Morgunblaðið - 01.09.1990, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 01.09.1990, Blaðsíða 36
36 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. SEPTEMBER 1990 Minninff: Aðalbjörn S. Gunn- laugsson, Lundi Fæddur 26. febrúar 1936 Dáinn 25. ág’úst 1990 Sú gleði og gæfa féll mér í skaut að kynnast og síðar að eignast vin- áttu Aðalbjarnar á fyrsta ári hans í Kennaraskóla íslands, vorum við bekkjarbræður. Hann vakti strax athygli mína sökum hugprýði og djörfungar, stillingar og staðféstu, en þá hafði hann lamast stuttu áður. Það fylgdi honum rósemi og kjarkur sem hafði áhrif á alla sem kynntust honum. Ég efast ekki um að trú hans á mátt hins góða, bænir móður og föður, hafi veitt honum ómældan styrk og hjálp, að fá þekkingarþrá sinni fullnægt, menntun er meðal að æðra markmiði, sjálfum sér og öðrum til þroska og blessunar. Af Freysteini Gunnarssyni skóla- stjóra, Bjarna Vilhjálmssyni cand.mag., Jóhanni Briem listmál- ara, Hallgrími Jónassyni kennara og séra Arelíusi Níelssyni Iærðum við að skylda okkar væri að ávaxta með trúmennsku það pund sem Guð hafði gefið okkur. Allir þeir sem kynntust þessum mætu kennurum, auðguðust af and- legri reynslu þeirra, andlegum fjár- sjóðum, sem hafa fylgt nemendum þeirra flestra. Aðalbjörn lét hinar háleitu hug- sjónir kennara sinna bera ávexti í lífi sínu. Aðalbjörn átti ættir sínar að rekja til norður-þingeyskra bændaætta og að Dölum í Fáskrúðsfirði. Ást hans til bemsku- og æskustöðvanna var óvenju sterk og hann fluttist að Skúlagarði í Kelduhverfi 1964 þar sem hann var skólastjóri um eins árs skeið, og þaðan að Lundi í Öxarfirði 1965, er hann bjó í aldar- fjórðung. Var hann þar skólastjóri og kennari, auk búskapar. Þar undi hann sér vel með eiginkonu og sex börnum þeirra hjóna. Börnin og eig- inkonan voru honum himneskir sendiboðar. Það var unaðslegt að sjá hvað Erla konan hans umvafði hann kærleika og hjartnæmri nær- gætni. Fjölskyldan var hin gestrisnasta á heimili sínu í Lundi og nutu þau hjón heimsókna góðvina. Ég minnist góðvinar míns og bekkjarbróður af þakklætistilfinn- ingu sem ég ber til hans. Ég minn- ist hans vegna þeirrar aðdáunar sem ég hef til hans, á persónu hans, þeim krafti, sem einkenndi hann. Ég minnist hans vegna trúnaðar- traustsins, einurðarinnar og hrein- lyndisins, sem voru aðalsmerki hans. Góðvinur minn Aðalbjörn hef- ir verið borinn af englum og fram- liðnum ættingjum inn á æðra svið tilveru Guðs. Framundan er annað sumar, þangað liggur leið okkar allra. Ég votta mína dýpstu samúð. Helgi Vigfússon Kær vinur minn og velgjörðar- maður, Aðalbjörn Gunnlaugsson, fyrrverandi skólastjóri og kennari í Lundi, Öxarfirði, er látinn, langt fyrir aldur fram. Nú, þegar leiðir skiljast, vil ég, með þakklæti í huga, minnast þessa ágæta manns. Aðalbjörn Sigurður, eins og hann hét fullu nafni, fæddist á Grund á Langanesi, 26.2.1936, og var hann næstelstur 7 barna þeirra hjóna Gunnlaugs Sigurðssonar, f. 4.8.1908, frá Grund á Langanesi, og Guðbjargar Magnúsdóttur, f. 2.7.1910, frá Dölum í Fáskrúðs- firði. Gunnlaugur og Guðbjörg hófu sinn búskap á Grund en fluttu haustið 1940 að Ytri-Bakka í Kelduhverfi. Þar bjuggu'þau til árs- ins 1964 er þau fluttu til Reykjavík- ur. Gunnlaugur hóf þá störf við bókhald hjá Sambandi íslenskra samvinnufélaga og við það vann hann þar til hann lést 24. júlí 1973. Guðbjörg gerðist matráðskona hjá Samvinnutryggingum og vann við það til ársins 1981 eða í 15 ár. Systkini Aðalbjarnar eru þessi: Björg, viðskiptafræðingur, starfs- maður skattrannsóknarstjóra, f. 30.4. 