Morgunblaðið - 01.09.1990, Blaðsíða 24
24
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. SEPTEMBER 1990
JltargtiiiÞIafrffe
Útgefandi
Framkvæmdastjóri
Ritstjórar
Aðstoðarritstjóri
Fulltrúar ritstjóra
Fréttastjórar
Auglýsingastjóri
Árvakur, Reykjavík
Haraldur Sveinsson.
Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
Björn Bjarnason.
Þorbjörn Guðmundsson,
Björn Jóhannsson,
Árni Jörgensen.
Freysteinn Jóhannsson,
Magnús Finnsson,
Sigtryggur Sigtryggsson,
Ágúst Ingi Jónsson.
Baldvin Jónsson.
Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, sími 691100. Auglýsingar:
Aðalstræti 6, sími 691111. Afgreiðsla: Kringlan 1, sími 691122.
Áskriftargjald 1000 kr. á mánuði ínnanlands. í lausasölu 90 kr. eintakið.
Víðtæk áhrif
frá Persaflóa
Augljóst er að heimsbyggðin
öll á eftir að verða vitni
að langvinnum deilum vegna
innrásar íraka í Kúvæt. Á þess-
ari stundu veit enginn hvaða
stefnu deilan tekur. Dreginn
hefur verið saman óvígur her í
.Saudi-Arabíu og á höfunum í
nágrenni íraks. Fer ekki á milli
mála, að honum verður beitt af
fullum þunga gegn Saddam
Hussein einræðisherra. Víðtæk
samstaða hefur myndast um
efnahagsþvinganir gegn Irök-
um og vonandi tekst að slæva
þannig mátt Husseins að hann
sjái sér þann kost vænstan að
láta af ofríki sínu. Friðsamleg
lausn hlýtur að vera kappsmál
allra. Á hinn bóginn eru færð
fyrir því sterk rök að eina leiðin
kunni að vera sú að beita valdi
til að koma ástandinu í viðun-
andi horf. Öryggisráð Samein-
uðu þjóðanna hefur samþykkt
að valdi verði beitt við sérstakar
aðstæður. Sú einstæða sam-
þykkt er enn ein staðfestingin
á því, hve samhuga þjóðir heims
eru í fordæmingu sinni á Huss-
eim
Á sama tíma og leitað er allra
leiða til að binda enda á hættu-
ástandið vaxa umræður um það
á Vesturlöndum, hvaða lærdóm-
ur skuli dreginn af því. Nú þarf
ekki lengur að taka stórákvarð-
anir í alþjóðamálum með hlið-
sjón af hinni gamalkunnu
spennu milli austurs og vesturs.
Bandaríkjamenn, Sovétmenn,
Kínveijar, Bretar og Frakkar
hafa neitunarvald í öryggisráð-
inu og hefðu hver um sig getað
hindrað hið sögulega samkomu-
lag þar. Þótt þessi ríki séu sam-
mála um meginstefnuna greinir
þau á um áherslur og atriði i
framkvæmd hennar, en láta
þann ágreining ekki ráða ferð-
inni. Fréttir berast af því að
forystumenn í sovéska hernum
hafí áhyggjur af því, hvílíka
hernaðaraðstöðu Bandaríkja-
menn og nánustu bandamenn
þeirra hafa fengið við Persaflóa.
Atburðirnir og viðbrögðin við
þeim hafa þegar skapað nýjar
aðstæður í heimsmálum.
í Morgunblaðinu í gær kemur
í fyrsta lagi fram, að George
Bush Bandaríkjaforseti telur að
bandamenn Bandaríkjanna eigi
að leggja fjármuni af mörkum
til að standa straum af kostnaði
vegna aðgerðanna í Persaflóa.
í öðru lagi telur Margaret
Thatcher, forsætisráðherra
Breta, að framlag Evrópuríkja
til lausnar Persaflóadeilunni sé
ekki nægilega mikið, aðeins
Bandaríkjamenn, Bretar og
Frakkar hafi staðið sig sem
skyldi. í þriðja lagi vill Thatcher
að stofnsáttmáli Atlantshafs-
bandalagsins (NATO) verði
endurskoðaður með það fyrir
augum að sameiginlegar að-
gerðir bandalagsþjóðanna tak-
markist ekki innan landamæra
þeirra. Jeane Kirkpatrick, fyrr-
um sendiherra Bandaríkjanna
hjá Sameinuðu þjóðunum og
áhrifamaður meðal hægri
manna í heimalandi sínu, tekur
í sama streng og Thatcher. Tel-
ur hún að tilveruréttur NATO
sé beinlínis undir því kominn
að það taki við stjórn hernaðar-
mála í Mið-Austurlöndum af
Bandaríkjamönnum.
