Morgunblaðið - 28.01.1993, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 28.01.1993, Blaðsíða 22
22 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. JANÚAR 1993 Tónlistarskólinn Útlit fyrir aukasýning- ar á Astar- drykknum ÓPERAN Ástardrykkurinn eftir Donizetti sem nemend- ur, kennarar og gestir söng- deildar Tónlistarskólans á Akureyri frumsýndu í síð- ustu viku hefur hlotið góðar viðtökur áhorfenda, en upp- selt hefur verið á sýningarn- ar fram til þessa. Tvær sýningar hafa verið á Ástardrykknum og sú þriðja er í kvöld, miðvikudagskvöld. Hvert sæti í Laugarborg, þar sem óperan er sýnd, hefur verið skipað á þeim sýningum sem búnar eru og einn- ig er uppselt á sýninguna í kvöld. Vegna veðurs og ófærðar varð að fella niður fýrirhugaða sýningu síðastliðið sunnudagskvöld, en ætlunin er að bæta úr því næst- komandi sunnudagskvöld, 31. jan- úar. Þingeyingar vilja sjá óperuna Áætlað var að sýna óperuna fjórum sinnum, en Guðmundur Óli Gunnarsson, skólastjóri Tónlistar- skólans á Akureyri, sagði að þar á bæ væru menn að búa sig undir að fjölga sýningum vegna mikillar aðsóknar. Fyrirspurnir hafa komið frá Þingeyingum um hvort mögu- legt sé að flytja sýninguna austur yfir Vaðlaheiði og sýna í sýslunni, en Guðmundur sagði að ekki væri búið að ákveða neitt í þeim efnum. Sennilegast yrði fólk lengra að að efna til sætaferða á staðinn. Helstu flytjendur í óperunni eru Hómfríður Benediktsdóttir, Öm Viðar Birgisson, Baldvin Baldvins- son, Michael J. Clarke og Dagný Pétursdóttir. Leikstjóri er Már Magnússon, Guðmundur óli Gunnarsson stjómar tónlistinni og Helga Bryndís Magnúsdóttir leik- ur á píanó. Morgunblaðið/Margrét Þóra Á stórri slöngu STÖLLURNAR Lilja, Díana, Brynja og Hulda renndu sér á slöngu niður Jólasveinabrekkuna, en þær voru að passa þá Almar og Birgi Bjöm sem sitja á sleðanum sínum við slöngu stúlknanna. Á fljúgandi ferð í frostinu ÞEIR LÉTU napurt frostið ekki á sig fá, krakk- amir sem voru að renna sér á sleðum og slöng- um í brekku sem þau kölluðu jólasveinabrekku og er skammt sunnan við Eikarlund. Litlar upp- lýsingar fengust um uppruna nafnsins enda skiptir það sjálfsagt minnstu máli þegar maður þýtur á fljúgandi ferð niður þessa ágætu brekku. Krakkamir voru flestir úr Lundarskóla, en frí var í skólanum í gær vegna námsmats og gripu þau það fegins hendi og notuðu til útiveru. Bestu sleðarnir ÞEIR Helgi og Fannar fullyrtu að þeir ættu bestu sleðana í bænum og hafa þeir óspart verið notaðir í snjónum að undanfömu. Landsbankinn keypti eignir þrotabús Árvers á uppboði Bankínn greiddi 38 milljónir fyrrir fasteign og tæki til rækjuvinnslu Landsbanki íslands keypti eignir þrotabús rækjuverksmiðj- unnar Árvers hf. á Árskógsströnd á framhaldsuppboði sem haldið var í gær. Bankinn greiddi 38 milljónir króna fyrir fasteign þrotabúsins og tæki til rækjuvinnslu. Eitt tilboð Á fyrra uppboði sem haldið var fyrr í þessum mánuði bauð Byggðastofnun 20 milljónir króna í fasteign og tæki þrotabúsins, en UTIUFSFOLK Munið stóru vélsleðasýninguna á Akureyri um næstu helgi, 30. og 31. janúar. Landssamband vélsledamanna LÍ fVi því tilboði var ekki tekið. Aðeins eitt tilboð barst á framhaldsupp- boðinu sem haldið var í gær, frá Landsbankanum sem bauð 38 milljónir króna, og sagði Arnar Sigfússon skiptaráðandi að það væri nú í höndum bankans að ráð- stafa eignunum. Amar sagði að skiptum í búinu væri ekki að fullu lokið, ýmsa enda ætti eftir að hnýta þar til yfir lyki. Búið átti töluvert af af- urðum sem búið er að koma í verð og nú hefur fasteign verið seld og tæki, en ýmir lausamunir eru enn