Morgunblaðið - 25.02.1989, Síða 44
Aukin þægindi
ofar skýjum _
FLUGLEIÐIR
SAGA CLASS
í heimi hraða og athafna
FLUGLEIDIR
LAUGARDAGUR 25. FEBRUAR 1989
VERÐ I LAUSASOLU 70 KR.
Kröfu Lands-
bankansí
skuldakröfur
Olís hafnað
BORGARFÓGETI ha&aði i gær
kröfu Landsbankans um að fá
að handveði verðbréf og aðra
pappíra i eigu Olís, sem fyrirtæk-
ið hefur til tryggingar útistand-
andi skuldum. Krafa bankans var
lögð fram 15. febrúar siðastlið-
inn. Upphæðin sem um ræðir er
tæpar 470 milfjónir króna.
Fógeti segir í úrskurði sínum að
Olís hafí sýnt fram á að vafi geti
leikið á um grundvöll þann, er beiðni
Landsbankans byggist á. Réttmæti
hennar verði einungis staðfest „með
þeim sönnunarfærslum sem fram
fara fyrir hinum almennu dómstól-
"T5m“. Vaitýr Sigurðsson borgarfóg-
eti kvað upp úrskurðinn.
Pétur Sigurðsson formaður
bankaráðs Landsbankans sagði
ekki vera tímabært að tjá sig um
málið, það verði rætt milli banka-
stjóra og bankaráðs eftir helgina,
„en ég þykist vita að ekki verði
íátið við þetta sitja,“ sagði hann.
Sjá frétt á bls. 16.
Lítíll dreng-
ur dróst 400
metra með bíl
TVEGGJA Ara gamall drengur á
Akureyri slapp með óveruleg
meiðsl eftir að hafa dregist með
fólksbíl rúma 400 metra. Óhapp-
ið átti sér stað í Vestursíðu laust
eftir hádegi í gær. Ekki er vitað
hvernig drengurinn festist við
bílinn, en þegar hann stöðvaðist
var drengurinn framan við ann-
að afturþjólið.
0» Bflnum var ekið að húsi við Vest-
ursfðu og snúið þar við á bflastæð-
inu, þar sem drengurinn var að leik.
Bflnum var því næst ekið út á Vest-
ursíðu og inn á Bugðusíðu og náði
nærstaddur ökumaður að stöðva
bflinn þegar honum hafði verið ekið
rúma 400 metra. Litli drengurinn
var lagður inn á bamadeild FSA
til skoðunar en meiðsl hans voru
þá talin óveruleg.
Morgunblaðið/RAX
Veturá Ströndum
Guðbjöm Lýðsson á Vfganesi var að gera að fiski fyrir spyrðun
á Gjögri þegar blaðamenn Morgunblaðsins bar þar að á fimmtu-
daginn. Fiskinn höðfíi þeir fengið sendan flugleiðis frá Hólmavík,
því allir bátar era i nausti um þessar mundir á Gjögri. Veturinn
hefur verið harður á Ströndum og samgöngur erfiðar, vélsleðinn
hefur reynst þarfíir þjónn og flugvélar þegar veður hefíir leyft.
Slítnað upp úr viðræðum imi
kaup Flugleiða á Arnarflugi
SLITNAÐ hefíir upp úr viðræð-
um um kaup Flugleiða á Araar-
flugi, samkvæmt heimildum
Morgunblaðsins. í gærkvöldi
hafði ekki tekist að ná samkomu-
lagi, eftir daglangan fimd i sam-
gönguráðuneytinu og á tiunda
tímanum hættu Flugleiðamenn
viðræðum um kaupin. Málið
strandaði á kaupverðinu, sem
forráðamenn Flugleiða töldu of
hátt. Ekki er ljóst hver fram-
vinda málsins verður. Steingrim-
ur J. Sigfússon, samgönguráð-
herra, sagðist skömmu fyrir mið-
nætti ekki vilja staðfesta að Flug-
leiðir væru hættir viðræðum, en
aðspurður kvaðst hann ekki neita
því heldur.