Þau atriði sem fram koma í
máli Bush, Thatcher og Kirk-
patrick snerta beint stefnumót-
un og ákvarðanir íslenskra
stjórnvalda. Þegar að því er
hugað má minnast þess að
Tyrkir eru aðilar að NATO og
eiga landamæri að írak. Þar er
talin hætta á átökum, sem hefðu
bein áhrif á NATO og herstjórn-
ir bandalagsins. Oskinni um
fjárhagsstuðning er jafnt beint
til ríkisstjórnar Islands og ann-
arra og Atlantshafssáttmálan-
um verður ekki breytt nema
með samþykki allra aðildarríkj-
anna.
Það er ekki nýmæli að íslend-
ingar leggi fram fé til sameigin-
legra alþjóðlegra aðgerða sem
miða að því að treysta öryggi
og frið. Þá eiga islensk stjórn-
vöíd að bregðast með jákvæðum
hætti við hugmyndum' um
breytingar á Atlantshafssátt-
málanum er miða að því að
gera NATO hæfara til að bregð-
ast við á hættutímum án tillits
til landamæra. Sérhvert aðild-
arríki hefur neitunarvald á vett-
vangi bandalagsins. Það eitt á
að tryggja, að ekki verði teknar
ákvarðanir þar sem ganga þvert
á hagsmuni einstakra ríkja.
Afskipti NATO á fremur að
miða við sameiginlega hags-
muni aðildarþjóðanna en land-
fræðileg mörk. í þessu máli
þarf að huga vel að hveiju
skrefí og haga framkvæmdinni
þannig að hún stuðli að því að
minnka spennu en ekki auka
hana. Atlantshafsbandalagið er
öflugasta friðarhreyfingin í
sögu mannkyns, áhrifa þess á
að gæta eins víða og frekast
er kostur.
Söngsveitin Fílharmonía.
— .. . .. í.
Söngsveitin Fílharmonía:
C-moll-messa eftir Moz-
art og söngnámskeið
SÖNGSVEITIN Fílharmonía hefur 31. starfsár sitt 3. september nk.
Aðalverkefni vetrarins verður flutningur á C-moil-messu eftir Wolf-
gang Amadeus Mozart, K 427, sem flutt verður í Háskólabió með
Sinfóníuhljómsveit íslands 10. janúar 1991. Jólatónleikar verða í
Kristskirkju snemma á jólaföstunni.
Ákveðið hefur verið að gangast
fyrir námskeiði til undirbúnings og
til að hvetja ungt fólk til inngöngu
í kórinn. Á námskeiðinu verður
kennd raddbeiting, nótnalestur og
undirstöðuatriði í tónfræði.
Með námskeiðinu vill söngsveitin
gefa ungu fólki tækifæri til að
kynnast kórstarfinu og auka kunn-
áttu sína um leið. Raddprófun fer
fram í lok námskeiðsins og gefst
þá þátttakendum kostur á að ganga
til liðs við kórinn.
Kórstjóri Fílharmoníu er Úlrik
Ólason og verður hann kennari á
námskeiðinu ásamt Margréti
Pálmadóttur, aðalraddþjálfara
kórsins, og Elísabetu Erlingsdóttur,
óperusöngkonu.
Námskeiðið hefst mánudaginn
3. september klukan 20 og verður
kennt í húsi FÍH í Rauðagerði 27
í Reykjavík, mánudaga, miðviku-
daga og fimmtudaga í tvær vikur
frá klukkan 20-22.30. Þátttöku-
gjald er 3.000 krönur.
Kórinn getur bætt við sig góðu
söngfólki, sérstaklega í karlaraddir.
Æfingar hefjast á C-moll-messu að-
Ioknu námskeiðinu í Melaskóla,
mánudaginn 17. september klukkan
20.30 og verður æft tvisvar í viku
á þeim stað, mánudaga og miðviku-
daga í vetur.
Að loknum tónleikum í janúar
mun kórinn hefja æfingar á verk-
efni til flutnings vorið 1991, en
ekki hefur endanlega verið ákveðið
hvert verkefnið verður, eða hvar
flutningur fer fram.