1934, gift Sverri Ólafssyni, starfsmanni IBM, búsett í Reykjavík, Magnús, kennari, f. 10.11.1939, kvæntur Ríkey Einars- dóttur kennara, búsett í Reykjavík, Aðalbjörg, húsmóðir, f. 18.6. 1943, gift Stefáni Óskarssyni, trésmíða- meistara, búsett í Rein, Reykja- hverfí, Hulda, kennari, f. 7.7. 1944, gift Gunnari Einarssýni banka- starfsmanni, búsett í Reykjavík, Hildur, kennari, f. 21.6. 1947, gift Páli Steinþórssyni, starfsmanni Heklu, búsett í Reykjavík, og Valdís, starfsmaður hjá Raftákni á Akureyri, f. 23.3.1950, gift Vigni Sveinssyni, skrifstofusjóra Fjórð- ungssjúkrahússins á Akureyri, bú- sett á Akureyri. Þá eignuðust þau Guðbjörg og Gunnlaugur dreng árið 1948, sem andaðist í fæðingu. Aðalbjörn fluttist með foreldrum sínum að Ytri-Bakka og ólst þar upp í stórum og lífsglöðum systk- inahópi. Barnaskóla sótti hann í Kelduhverfi, en síðan lá leiðin í Héraðsskólann á Laugarvatni. Að dvöl þar lokinni ákvað Aðalbjörn að gerast íþróttakennari, en til þess þurfti að ljúka landsprófi. Ákvað Aðalbjörn að lesa undir það utan- skóla heima á Ytri-Bakka. Um vet- urinn skrifaði hann þáverandi skólastjóra Iþróttakennaraskólans, Birni Jakobssyni, og sótti um skóla- vist. Björn veitti honum hins vegar inngöngu í skólann án nokkurra skilyrða um landspróf og mætti Aðalbjörn haustið 1955, ásamt fleiri væntanlegum nemendum, til Laug- arvatns nokkru fyrr en skólinn var settur, í þeim tilgangi að undirbúa skólann fyrir vetrarstarfíð. Eitt af því sem þurfti að gera var að mála loft í skólahúsnæðinu og bauðst Aðalbjöm til þess verks, þrátt fyrir að hann kenndi sér nokkurrar und- arlegrar vanlíðunar. Er skemmst frá því að segja að Aðalbjörn var þá veikur orðinn af lömunarveiki. Næsta morgun hafði hann misst allan mátt nema í annarri höndinni. Já, fljótt geta skipast veður í lofti. I stað þess að hefja það nám, sem Aðalbjöm hafði kosið sér, þurfti þessi ungi maður að leggjast inn á sjúkrahús og liggja þar heilan vetur. Þar náði hann þeim bata að fá fullan mátt í líkama sinn, nema fæturna. Geta má nærri, hversu hræðilegb áfall þetta hefur verið fyrir ungan mann sem var að hefja sín fullorð- insár. En Aðalbjörn lét hvergi bug- ast. Þá kom betur í Ijós en nokkm sinni, hversu sterkan vilja hann hafði, kjark og framsýni, en það voru þeir þættir í fari Aðalbjamar sem hann hafði til síðustu stundar, miðlaði af og var þekktur fyrir. Góður vinur hans, Gunnlaugur Sigurðsson frá Valþjófsstöðum í Núpasveit, var einn af mörgum sem heimsóttu Aðalbjörn er hann lá á Heilsuvemdarstöðinni. „Þá sá ég hvað lítilfjörleg atriði sem maður hafði áhyggjur af vom nákvæmlega ekki neitt, samanborið við það sem Aðalbjörn mátti þola, en aldrei heyrðist eitt