eftir, m.a. flskikassar og kör, bretti gámar og lyftari auk hús- búnaðar og skrifstofumuna, sem Arnar bjóst við að reynt yrði að selja á næstunni. Engin vinnsla Rækjuverksmiðjan Árver á Ár- skógsströnd varð gjaldþrota í des- ember árið 1991 og námu lýstar kröfur í búið um 170 milljónum króna. Rekstur verksmiðjunnar var í fyrrasumar og fram til loka nóvember síðastliðins leigður Sölt- unarfélagi Dalvíkur og störfuðu allmargir hjá verksmiðjunni á þeim tíma. Frá því samningurinn við Söltunarfélagið rann út hefur vinnsla legið niðri í rækjuverk- smiðjunni og óvíst hvenær eða hvort hún hefst á ný. Hluti þess starfsfólks sem áður vann við rækjuvinnsluna í Árveri starfar nú hjá Söltunarfélagi Dal- víkur og þá hafa einhveijir fengið atvinnu á frystihúsinu á Dalvík og loks má nefna að fiskverkanir á Hauganesi og Árskógssandi eru að fara í gang um þessar mundir og hefur eitthvað af fólkinu fengið þar atvinnu. Erindi um framvirka samninga DR. SVERRIR Sverrisson flyt- ur erindi um framvirka samn- inga og möguleika íslenskra fyrirtækja á að tryggja sig gagnvart sveiflum á erlendum gjaldeyrismörkuðum á Hótel KEA á morgun, fimmtudaginn 28. janúar, kl. 15.30. Erindið fjallar um hinar ýmsu tegundur framvirkra samninga á erlendum fjármagnsmörkuðum. Sýnt verður hvemig hægt verður að nota slíka samninga til þess að tryggja verðgildi greiðslusamninga í erlendri mynt og einnig hvernig hægt er að lágmarka sveiflur í greiðslubyrði erlendra lána sem stafa af breytingum á gengi þeirra gjaldmiðla sem skuldað er í. Leidd verða rök að því að hægt sé að minnka fj ármagnskostn að fyrir- tækja sem em með lán í erlendri mynd með virkri lánastýringu sem byggist m.a. á notkun framtíðar- samninga svo og skiptasamninga. Dr. Sverrir starfar sem hagfræð- ingur hjá ráðgjöf Kaupþings, en hann varði doktorsritgerð í alþjóða- hagfræði við Kaupmannahafnarhá- skóla árið 1991. Félag viðskipta- og hagfræðinga á Norðurlandi, Rann- sóknastofun Háskólans á Akureyri og Kaupþing Norðurlands efna til fundarins. . (Frettatilkynnmg) --»--- Fyrirlestur Dr. Páls Skúlasonar Dr. Páll Skúlason flytur fyr- irlestur í Háskólanum á Ak- ureyri, við Þingvallastræti á laugardag, 30. janúar og hefst hann kl. 14. Fyrirlest- ur Páls nefnist „Hver er hinn sanni heimur?“ í fyrirlestrinum mun Páll ljalla um og gagnrýna hinn ævafoma greinarmun á milli hverfuls reynslu- heims og fullkomins handanheims. í staðinn mun Páll reifa hugmyndir sínar um tengsl náttúruheims, mannheims og hugarheims. Páll Skúlason er prófessor í heim- speki við Háskóla Islands og hefur verið mikilvirkur á sviði heimspek- innar bæði í rituðu og mæltu máli. Hann hefur gefið út nokkrar bækur um heimspeki. Fyrirlesturinn er haldinn á vegum Félags áhugafólks um heimspeki á Akureyri. Starfsemi félagsins hefur verið blómleg að undanförnu, en félagið gekkst fyrir námskeiði fyrri hluta vetrar sem um þijátíu manns SÓttU. (flr fréttatilkynningu) ------» » ♦------ Nýársleikur í Radionausti Verslunin Radionaust á Akur- eyri stendur fyrir svokölluðum nýársleik, sem stendur í sjö vikur og er í því fólgin að boð- ið er upp á tvo tilboðshluti hveija viku, en hún stendur frá fimmtudagi til fimmtudags. Þeir sem kaupa þessar tilboðsvör- ur lenda í lukkupotti sem safnað verður í sjö vikur, en að því búnu, föstudaginn 5. mars kl. 17, verður sá heppni dreginn út, en hann fær vöru þá er hann keypti að fullu end- urgreidda. Mörg þekkt merki verða á boðstólum í nýársleiknum, en leiknum hefur verið vel tekið og potturinn orðin nokkuð stór nú þeg- ar. (Fréttatilkynning)

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.