Textíllistakonurnar átta sem opna í dag sýrnngu a verkum sínum í Hafnarborg, Hafnarfírði, til 16. septem-
ber.
Hafnarborg;
Átta textíllistakomir opna sýningu
ÁTTA textíllistakonur opna samsýningu á verkum sinum í Hafnar-
borg, menningar- og listastofnun Hafnarfjarðar, laugardaginn 1. sept-
ember.
Listakonurnar sem sýna eru
Björk Magnúsdóttir, Fjóla Kristín
Árnadóttir, Helga Pálína Brynjólfs-
dóttir, Hrafnhildur Sigurðardóttir,
Hulda Sigurðardóttij, Ingiríður Óð-
insdóttir, Kristrún Ágústsdóttir og
Ragnhildur Ragnarsdóttir. Þær
hafa numið í myndlistarskólum hér-
lendis, í Skotlandi og Finnlandi og
tekið þátt í sýningum hér heima
og erlendis.
Á sýningunni í Hafnarborg gefur
að líta fjölbreytta textíllist, svo sem
máluð og þrykkt myndverk og
nytjalist.
Sex af þeim átta listakonum, sem
taka þátt í þessari sýningu, reka
sameiginlega textílvinnustofu að
Iðnbúð 5 í Garðabæ. Vinnustofan,
sem starfrækt hefur verið frá árinu
1986, gengur undir nafninu „4
grænar og 1 svört í sófa“. Tvær
af listakonunum reka eigin vinnu-
stofur, þær Kristrún Ágústsdóttir,
í Lækjargötu 8 í Hafnarfírði og
Fjóla Kristín Árnadóttir í
Blönduhlíð 31 í Reykjavík.
Textílsýningin, sem er sölusýn-
ing, opnar í dag, laugardaginn 1.
september, og stendur til sunudags-
ins 16. september. Sýningin eropir
alla daga, nema þriðjudaga, frá kl,
14.00 til kl. 19.00.
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. SEPTEMBER 1990
25
Ritsafn Halldórs Lax-
ness gefið út í Þýskalandi
Þýskar útgáfur verka skáldsins til þessa orðnar rúmlega 80
BÓKAFORLAGIÐ Steidl í Þýskalandi hefur hafíð útgáfu á ritsafni
Halldórs Laxness í nýrri gerð en áður hafa mörg útgáfufyrirtæki
bæði í Vestur- og Austur-Þýskalandi gefíð út bækur skáldsins í
mismunandi útgáfum. Sumar bókanna í nýja safninu hafa ekki
áður komið á þýskan markað, aðrar eru nú þýddar á nýjan leik
en nokkrar bókanna munu nú koma út í eldri þýðingum. Yfirbragð
allra bókanna verður hið sama í ritsafninu og band þeirra vandað.
Það er bókaútgáfan Vaka-
Helgafell hf., útgefandi Halldórs
Laxness hér á landi, sem annast
sölu á útgáfúrétti verka skáldsins
erlendis og hefur meðal annars
haft milligöngu um þessar útgáfur
bóka hans.
í frétt frá Vöku-Helgafelli segir
m.a.:
„Fyrstu þijár bækumar í rit-
safni Laxness hjá Steidl eru Vefar-
inn mikli frá Kasmír, Kristnihald
undir Jökli og Atómstöðin.
Þetta er í fyrsta sinn sem Vefar-
inn kemur út á þýsku en frumút-
gáfa bókarinnar kom á markað
hér á landi árið 1927. Prófessor
Hubert Seelow sneri Vefaranum á
þýsku en hann er jafnframt um-
sjónarmaður þessarar nýju útgáfu
á ritsafni Laxness í Þýskalandi.
Seelow hefur einnig þýtt Atóm-
stöðina og er þetta fyrsta útgáfa
þeirrar þýðingar og að sögn þý-
skra blaða mun vandaðri en þær
sem fyrr hafa verið gefnar út.
Kristnihaldið er gefið út í þýðingu
Bruno Kress en sú þýðing hafði
áður komið út í Austur-Þýska-
landi.