æðmorð frá hans vör- um, heldur tók hann orðnum hlut og ræddi um hvernig mæta skyldi framtíðinni. Meðal annars ræddum við kennarastarfið." Haustið 1956 hóf Aðalbjörn nám við Kennaraskólann og þaðan lauk hann prófi 1960. Þá lá leið hans að Héraðsskólanum á Reykjum, þar sem hann var kennari til ársins 1964. Á Reykjum kynntist hann eftirlif- andi konu sinni, Erlu Óskarsdóttur frá Reykjarhóli í Reykjahverfi, dótt- ir hjónanna Steinunnar Stefáns- dóttur og Óskars Sigtryggssonar. Gengu þau í hjónaband 2. júlí 1963 á Ytri-Bakka. Erla er systir Stef- áns, sem er kvæntur Aðalbjörgu, systur Aðalbjamar. Ég hef þá trú að yfir okkur sé vakað og okkur liðsinnt. Sé það rétt, tel ég engan vafa á að leiðir þeirra Aðalbjamar og Erlu hafa átt að liggja saman, þeim báðum til farsældar. Samhentari hjón í hverju því sem þau tóku sér fyrir hendur hef ég varla þekkt. Dugnaður og ósérhlífni þeirra beggja einkenndi farsælt hjónaband þeirra. Veturinn 1964 fluttu Aðalbjöm og Erla frá Reykjum, er Aðalbjörn gerðist skólastjóri við bama- og unglingaskólann í Skúlagarði í Kelduhverfi. Þar með var Aðalbjörn fluttur á sínar heimaslóðir og þar biðu hans verkefni framtíðarinnar. Veturinn eftir flutti Aðalbjörn sig um set og tók við skólastjórn Mið- skólans í Lundi í Öxarfirði, enda einn helsti hvatamaður þess að þar skyldi stofnaður fyrsti unglinga- skóli í N-Þingeyjarsýslu. Var Aðal- bjöm fyrsti skólastjóri skólans. í Lundi átti hann síðan heimili ásamt fjölskyldu sinni til æviloka. Aðalbjörn og Erla eignuðust 6 mannvænleg börn. Þau eru: Stein- unn, stúdent, starfsmaður hjá Fisk- miðlun Norðurlands, f. 14.7. 1964, gift Hannesi Garðarssyni, aðalbók- ara Dalvíkurkaupstaðar, búsett á Dalvík. Eiga þau einn dreng, Aðal- björn, f. 7.4. 1989. Gunnlaugur, stundar viðskiptafræðinám í HI, f. 27.3. 1966, Huld, stúdent, er að heija nám í KHÍ, f. 7.2. 1968, sam- býlismaður hennar er Jóhann Rúnar Pálsson. Óskar, stúdent, f. 19.10. 1969, Þröstur, er að hefja nám í MA, f. 27.2. 1974, og Auður, f. 25.4. 1979. Árið 1969 lét Aðalbjörn af skóla- stjórn, en gerðist kennari í Lundi. Því starfi gegndi hann fram til þessa dags og var auk þess skóla- stjóri skólans veturinn 1988-89. Aðalbjörn hafði mikinn áhuga á öllu því sem var að gerast og tók virkan þátt í hvers konar félags- störfum. Hér skal nefnt að hann var formaður Bindindisfélags Kenn- araskólans 1956-59, eða strax og hann hóf þar nám og þá átti hann einnig sæti í stjóm Sambands bind- indisfélaga í skólum. Hann var for- maður Sjálfsbjargar í Reykjavík 1959-1960, í stjóm Styrktarfélags lamaðra og fatlaðra 1960-1961. Formaður áfengisvamarnefndar í Öxarfjarðarhreppi var hann frá 1966 og sömuleiðis félags áfengis- varnanefnda í N-Þing. frá 1975. Formaður barnayemdar og bóka- safnsnefndar Öxarfjarðarhrepps yf!r tuttugu ár. Formaður Kirkju- kórasambands N-Þing. 1971-1973, átti sæti í stjórn kirkjukórs Skinna- staðakirkju og var þar virkur fé- lagi. Þá átti hann sæti í stjórn Menningarsjóðs KNÞ og í stjórn Héraðsbókasafns N-Þing. Aðalbjöm fór ekki dult með skoð- anir sínar, hvort heldur um stjóm- mál var að ræða eða önnur. Hann var