„Ég ætla ekki að gefa neinar
yfirlýsingar um stöðu málsins nú,“
Verðstöðvun lýkur 1. mars:
Hækkanir á orku, samgöng-
um, olíu, dagvist og búvörum
ORKUFYRIRTÆKI óska al-
mennt eftir 7—10% gjaldskrár-
hækkun 1. mars og ýmis sam-
göngufyrirtæki óska eftir
5—20% hækkun. Verðlagsráð
hefiir ekki tekið afetöðu til
þessara hækkanabeiðna en ger-
ir það væntanlega á flmdi eftir
helgi, að sögn Guðmundar Sig-
urðssonar yfirviðskiptafræð-
ings Verðlagsstofnunar. Verið
er að vinna að verðlagningu
búvara og er búist við að þær
hækki um að minnsta kosti
3—5%, samkvæmt heimildum
Morgunblaðsins. Þá era yfir-
vofandi hækkanir á fargjöldum
i millilandaflugi og á olíuvörum
vegna gengisbreytinga.
Syóm Landsvirkjunar ákvað f
fyrradag að óska eftir 8% gjald-
skrárhækkun og RARIK mun
óska eftir sömu hækkun. Hita-
veita Reykjavíkur hefur óskað
eftir 9,23% gjaldskrárhækkun, en
það er hækkun byggingarvísitölu
frá því heita vatnið var síðast
hækkað. Búist er við að þær raf-
magns- og hitaveitur sveitarfé-
laga sem ekki hafa þegar sótt um
hækkanir verði á þessum nótum.
Næstu sex mánuðina þurfa orku-
sölufyrirtækin að fá samþykki
verðlagsráðs fyrir gjaldskrár-
breytingum.
Sendibflstjórar, vömflutninga-
fyrirtæki og sérleyfishafar hafa
sótt um hækkanir á gjaldskrám
sfnum og em beiðnimar á bilinu
5—20%. Leigubflsfjórar höfðu
ekki óskað eftir hækkun í gær
og ekki var heldur búið að óska
eftir hækkun á innanlandsflugi. í
samgönguráðuneytinu liggur hins
vegar til afgreiðslu beiðni flugfé-
laganna um hækkun á millilanda-
flugi. Flugleiðir hafa óskað eftir
2,5% hækkun og Amarflug rúm-
lega 4%.
Yfirvofandi em hækkanir á
þjónustu sveitarfélaganna. Til
dæmis hækka fargjöld strætis-
vagna í Reykjavík um 25% og
dagvistunargjöld f Reykjavík og
Kópavogi um 20%.
sagði Steingrímur, þegar Morgun-
blaðið náði tali af honum skömmu
fyrir miðnætti. „Ég vil ekki stað-
festa að það sé rétt að Flugleiðir
séu hættir viðræðum. Málin standa
þannig nú að ég þarf að ræða við
ýmsa, meðal annars samráðherra."
Ráðherra var spurður hvort hann
neitaði því að Flugleiðir væm hætt-
ir við kaupin og kvaðst hann ekki
gera það.
Viðræðunefnd samgönguráðu-
neytisins fundaði í allan gærdag
með forráðamönnum Flugleiða og
Amarflugs, en frekari fundir hafa
ekki verið ákveðnir. Síðdegis f gær
var talið að samningar væm að
takast, en í gærkvöldi kom í ljós
að ekki náðist samkomulag um
kaupverð. Samkvæmt upplýsingum
Morgunblaðsins mun greinargerð
sú, sem Amarflug lagði fram um
verðmæti félagsins fyrir Flugleiðir,
ekki hafa verið lögð til grundvallar
í viðræðunum.
Forráðamenn Amarflugs sátu á
fundi um miðnættið. Kristinn Sig-
tryggsson, framkvæmdastjóri fé-
lagsins, neitaði að tjá sig um málið.
Samkvæmt upplýsingum Morg-
unblaðsins hefur ríkissljómin lagt
áherslu á, að hluthöfum Amarflugs
verði bættur sá skaði sem þeir hafi
orðið fyrir. Hlutafé Amarflugs er
240 milljónir, en er talið vera
350-400 milljónir, sé það uppreikn-
að til núvirðis.