Geysimikill áhugi hefur verið á
verkum Halldórs Laxness í Þýska-
landi um langt árabil og eru sjálf-
stæðar útgáfur verka hans í Vest-
ur- og Austur-Þýskalandi orðnar
samtals 50, og endurútgáfur
þeirra bóka alls 31 eða 81 útgáfa
i heild. Þessi útgáfusaga spannar
nima hálfa öld eða frá því að Sjálf-
stætt fólk kom út árið 1936, fyrst
bóka Halldórs Laxness- á þýsku.
Athygli þýskra íjölmiðla og al-
mennings hefur mjög beinst að
verkum Halldórs Laxness að und-
anförnu ekki síst eftir að sýnd var
í SDR-sjónvarpsstöðinni heimild-
armynd Stöðvar 2 um skáldið og
þann 20. ágúst síðastliðinn var
kvikmynd Guðnýjar Halldórsdótt-
ur, Kristnihald undir Jökli, sýnd á
sömu rás á besta sjónvarpstíma.
SDR-sjónvarpsstöðin stóð að
gerð kvikmyndarinnar um Kristni-
hald undir Jökli á sínum tíma.
Myndir heitir í þýskri gerð Am
gletscher og hefur stöðin nú tiln-
efnt hana sem framlag sitt til
þýskra sjónvarpsverðlauna þar
sem valin verður besta myndin,
besta handritið og veitt verðlaun
fyrir bestu leikstjórnina."
Steidl
Romati
___________Halldór Laxness
Halldór Laxness ?T
a to aa WEBERVON
STATION KASCHMIR
Kitsafn Halldórs Laxness verður gefíð út í Þýskalandi.
Bæn
eftirherra Ólaf
Skúlason biskup
Þegar ég reit próföstum Þjóð-
kirkjunnar bréf um síðustu helgi
og fól þeim að ræða við presta próf-
astsdæmanna um það, að í messum
sunnudagsins yrði beðið fyrir friði
í kirkjum landsins, var það ófriðar-
hætta fyrir heim allan, sem var
hvati þeirrar ákvörðunar.
Hvorki hafði ég rætt við hóp
svokallaðs „Jákvæðs átaks“, þegar
það bréf var skrifað, né hafði ég
hugmynd um það, þegar Valgerður
Matthíasdóttir hringdi til mín og
bað mig um að ræða við sig og
nokkra aðra, að það væri þessi sér-
staki hópur, sem hún var talsmaður
fyrir.
Á þriðjudaginn drukkum við séra
Bernharður Guðmundsson,
fræðslustjóri kirkjunnar kaffí með
fimm manns á skrifstofu minni.
Aldrei var einu orði minnst á þetta
Jákvæða átak, svokallaða og ekki
heldur í útvarpsþætti, sem þó stóð
í tvær klukkustundir og biskupsrit-
ari, séra Þorbjörn Hlynur Árnason,
tók þátt í að ósk minni.
Mér kemur það því óneitanlega
spánskt fyrir sjónir, þegar Morgun-
blaðið birtir stærðarmynd af þeim,
sem telja sig vera frumkvöðla að
biskupsbréfi til prófasta landsins
og sérstakir fulltrúar kirkjunnar í
guðsþjónustuhaldi og bænargjörð.
Og lýsi ég því yfir, að þetta svokall-
aða jákvæða átak hefur aldrei verið
nefnt á nafn í þessu sambandi og
kemur mér því algjörlega í opna
skjöldu.
Það sem við séra Bernharður
ræddum við einstaklinga, sem báðu
um fund með mér, var einvörðungu
stríðshættan og nauðsynin að sam-
einast í bæn. Stuðning þeirra þáði
ég vitanlega og þótti gott, að sem
flestir gengju til kirkju og tækju
Áfram gefín gjald-
frestur af vsk. í tolli
Fjármálaráðherra hefur gefíð út reglugerð um að áfram skuli gefínn
eins mánaðar gjaldfrestur á virðisaukaskatti af innfluttum vörum í
tolli, en áður hafði staðið til að fella hann niður um mánaðamótin. Þessi
ákvörðun er meðal annars til komin vegna þrýstings frá verzluninni
og aðilum vinnumarkaðarins, sem töldu að vöruverð myndi hækka ef
gjaldfresturinn yrði felldur niður. Þá telur fjármálaráðuneytiö að óbreytt
fyrirkomulag muni stuðla.að bættum skattskilum.