traustur flokksmaður Fram- sóknarflokksins alla tíð og gegndi trúnaðarstörfum fyrir þann flokk. M.a. var hann formaður Framsókn- arfélaganna í N-Þing., vestan heið- ar, í nokkur ár og í stjórn Kjördæm-. issambands Framsóknarmanna í Norðurlandskjördæmi eystra 1973-1977. Aðalbjörn bar hag æskufólks mikið fyrir brjósti og var ávallt til- búinn til að rétta því hjálparhönd. Hann var í stjórn ungmennafélag- anna í Kelduhverfi og Öxarfirði um nokkurra ára skeið og formaður Ungmennasambands N-Þing. 1973-1977 og aftur 1983-1990. Aðalbjöm var fyrsti framkvæmda- stjóri UNÞ árið 1970. Ein fyrstu kynni mín af Aðal- birni vom einmitt á vettvangi ung- mennafélaganna og man ég m.a. eftir honum í hlutverki þess sem skrifaði niður árangra einstaklinga í íþróttamótum í Ásbyrgi og til- kynnti úrslit í hátalara frá bíl sínum. Á einu slíku móti veitti hann mér athygli vegna nokkuð góðrar frammistöðu í hástökki. Það stökk átti eftir að verða mér heilladrjúgt og minnist ég á það síðar. Svo sem sjá má, kom Aðalbjöm víða við í félagsstarfi og gegndi mörgum ólíkum trúnaðarstörfum. Ég tel mig vita, að oftar en ekki hafi hann tekið að sér slík störf fyrir áeggjan og beiðni annarra fremur en að hann hafi sérstaklega sóst eftir þeim sjálfur. Fólk vissi að þar fór hæfur maður sem hægt var að treysta. Góður vinur Aðalbjamar og sam- starfsmaður í langan tíma, Brynjar Halldórsson í Gilhaga í Öxarfirði, sagði við mig m.a.: „Við Aðalbjörn áttum mörg sam- eiginleg áhugamál s.s. á sviði ung- mennafélagshreyfingarinnar, í söngmálum og í pólitísku starfi. Það var einkennandi fyrir Aðalbjörn, að allt sem hann tók sér fyrir hendur skyldi ganga fram. Hann gat verið fastur fyrir og í þeim tilfellum sem menn voru ekki sammála var tekist heiðarlega á. Maður bar alltaf virð- ingu fyrir Aðalbirni og ekkert spillti vináttu okkar. Hann afsakaði sig aldrei vegna fötlunar sinnar og ekki hægt annað en að minnast hans sem einstaks manns.“ Eitt af áhugamálum Aðalbjarnar og Erlu var búskapur. Fljótlega eftir að þau komu í Lund eignuðust þau sinn fyrsta fjárstofn, fáeinar kindur, sem síðan fjölgaði. Réðust þau hjónin þá í fjárhúsabyggingu og þar gaf að líta afurðamikið og fallegt fé. Já, Aðalbjörn var atorku- maður og við hlið hans stóð Erla. Nú kynni einhver að spyrja. „Var maðurinn ekki fatlaður?“ Jú, vissu- lega var hann það, en yfirbragð hans og fas allt gerði það að verk- um, að fötlun hans gleymdist þeim sem með honum unnu. Hann sigrað- ist á fötlun sinni. Kynni okkar hófust er hann var skólastjóri við Miðskólann í Lundi og bauð mér kennarastöðu við skólann veturinn 1968-1969. Einn- ig var mitt hlutverk að hafa umsjón með heimavistum nemenda og sinna störfum bryta. Ég var þá aðeins 18 ára gamall og urðu víst fleiri hissa en ég á því að hann skyldi treysta mér í kennarahlut- verk, unglingsstrák, sem talinn var hinn mesti æringi og jafnvel galla- gripur. Ég hafði að vísu staðið mig nokkuð vel í frjálsum íþróttum og þar hafði Aðalbjörn séð til mín og líklega hefur hann metið það svo að gera mætti brúklegan hest úr þessum galda fola. Strax í upphafí tók Aðalbjörn og hans heimili mér