnig framsögu og sagði að margar ákvarðanir ríkisstjómarinn- ar féllu í grýttan jarðveg. „Við vit- um það ósköp vel að þessar aðgerð- ir hafa ekki kallað á vinsældir með- al almennings," sagði hann. RLR rannsakar innflutning á notuðum bílum árin 1989 o g 1990 Interpol send verksmiðju- númer af yfir 40 Benzum Rannsóknarlögregla ríkisins hefur sent höfuðstöðvum Interpol í París lista með verksmiðjunúmerum á yfir 40 Mercedes Benz bifreiðum sem flutt- ar voru hingað til lands notaðar á árunum 1989 og 1990. Samkvæmt upp- lýsingum frá Smára Sigurðssyni, sem sér um tengsl RLR við Interpol, barst embættinu beiðni um þessar upplýsingar nýlega en málið tengist rannsókn þýskra lögregluyfirvalda á þjófnuðum á bifreiðum af þessari tegund í Þýskalandi. Lögreglan í Hamborg stendur fyrir rannsókninni en beiðni um upplýsingar var send Interpol í gegnum þýsku alríkislögregluna Bundes- kriminalamt. Morgunblaðið greindi frá rannsókn þessari í lok ágúst á síðasta ári. Þá ræddi blaðið við Boga Nilsson rannsóknarlögreglustjóra og í máli hans kom fram að RLR hafði haft upp á nokkrum Mercedes Benz bifreiðum hérlend- is sem vitað er að stolið var í Þýskalandi. Upplýsingar um þessar bifreiðar voru sendar utan en Smári Sigurðsson segir að þýska lög- reglan hafi ekki haft samband aftur til RLR vegna þeirra. „Við höfum ekkert heyrt frá þýsku lögreglunni um þessar bifreiðar og vit- um því ekki hvort Þjóðverjarnir muni leggja fram einhveijar kröfur vegna þeirra," segir Smári. Sami aðili flutti inn Benzana í máli Smára kemur fram að sami aðili hérlendis hafi flutt inn flestar af þeim rúm- lega 40 bifreiðum sem leitað var upplýsinga um af hálfu þýskra lögregluyfírvalda. Hins vegar hefur hann ekki upplýsingar um umfang rannsóknarinnar ytra. í umfjöllun Morgunblaðsins sl. haust um hina stolnu Benza kom m.a. fram að á árunum 1989 til 1991 voru alls fluttir inn 116 notaðar Mercedes Benz bifreiðar. Af þeim flölda komu a.m.k. 60 bifreiðar beint frá verksmiðjunum þannig að svo virðist sem þýska lögreglan sé að kanna nær allan annan innflutning á notuð- um Benz-bifreiðum á fyrrgreindu tímabili en þann sem kom beint frá verksmiðjunum. Forseti ASÍ segir fáar vikur þar til fóik krefst aðgerða Stefnir í átök haldi sljórnin sínu striki BENEDIKT Davíðsson forseti Alþýðusambands íslands segir að verkalýðshreyfingin muni ekki sætta sig við kjara- skerðingu undanfarinna mánaða bótalaust. Ef ríkisstjórnin geri sér ekki grein fyrir því fyrr en síðar stefni í átök á vinnumarkaði. Það sé höfuðatriði að fá kjaraskerðinguna bætta án þess að verðbólgan fari af stað og því þurfi ríkis- stjórnin að endurskoða ákvarðanir sínar. Tómas Ama- son hætt- ir í árslok BANKARÁÐ Seðlabankans hefur samþykkt að Tómas Árnason seðlabankastjóri láti af embætti í árslok, en hann verður sjötugur á árinu. Venja er í bankanum að bankastjórum sé gefinn kostur að sitja út árið sem þeir ná sjötugu. Jóhannes Nordal seðlabankastjóri lætur af störfum um mitt ár. Tómas sagði í samtali við Morgun- blaðið að hann hefði ekki ákveðið hvað hann tæki sér fyrir hendur þeg- ar hann léti af embætti: „Eg var starfandi lögmaður lengi og mér sýn- ist að ég muni hafa nóg að gera þegar ég hætti. Annars ræðst það mikið af heilsufarinu hvað menn hafa fyrir stafni við starfslok.