Magnús Finnsson, framkvæmda-
stjóri Kaupmannasamtakanna, sagði
í samtali við Morgunblaðið að gjald-
fresturinn stuðlaði að lægra vöru-
verði. Ef innflytjandinn yrði að
greiða virðisaukaskattinn þegar í
stað, auk þess að lána smásalanum
andvirði vörunnar um einhvem tíma,
eins og algengt væri, yrði hann að
taka lán til þess að geta staðið skil
á skattinum. Kostnaðinum af lántö-
kunni yrði þá að velta út í verðlagið.
„Þarna er verið að koma til móts við
óskir verzlunarsamtakanna. Menn
þurfa ekki að nýta sér gjaldfrestinn
frekar en þeir vilja, en ef þeir eiga
ekki peninga, geta þeir fengið gjald-
frest. Við teljum að ef gjaldfresturinn
yrði afnuminn myndi það leiða til
hækkunar vöruverðs," sagði Magn-
ús._
í fréttatilkynningu frá fjármála-
ráðuneytinu segir að reynsla af gjald-
frestinum sé góð. Sérfræðingar ráðu-
neytisins telji að verðlag muni hækka
um '/2% ef hann verði felldur niður.
Þá telur ráðuneytið að það skilyrði
fyrir gjaldfresti, að innflytjandi sé
skuldlaus við ríkissjóð, stuðli að betri
skattskilum.
Fjármálaráðuneytið telur að vegna
þessarar ráðstöfunar muni 300-500
milljónir af áætluðum skatttekjum
ríkissjóðs á árinu færast yfir á næsta
ár. „Utlánageta bankakerfisins eykst
að sama skapi af þessuni sökum.
Lausafjárstaða bankanna er nú góð
og þeir geta aukið útlán verulega
um leið og eftirspurn eykst eftir láns-
fé. Aukinn greiðsluhalli og aukin
útlánageta bankanna vegna þessarar
ráðstöfunar gæti hugsanlega stuðlað
að þenslu í framtíðinni. Hins vegar
skiptir nú mestu að koma í veg fyrir
efnisleg eða táknleg tilefni til verð-
hækkunar. Vel gengur að fjármagna
halla ríkissjóðs í ár á innlendum láns-
fjármarkaði, og hægt er með öðrum
aðgerðum í peningamálum að eyða
áhrifum framlengingarinnar á útlá-
nagetu bankanna ef þörf er talin á,“
segir í tilkynningu ráðuneytisins.
friði
þátt í guðsþjónustuhaldinu.
En ég talaði við annað fólk vegna
þessa sunnudags. Það voru for-
stöðumenn og leiðtogar kristinna
trúarhópa og trúfélaga utan þjóð-
kirkjunnar. Nefni ég Alfred Jolson,
biskup kaþólskra, Einar Gíslason í
hvítasunnusöfnuðinum, Björn Inga
Stefánsson í Veginum, Gunnar Þor-
steinsson í Krossinum og leitaði
eftir samtali við fulltrúa Aðventista.
Þetta eru þeir einu hópar eða full-
trúar samtaka, sem ég ræddi við.
Aliir þessir lýstu yfir áhuga
sínum á því að taka þátt. í kristinni
bænagjörð fyrir friði í heiminum.
Ég vil koma þessu á framfæri
vegna einkennilegrar myndbirting-
ar í Morgunblaðinu og rangrar túlk-
unar samtals, sem ég átti við hóp
fólks, sem ég vissi ekki annað en
hefði komið til mín sem einstakling-
ar en ekki í umboði eins eða neins.
Sem slíkum tók ég á móti þeim og
þakkaði áhuga þeirra og stuðning.
Og finnst einnig furðulegt, að bréf,
sem ég reit fjölmiðlum er falið í
viðtali við áðurnefnt fólk.
Ég vona, að þetta verði ekki til
að spilla samhug íslenskrar þjóðar
vegna bænar fyrir friði og fólk fylli
kirkjur og samkomustaði og feli
Guði í Jesú nafni framtíð sína og
annarra.
Hér fer í heild bréf biskups
um bæn fyrir friði í heiminum:
„Fátt virðist brothættara en
friðurinn. Stór orð á merkum
stundum verða sem hjóinið eitt,
þegar raunveruleikinn þrýstir
Ólafur Skúlason
myndum og fregnum af styrjöld-
um og eyðingu fram fyrir svo til
hvern einasta mann.