vel og með okkur skapaðist vinátta sem stóð alla tíð. Svo sem nærri má geta þurfti ég tilsögn í kennarastarfinu, og þá ekki eingöngu hvað ég ætti að gera, heldur e.t.v. ekki síður hvað ég ætti ekki að gera. Var ég því í raun ekkert síður nemandi Aðalbjarnar en kennari hjá honum. Aðalbjörn hvatti mig til að ger- ast íþróttakennari, en fyrst yrði ég að fara í Kennaraskólann. Til að ég stæði sæmilega að vígi, tók hann mig í einkatíma í reikningi allan veturinn. Hann sótti um fyrir mig í Kennaraskólanum og veit ég fyrir víst að vegna aðstoðar hans fékk ég þar inngöngu. Þar gekk mér ágætlega í námi, — fyrst og fremst vegna þess sem ég hafði lært hjá Aðalbirni og e.t.v. vildi ég sýna honum að ég stæðist þær vænting- ar sem hann gerði til mín. Ég lauk einnig íþróttakennaraprófi, svo sem Aðalbjörn hafði ráðlagt mér og hjálpað mér við. Ég er þess fullviss að lífshlaup mitt hefði verið öðru- vísi, og trúlega ekki betra, ef Aðal- björn hefði ekki „tekið mig í fóst- ur“. Ég er viss um að ég er ekki einn um að þakka Aðalbirni leið- sögn, því mörg voru þau ungmenn- in sem nutu tilsagnar hans og að- stoðar þegar lagður var grunnur að ævistarfi. í nokkur næstu ár unnum við meira og minna saman. Ég tók m.a. við af honum sem fram- kvæmdastjóri UNÞ og sumarið 1974 flutti ég með fjölskyldu mína í Lund og hafði þar aðsetur þegar ég var við íþróttaþjálfun í héraðinu. Mörg heillaráðin fékk ég þá frá Aðalbimi og margar góðar stundir áttum við fjölskyldurnar saman. Ég ætla mér ekki að rilja frekar upp okkar samskipti, einungis end- urtaka að þau vora frá því fyrsta með ágætum. Eftir að ég „flutti suður“ urðu samverustundimar færri en stund- um gaf maður sér tíma til að líta við í Lundi. Þar var mér og mínum alltaf jafn vel tekið. Fyrir þetta allt vil ég og mín fjöl- skylda þakka af heilum hug. Á síðasta ári kenndi Aðalbjörn sér sjúkdóms sem við greiningu reyndist vera krabbamein. Átti maður bágt með að trúa því að slíkt skyldi lagt á Aðalbjörn, ofan á ann- að sem hann hafði þurft að þola. En svona er þetta nú einu sinni að erfitt er fyrir okkur mennina að útskýra Guðs vilja. Eftir mikla aðgerð fór Aðalbjörn aftur heim í Lund og kenndi þar sl. vetur. Vonir stóðu til að tekist hefði að komast fyrir meinsemdina og bati virtist framundan. í ljós kom að svo var ekki og mætti Aðalbjörn því sem koma skyldi með þeirri sömu karlmennsku og einkenndi allt hans líf. Með láti Aðalbjarnar í Lundi er fallinn frá maður sem skipti máli fyrir okkur öll. Norður-Þingeyjar- sýsla hefur misst einn sinn besta son. Hans er sárt saknað. Átakanlegastur er missir Erlu og t Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir og amma, ESTHER GUÐMUNDSDÓTTIR, Suðurgarði 22, Keflavík lést að kvöldi fimmtudagsins 30. ágúst. Zakarías Hjartarson, börn, tengdabörn og barnabörn. t Þökkum auðsýnda samúð við andlát og útför MATTHILDAR KRISTÍNAR GUNNARSDÓTTUR símavarðar, Reykjalundi. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki Reykjalundar og starfsfólki deildar 13 A Landspítala. Fyrir hönd aðstandenda. Bræður hinnar látnu.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.