“ Tómas sagði að starfið hefði á margan hátt verið afar ánægjulegt, en að sama skapi ólíkt því sem hann hefði fengist við áður. Tómas var áður alþingismaður og ráðherra og framkvæmdastjóri Byggðasjóðs. „Ég held að málið horfi þannig við að við setjum fram okkar kröf- ur gagnvart viðsemjendum okkar en ég held að ekki séu miklar líkur fyrir mikilli þolinmæði eða að fólk telji sig geta beðið lengi eftir niður- stöðu,“ sagði Benedikt. Aðspurður um aðgerðir sem gripið yrði til sagði hann að ekki væru nema fáar vikur til stefnu til að leita lausna eftir sameiginlegum leiðum þar til fólk krefðist þess beinlínis að látið verði herða að með aðgerð- um. í gær var haldinn óformlegur fundur milli ASÍ og VSÍ um at- vinnumál. Benedikt sagðist gera ráð fyrir að áframhald yrði á sam- eiginlegri vinnu samtakanna um þau mál. Það sé sameiginlegur skilningur ASÍ og VSÍ að atvinnu- vandanum verði ekki breytt nema stjórnvöld breyti atvinnumála- stefnu sinni. Fundalotu að ljúka Fundahöldum forystu ASÍ með stjórnum verkalýðsfélaga víða um land til að undirbúa gerð nýrra kjarasamninga lýkur í vikunni, en fundað var um helgina á Suður- nesjum, á Egilsstöðum og Höfn í Homafirði og í Vestmannaeyjum á mánudagskvöld. Þá var fundur á Grundarfirði á þriðjudag og loka- fundurinn var svo haldinn á Isafirði í gærkvöldi. Benedikt sagði að mikil harka hefði komið fram á fundunum og túlkun hans á því sem þar hafi komið fram sé mjög hógvær. Fólk geri kröfu til þess að brugðist sé við stöðugt vaxandi atvinnuleysi og að kjaraskerðing undanfarinna mánaða verði bætt en hún nemi nú 4 til 5% og 2-3% bætist við á næstu vikum verði þróuninni ekki snúið við. Formannaráðstefna 5. febrúar Formannaráðstefna aðildarfé- laga Alþýðusambandsins verður haldin annan föstudag, 5. febrúar, og sagði Benedikt að þá myndi ráðast hvernig staðið yrði að við- ræðum um nýja kjarasamninga. Það sé alveg ljóst að það stefni í átök ef ríkisstjórnin endurskoði ekki þær aðgerðir sem hún hafi gripið til og geri sér grein fyrir að þar sé hún komin inn á blind- götu. Þar sé meðal annars um að ræða breytingar á persónuafslætti, hækkun hitunarkostnaðar og breytingar á læknis- og lyfjakostn- aði. Þetta komi allt þyngst niður á hinum lægst launuðu. Fólk sætti sig ekki við annað en það náist fram breytingar sem verndi kaup- mátt láglaunafólks. |B«r0tmbUMb VEÐSKIPnAlVINNULÍF Húsnæöisstofnun nð semja um 9 miHjarða lántökur íslendingar i 4. sæti Útgjöld til heilbrigðismála eru óvíða hærri en hér 7 Báknið burtJ Gunnar J. Birgisson skrifar um til- færslu verkefna til sveitarfélaga 14 Sement yfir Komsomolets? Rætt er um að gera sokkinn kaf- bát í Norðurhöfum hættulausan með sementsblöndu 18 Leiðari______________________ Kostnaðarsöm yfírbygging 24 Dagskrá ► Hetja í Kína en óþekktur I heimalandinu - Tölvuleikir geta valdið flogaveikiköstum - Ný evrópsk fréttasjónvarpsstöð - Þessi þjóð á Bylgjunni Viðskipti/Atvinnulíf ► Húsnæðisstofnun semur um 9 milljarða lán — Gula línan seld til Danmerkur — Toyota á toppn- um — Byggðastofnun á núlli — Stjómendur og valddreifing í dag HAG KVÆMASTI igS KOSTU Ri N N !■ I'EGAR ====— ALLS ERGÆTT. Morgunblaðið/Sigurgeir Jónasson Loðnunætur á lofti Loðnunætur, allt að 30 milljónir kr. að verðmæti, voru á ferð og flugi í Vestmannaeyjahöfn í gær, en sjómenn loðnuflotans tóku mikinn kipp þegar fréttist af loðnuveiði í gær og mörg loðnuskip tóku nætumar um borð í Eyjum áður en kóssinn var tekinn austur á bóginn. Það var blússandi veiði- glampi í augum loðnuskipstjórana, en skipverjar höfðu snör handtök við að hífa og gera klárt um borð. Loðnan enn hvumpin LOÐNUVEIÐI er hafin fyrir Austurlandi. Talið er að loðna verði veið- anleg víða fyrir Suð-Austurlandi að Ingólfshöfða einhvern næstu daga. Er Morgunblaðið hafði samband við Bjama Bjamason skipstjóra á Súlunni EA um tíuleytið í gærkvöldi sagði hann að fiskiríið hefði gengið hægt og bítandi. „Það hefur verið svolítill vottur í dag og fram á kvöld- ið vestan við Hvalbak. Það er farin að sjást loðna héma en hún er ennþá svolítið hvumpin við okkur,“ sagði hann. Bjarni sagði að tveir eða þrír bátar hefðu veitt vel og aðrir fengið sæmilegan slatta.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.