Fleiri falla á vígvöllum en við
gefum okkur tíma til að hugsa
um dagsdaglega. Hætta án
beinna styrjalda er líka víða.
Ofbeldi og jafnvel morð virðast
við hvers manns dyr.
Þó fer ekki á milli mála að
ógnartíðindi úr Austurlöndum
skjóta öllum skelk í bringu. Eng-
inn fær umflúið hugsanir um
endurtekningu þess, sem eitt
sinn lagði borgir í rúst, tvístraði
fjölskyldum og ógnaði jafnvel
heilum kynþáttum með útrým-
ingu.
Þótt svo virðist, sem barist sé
um olíu í Arabalöndum og hefur
vitanlega áhrif á afkomu allra
barna jarðarinnar, er ekki síður
verið að berjast um hug en olíu.
Hatrið getur ekki síður eytt en
byssukúla. TilUtsleysi tærir eiris
og eiturvopn.
Eg hef því skrifað öllum pró-
föstum Þjóðkirkjunnar og beðið
þá um að koma þeim tilmælum
á framfæri við presta, að sérstak-
lega verði beðið fyrir friði í guðs-
þjónustum komandi sunnudags,
þess annars september. Og í bæn
felist ákall um að hugur hreins-
ist af hatri og byssur hætti að
spúa eldi, að beðið sé um lotn-
ingu fyrir lífi og skilningi á því,
að hörmungar eins heimshluta
vitja allra fyrr eða síðar.
Ég hef einnig snúið mér til
annarra kirkjudeilda hér á landi
og beðið um stuðning við bæn-
arákaUið. Hefur málaleitan
minni alls staðar verið tekið af
fullum skilningi og samstarf feg-
insamlega þegið. Einnig hef ég
skrifað höfuðbiskupum hinna
Norðurlandanna og skýrt þeim
frá þessu áformi okkar og lagt
til að norrænar þjóðir sýni sam-
stöðu í því að virkja þjóðir í bæn
um frið.
Fjölmiðla- og listafólk hefur
einnig lagt þessu máli öflugan *■
og góðan stuðning og þakka ég
það og höfða til þjóðarinnar allr-
ar um þátttöku í bænarákalli
fyrir friði á jörðu. Þeir sem geta
sæki guðsþjónustu í kirkju sinni,
en aðrir hlýði á útvarpið sitt eða
leggi bæninni lið í einrúmi.
Við fréttum af hermönnum,
sem halda til hugsanlegra orr-
ustusvæða. Sem betur fer eru
engin slík á íslandi. En leggjum
okkar fram í annars konar bar-
áttu, baráttu bænarinnar fyrir
friði og bróður- og systurþeli.
Samstaðan skiptir miklu: Sam-
huga þjóð frammi fyrir Guði
skiptir alla máli.“
Leiðrétting vegna sam-
eiginlegrar bænastundar
í TILEFNI af viðtali sem birtist
í Morgunblaðinu föstudaginn
31. ágúst, undir yfirskriftinni:
„Sameiginleg bænastund fyrir
friði“, viljum við taka eftirfar-
andi fram:
I viðtalinu segir: „Það er hópur-
inn Jákvætt átak sem átti frum-
kvæðið að þessari hugmynd."
Þetta viljum við undirrituð leið-
rétta.
Þjóðkirkjan, undir foiystu
herra biskups íslands, Olafs
Skúlasonar, á frumkvæðið að
þessu átaki og er það stórkostlega
jákvætt átak hjá Kirkjunni til að
sameina alla landsmenn í bæn
fyrir heimsfriði.
Hópurinn sem rætt var við í
umræddri grein er aðeins einn af
mörgum ólíkum hópum sem bisk-
upinn hefur átt viðræður við.
Undirritaðir tóku að sér sem ein-
staklingar, er tengjast fjölmiðlum,
að vera tengiliðir og vekja at-
hygli á þessu þarfa framtaki kirkj-
unnar.
Undirritaðir vilja hvetja alla
landsmenn til þess að sameinast
undir merkjum kirkjunnar ogtaka
þátt í sameiginlegri bæn í húsi
drottins.
Við hörmum þann misskilning
sem kemur fram í umræddri
blaðagrein og við undirrituð ber-
um alfarið ábyrgð á.
Valgerður Matthíasdótt-
ir,
Edda Björgvinsdóttir,
Inger Anna Aikman,
Guðrún Óladóttir,
Guðmundur Einarsson.